X IOLIFUR Kosníngablað Framsóknarfélags Reykjavíkur I. árg. Reykjavík, fimtudaginn 19. des. 1929. 1. biað. -iistiii.il 1. Hermann Jónasson lögreglustjóri, Amtmannsstíg í. 2. Páll E. Ólason próíessor, Lindargötu 28. 3. Fiú ASalbjörg Sigurðardóttir Laugarnesi. 4. Helgi Briem skattstjóri, Marargötu 31 5. SigurSur SigurBsson búnaðarmálastjóri, Lækjarg. 14. 6. Benedikt Sveirtsson alþingismaður, Skólv.st. 11 A. 7. GuSmundur Thóroddsen prófessor, Fjólugötu 13. 8. Valtýr Blöndal bankaritari, Njálsgötu 10 A. 9. Sigurður Kristinsson forstjóri, Nönnugötu 1. 10. Björn Bögnvaldsson trésmiður, Hallveigarstíg 8. 11. Helgi Hjörvar kennari, Aðalstræti 8. 12. Sigursteinn Magnússon fulltrúi, Laugaveg 42. 13. GuSmundur Guðnason gullsmiður, Óðinsgötu 8A. 14. Jón Eybórsson veðurfræðingur, Marargötu 3. 15. Hilmar Stefánsson bankarjtari, Ránargötu 34. 16. Magnús Stefánsson afgreiðslumaður, Sunnuhvoli. 17. Helgi Bergs forstjóri, Skólavörðustíg 30. 18. Júlíus Guðmundsson stórkaupmaður, Ránargötu 6. 19. Guðjón GuSjónsson kennari, Tjarnargötu 47. 20. GuSmundur Kr. GuSmundsson bókhaldari, Bergstaðastræti 80. 21. Svavar GuSmundsson fulltrúi, Hverfisgötu 21. 22. Jóhann Hjörleifsson verkstjóri, Sólvallagötu 17. 23. DavíS Árnason rafvirki, Skólavörðustíg 5. 24. Eggert Jónsson kaupm. fré Rauðsgili, Óðinsg. 30. 25. Kristinn Kjartansson trésmiður Baldursgötu 4. 26. Jón pórðarson prentari, Framnesveg 16 B. 27. Hallgrímur Hallgrimsson bókavörður, Laufásveg 20. 28. Ásgeir Asgeirsson fræðslumálastjóri, Laufási. 29. Jón Árnason framkv.stj., Laufásveg 71. 30. Björn pórðarson lögmaður, Bjarkargötu 16. tefuuskrá Framsókn.arfélag'S Reykjavíkur Á fundi í Sambandshúsinu mánu- daginn 9 þ. m. samþykti Framsóknar- /elag Reukjavíkur eftirfarandi stefnu- skrá í bæjarmálum: 1. Ræktun bæjarlandsins. a. Vinna að því að halda í hóflegu verði öllu ræktanlegu landi í ná- grenni bæjarins. b. Stefna að því, að á öllu ræktanlegu landi í umhverfi bæjarins rísi smá- býli, er njóti góðra samgangna við bæinn. 2. Uppeldismál og íþröttir. a. Endurbæta barnaskólann. b. Koma ungmennafræðslu bæjarins í það horf, að séð sé fyrir framhalds námi bóklegu og verklegu fyrir karla og konur eftir atvinnu- og þroskaskilyrðum lands og bæjar. c. Efna til leikvalla inni í bænum, eink- um í hinum þéttþygðari hverfum, fyrir börn. d. Vinna að því að gera landið frá suðurenda Tjarnarinnar, alt suður að Skerjafirði, og þar með talda öskjuhlíðina, að opinberum skemti- stað fyrir borgarbúa. Skulu þar vera gangstígar, og margskonar leikvellir fyrir börn og unglinga. e. Gera við Fossvog bátastöð fyrir bæjarbúa. f. Styðja að því að sundment og al- mennar útiíþróttir verði stundaðar af bæjarbúum undir hentugum skil- yrðum. 3. Heilbrigðisntál. a. Koma á auknu hreinlæti í bænum, bæði um útlit húsa, lóða og stræta. b. Vinna að því að götur séu skipu- lega lagðar, og nægilega breiðar, þegar miðað er við þarfir bæjar, sem á fyrir sér að stækka. 4. Húsagerð. Stuðla að því að heimili bæjarbúa verði ódýrari og fegurri en nú m. a. með því að koma á sameiginleg- um, ódýrum flutningi á innlendu efni á byggingarstaðinn, með góð- um fyrirmyndum af nýtískuheimil- um og með því að garður sé við hvert hús. álög- b. Skattamál og f jármál. a. Vinna á móti ósanngjörnum um á bæjarbúa. Gera skattaálagninguna réttláta eft- ir efnum og ástæðum borgaranna. c. Láta viðhafa ráðdeild og hagsýni í allri meðferð á fé bæjarins. Þurfamannamál. Koma á skynsamlegu aðhaldi um eyðslu úr bæjarsjóði til þurfamanna og um vinnubrögð þurfalinga. Atvinnumál. a. Vinna að því að skapa með smáiðnaði sjálfstætt atvinnulíf fyrir fólk, sem nú tekur ekki þátt í framleiðslunni, af því að það vantar viðfangsefni. b. Vinna að umbótum á garðrækt í umhverfi og nágrenni bæjarins og gera hana að sjálfstæðum atvinnu- vegi (sbr. 1. lið a.). »¦ j 9 & Með B-Iistanum, sem borinn er fram af félagi Framsóknarmanna í bænum og af mörgum af helstu áhugamönnum frjáls- lynda félagsins, þeim mönnum, sem ekM vildu hverfa yfir í herbúðir Morgunblaðs- ins síðastliðið vor, hefst nýr þáttur í sögu bæjarins. Miðstétt bæjarins fylkir sér um þennan lista og um stefnu hans. Fram. að þessu hafa öfgastefnurnar deilt. Annars- vegar þröngsýnir og úrræðalausir odd- borgarar, en á hinn bóginn ógætinn og reynslulítill flokkur hinna svokölluðu ör- eiga. Það er nú meira en mál til komið, að þeir menn láti til sín taka hér í Reykja- vík, sem eiga hugsjónir, vit og vilja til þess að vinna að hollri og eðlilegri þróun bæjarins. Það getur heldur engum dulist, sem les stefnuskrá B-listans, að sá flokk- ur manna, sem að honum stendur, hefir tekið sér fyrir hendur mörg og þýðingar- mikil viðfangsefni. Ein af höfuðsyndum núverandi ráða- manna Reykjavíkur er frámunalegt hirðu- leysi um landeign bæjarins. M. a. sýnist þeim hafa verið nauða illa við, að bærinn ætti verðmætar lóðir. Mestur hluti bæjar- landsins er óræktaður og til lítilla nytja, Engin tilraun er gerð til að láta framleiða á þessu landi mjólk handa bæjarbúum. 5