Birtingur - 01.01.1955, Blaðsíða 10

Birtingur - 01.01.1955, Blaðsíða 10
HÖRÐUR ÁGÚSTSSON: Byggingarlist Inngangur .... Húsin eiga þannig að vera gróðurstöðvar til mannræktar .... Hannes Kr. Daviðsson. Borgin, gatan og húsin eru eins og opin bók sem við lesum á daglega, viljandi eða óviljandi. Hún hefur meiri áhrif en okkur grunar á líf okkar, á andlegt og líkamlegt atgerfi okkar og síðast en ekki sízt á menningu okkar. Menn lifa og hrærast í borgum, innan um hús, í húsum meir en nokkur sinni áður. Af því má ráða hversu gífurlega uppeldisþýð- ingu hús og borgir hafa og hversu nauðsynlegt er að gefa þeim meiri gaum en gert hefur verið hér um slóðir, því á íslandi er byggingarlist og borg- menning yfirleitt hroðaleg bók aflestrar. Það var danskur menntamað- ur á ferð hér fyrir nokkrum árum. Hann gekk inn Laugaveg með einum landa okkar. Hann leit í kringum sig, þagði en spurði svo: Hvorfor bygger de ikke huse ? Það eru hörð orð en að mestu leyti sönn og því fyrr sem þau verða okkur ljós og við reynum að bæta um, því betra. Það hefur að vísu verið gert ýmislegt hér seinni ár til þess að f jarlægja líkamlegan sóðaskap og það er í sjálfu sér virðingarvert, en það er hinn andlegi sóðaskapur sem er höfuðóvinur Islands byggðar og því minnir þessi tiltekt og það skrauttildur sem því fylgir ofurlítið á eina ágæta gamla konu, sem ég þekkti í útlandinu hér um árið og aldrei þvoði hjá sér, en hélt að þrifnaður væri fólginn í því að hella bara nógu miklu af sótthreinsandi vökvum og dufti í skot og kima. Hugsið ykkur að þið séuð útlendingar í þessu landi, hafið alizt upp við byggingarmenningu og gangið inn Laugaveginn eins og Dani eða standið á Arnarhóli og virðið fyrir ykkur miðbæinn. Hvergi nokkurstað- ar örlar fyrir því að nokkur maður er hendi fór um þessi hús hafi hugs- að um stærð eða snið, hvað þá að hér hafi verið unnið af hreinni list. Það er efni í heila doktorsritgerð að skýra það út fyrir okkur hvernig þjóðin gat glatað allt í einu tilfinningunni fyrir formi um sama mund og hún var að verða fullveðja. Eða var þetta eítthvað bundið hatri á Dönum, sem eru sennilega einu mennirnir er byggt hafa hús á Is- landi allt fram á vora daga. Alþingishúsið, Stjórnarráðið, Menntaskól- inn, fyrrum aðsetur Hæstaréttar og fangahús við Skólavörðustíg. Það er von að menn verði hneykslaðir þegar þeir sjá svo allt í einu hina fram- sæknu arkitekta okkar reisa hús þar sem reynt hefur verið að beita 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.