Birtingur - 01.01.1959, Blaðsíða 89

Birtingur - 01.01.1959, Blaðsíða 89
Thor Vilhjálmsson: »Life of the rolukast“ Var ekki samþykkt á Alþingi 2. marz 1945 að drífa sig í að byggja aðalmyndaskáldi Islands Jóhannesi Sveinssyni Kjarval veglegt hús sem úulítinn vott þess að þjóðin hafi ekki þegið g'jafir hans án þess að finna til þakklætis í sín- um mörgu hjörtum sem ekki skulu númeruð hér. Hrifning um allt land. Islenzkur fram- kvæmdamaður var einu sinni sendur á ríkis- kostnað til þess að efla sín eigin viðskipta- sambönd út um lönd og treysta aðstöðu sína til að margfalda auð sinn samkvæmt lögmálinu að ríkisvaldið eflir þann mest sem duglegastur hefur verið að hjálpa sjálfum sér með því að úraga með óskilgreindum segulstálum denarana allra þeirra sem lítið hafa ofan í eina heljar- uiikla skjóðu undir sínum eigin rassi. Kaup- sýslumaður þessi ferðaðist um norðanverða álf- una og sagði: Skrítnir þessir Italir. Náttúrlega osköp elskulegir menn. En alveg galkolómögu- legir menn. Þeim finnst sko þeir séu sko búnir að gera það sem þeir ætluðu að gera um leið °g þeir hafa orð á því. Þegar þeir eru búnir að sleppa orðinu þá er það alveg gleymt sem þeir lofa að gera og svo gera þeir sko ekki nokkurn skapaðan hrærandi hlut væni minn. Frá 1945 þangað til 1957 eru 12 ár að líða, osköp hægt og rólega þumlungast þau áfram á þessu landi með sínum löngu umhugsunartæki- fserum skammdegisnóttanna og síldveiðitauga- veiklun á sumrum, sama kjaftaröflinu í þing- sölum, stundum er A ráðherra og stundum B, ekki tekst að losna við herinn þó að menn segi á einum púnkti tímans út um öll lönd: Töggur í þessum íslendingum. Nú ætla þeir að segja útlendu soldátunum að hypja sig. Og það standa útlendir ferðamenn á hafnar- bakkanum slæptir af hnattreisu og leiðir á að sjá alltaf fyrir sér við veizluborð skipssalanna hin sömu andlit innblástursskortsins og: það vildi ég guð gæfi okkur að fá að sjá eitthvað nýtt. Er þá hægt að trekkja þann mannskap upp og gefa honum tækifæri nýs lífs með því að marséra með hann í Kjarvalshöllina góðu. Rien á faire, þú gerir slag í því. Og þá eru 12 ár liðin. Allt í einu man einhver eftir Kjar- valshúsinu. Menntamálaráðherrann lætur skola úr hanastélsstaukunum frá því daginn áður, lætur hringja i gestina frá því í gær: jæja þá er það hann Kjarval í dag, segir hann. Og gestirnir koma með kulnaðar glæður gærdags- ins i augum heilsast með handabandi og sjá að það er nýr maður kominn í hópinn. Ha, hann Kjarval? hugsa þeir. Jú, nú ætlum við að fara að byggja hús handa meistara Kjarval, höll fyrir Kjarval, Kjarvals- borg. Jahá, segja veizlugestirnir og fá meira hanastél í silfurbikarana, lifna ofurlítið og segja húrra. Bravó fyrir Kjarval, segja þeir. Húrra fyrir Kjarval, segja þeir og finna hinn hikandi eld hanastélsins breiðast um tómlegt kviðarholið, vefjast um umkomulausan tæting kótelettunnar, renna sér eins og fýrverkerí um iðrin og einn og einn hugsar til þess að hann hefði kannski heldur átt að fá sér buff tartar. Skál, takk fyrir mig, takk fyrir þig og takk takk fyrir Kjarval. Birtingur 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.