STEINAR SIGURJÓNSSON: (jamall mavul oenaui úea Gamall maður gekk eftir veginum. Hann var klæddur svartri peysu og þykkum mosagrænum buxum, og gilti líka einu hvort dagur var helg- ur eða virkur, ávallt búinn svartri peysu og grænum buxum. Eítir nokkurn spöl nam hann staðar og mælti við sjálfan sig, að ekki hefði hann sofið dúr í nótt, ekki dúr. Þegar hann hafði hvílzt um stund stóð hann og gekk, en ekki hafði hann gengið langt er hann studdi sig fram á stafinn og talaði: Æijá, bölvuð er hún, gigtarskömmin, ótugtin sú arna. Gamh maðurinn lagði enn af stað. Hann verður duglegur við suðrið með kvöldinu ... ég má til með að kasta mæðinni ... þetta er mesta torleiði ... eða er ég nú farinn að tapa mér svona ... það er nú annað en var, eitthvað er það nú annað ... En nú komu stúlkurnar hlaupandi ofan hæð- ina. Sæll, karltetur, sögðu þær og hlógu. Gamli tautaði eitthvað í barm sér, en svo sagði hann: Hvað eruð þið að flækjast hérna svona klæddar? Tildur er þetta . . . Áttu við kjólana okkar? Já, það meina ég. Eru þeir ekki fallegir? spurði einkar alúðleg stúlka. Sérðu, eru þeir ekki fallegir? Hún hélt höndum um kjólfaldinn og sneri sér í hring. Jæjaþá, en ég kann ekki við þessar blúndur. Blúndur? Blúndur, segir hann. Það eru eng- ar blúndur á þeim. Stúlkurnar hlupu flissandi á braut, en gamli maðurinn horfði, og stúlk- urnar hurfu handan við hæðina. Síðan gekk hann á leiðarenda þar sem hann sá ungu menn- ina keipa undan ströndinni. Á maður nú marga sigluna þarna, bæSi á eigin fjölum og annarra; hefur maSur nú orSiS aS seila í sunnanhroSanum og dumma fyrir JÓN JÓHANNESSON : LJÓÐ (Aslaug Lástad) Hljóðlátt er difið árum í flauelssjó. Dropar drjúpa. Þögnin vakir á sundinu, fylgir honum, sem mjúkum togum rr inn með landi. Einhver vakir og bíður. Og ilfum tveim svala döggvar í grasi, svala steinar í fjöru. Velkominn heim. nesiS mót sjálfri höfuSskepnunni og þrír hafa þeir nú fariS undan mér, og stendur hann Bjarni enn. Gamli maSurinn hélt heim á leiS. Ætli hún kerli mín verSi ekki búin aS sjóSa grautinn þegar ég kem heim? 11/12/52 BIRTINGUR