Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 50

Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 50
MAGNÚS MAGNÚSSON M.A.: Albert Einstein 1. G R E I N Albert Einstein er vafalaust meðal mestu vísindamanna, sem uppi hafa verið. Saman- burður milli manna eins og Arkimedesar, Galileos, Newtons og Einsteins er vitanlega fánýtur. Þeir lifðu á ólíkum tímum, og afrek þeirra mótuðust af þeim. Það má jafnvel segja, að þessir menn hefðu aldrei unnið ein- mitt þau afrek, sem þeir unnu, ef þeir hefðu fæðzt hálfri öld fyrr eða síðar. Svo mjög eru menn háðir sínum tíma. Verk Einsteins hafa hlotið mikla frægð, alltof mikla, að því er honum fannst. Kenningar hans hafa ger- breytt heimsskoðun náttúruvísindanna, en jafnframt hefur þeim verið misbeitt á mörg- um sviðum, sem ekkert eiga skylt við náttúru- vísindi. Háspekingar, guðfræðingar og stjórn- fræðingar hafa með óljósu orðavali og vill- andi samlíkingum reynt að fá stuðning undir sínar fallvöltu kenningar frá vísindakenning- um Einsteins eða ráðizt á þær á jafnveik- um grundvelli. Kenningar Einsteins eru vís- indakenningar og hljóta því að hafa áhrif á heimspeki. Albert Einstein fæddist í borginni Ulm í Þýzkalandi 14. marz 1879. Foreldrar hans voru Gyðingar, en fylgdu þó ekki trúarregl- um Gyðinga. Faðir hans átti litla verksmiðju með bróður sínum, sem var verkfræðingur. Þessi frændi Einsteins átti mikinn þátt í að vekja áhuga hans á stærðfræði og náttúru- vísindum. 1 skóla kunni Einstein ekki vel við sig. Honum fannst kennararnir vera harðstjórar, sem reyndu að troða lærdómi í nemendurna í stað þess að vekja áhuga þeirra. Þegar hann var langt kominn með menntaskólanám, fluttist fjölskylda hans til Italíu, en hann varð eftir. Hann var samt ekki lengi í skólanum eftir það, heldur hætti námi og fór til fjölskyldu sinnar í Italíu og afsal- aði sér þýzkum borgararétti. Einstein fékk snemma áhuga á hinum furðulegu fyrirbrigðum náttúrunnar. Þegar hann var fimm ára, sýndi faðir hans honum kompásnál. Undrun hans var mikil. Nálin snerist alltaf í sömu átt, þó að ekkert sýni- legt hefði áhrif á hana. Sterkasta bernsku- minning hans var einmitt af þessu atviki. Einstein vildi öðlast skilning á náttúrunni og gefa sig að rannsóknum á fyrirbrigðum hennar. Hann áleit sig hafa bezta aðstöðu til þess, ef hann fengi kennarastöðu í eðl- isfræði og stærðfræði við æðri skóla, en til þess þurfti hann háskólapróf. Hann fór þá til Sviss og reyndi inntökupróf við tæknilega háskólann í Ziirich, en náði því ekki. Tungu- málakunnáttu hans var ábótavant, en í stærð- fræði og eðlisfræði var hann öðrum fremri. Hann fór þá í menntaskóla í Sviss, og þar kunni hann vel við sig, því að meira frjáls- ræði var þar en í þýzkum skólum. Lokapróf frá þeim skóla veitti honum svo inngöngu í tækniháskólann í Ziirich. Þar las hann eðlis- fræði og stærðfræði, en lagði meiri stund á eðlisfræðina. Honum fannst þá, að lögmál náttúrunnar væri hægt að finna með einföld- um stærðfræðilegum aðferðum. Að loknu prófi fékk hann enga viðunandi kennara- stöðu, þó að hann hefði bæði háskólapróf og væri orðinn svissneskur ríkisborgari. Loks útvegaði vinur hans honum vinnu á einka- leyfaskrifstofunni í Bern, og þar hefst hinn glæsilegi vísindaferill hans. 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.