INGÓLFUR arstjóra sjálfan þar á eftir, þá hefði þessi hálfrar miljónar fagnaðarboðskap- ur aldrei verið fluttur, heldur hefði Ihald og Bolsar" fallist í faðma um miljón króna hækkunina á útsvörum bæjarbúa árið 1930. Bæjarbúar ættu að gera það vandlega upp við sig, áður en þeir ganga til bæjar- stjórnarkosninganna, hvort ekki væri ráðlegt að lofa sem allra flestum fulltrú- um íhaídsmanna og jafnaðarmanna að taka sér hvíld frá stjórn bæjarmálanna um nokkurra ára skeið. Ættu kjósend- ur að vera þess minnugir yið næstu bæj- arstjórnarkosningar, hvaða nýársgjöf þessir tveir flokkar ætluðu að gefa bæjar- búum. Það var miljón króna hækkun á útsvör- unum 1930. i ------o------ Fylgi B-listans. Á því er enginn vafi, að listi Framsókn- arfélagsins fær mjög mikið fylgi við bæj- arstjórnarkosningarnar 25. janúar. Ber márgt til. 1 fyrsta lagi er það alment við- urkent um listann, að þar sé valinn mað- ur í hverju rúmi. Af þéirri ástæðu hlýt- ur listinn vitanlega atkvæði þeirra manna, sem eingöngu kjósa eftir hæfi- leikum, en ekki eftir flokkum. Er oftast margt slíkra kjósenda með hverri þjóð, og mynda þeir stundum holt jafnvægi gegn flokksákafanum, þegar hann nær hámarki sínu. í öðru lagi er hér í bæ f jöldi kjósenda, sem sárnauðugir hafa tekið þátt í samtökum gömlu flokkanna og gengið til kosninga með þeim vegna þess að mið- flokkinn vantaði, þar sem þeir í raun og veru áttu heima. Það er auðsætt að sæmi- lega óeigingjörnum áhugamönnum hlýtur að vera alveg ólíft í íhaldsflokknum. Hins- vegar eiga þeir erfitt með að sætta sig við hinar ströngu keniýsetningar og vís- indalegu skýjapólitík Jafnaðarmanna. Þessir menn kjósa líka lista Framsóknar- félagsins. B-listinn fullnægir kröfum mið- flokkskjósenda og réttdæmra flokksleys- ingja. Hann er borinn fram og skipaður gætnum hugsjónamönnum mönnum, sem þessi ungi bær þarfnast á vaxtar- árum sínum mönnunum, sem ættu að fá meirahluta í bæjarstjórn 25. jauúar 1930. Ingólf ii f kosningablað Framsóknarfélags Reykja*- víkur kemur út daglega eftir nýár og fram að bæjarstjórnarkosningunum 25. jan. eigi færri en 20 blöð alls. Áskrif- endur geta fengið öll blöðin fyrir 2 krón- ur, ef greitt er fyrirfram. Afgreiðslu blaðsins annast ungfrú Rannveig Þor- steinsdóttir, Sambandshúsinu (afgr. Tím- ans). ------o Áv arp til reykiríkskra borgara. Framsóknarfélag Reykjavíkur hefir ákveðið að hafa lista í kjöri við bæjar- stjórnarkosningarnar sem eiga að fara fram 25. jan. n. k. Ástæðan til að listinn er framkominn er sú, að hinir gætnari áhuga- og framfara- menn bæjarins þykjast ekki geta unað því lengur að núverandi valdhafar fari með ráðsmensku í þeim efnum, sem varða heill alls almennings í þessum bæ. Núverandi ráðamenn Reykjavíkur hafa sýnt það, að þeim er ekki trúandi fyrir aö gæta hófs í álögum á bæjarbúa. Reynsla síðustu tíma sýnir, að þeir veigra sér ekki við að leggja á bæjarbúa þyngri gjöld en landslög heimila og yfirlýsing sjálfrar ríkisstjórnarinnar þarf til að koma, til þess að forða gjaldendum frá að vera beittir ólögum. Þeim er ekki trúandi til ráðdeildar um meðferð á fé bæjarins. Það sannar hinn gegndarlausi fjáraustur til þurfamanna- framfæris og óhagkvæmt fyrirkomulag innkaupa fyrir bæinn. Þeim er ekki trúandi fyrir uppeldi og mentun barnanna í þessum bæ. Mönnum sem halda, að börnum bæjarbíia hæfi ekki annar leikvöllur veglegri en sorpið á götunum eiga ekki að hafa rétt til þess að ráða örlögum komandi kynslóðar í þessum bæ. Þeim er ekki trúandi fyrir lífi og heilsu fólksins í þessum bæ. Menn, sem ekki geta látið sér koma til hugar, að vaxandi bær með 25. þús. íbúa þurfi að eiga grænan blett, þar sem fólkið getur leitað athvarís út úr göturykinu, eiga ekki að koma ná- lægt heilbrigðismálum. Mennirnir sem neituðu reikvískska æskulýðnum urii sund- höllina, eiga aldrei framar að koma inn í bæjarstjórn. Þeim er ekki trúandi fyrir atvinnulíf- inu í þessum bæ. Mennirnir, sem láta bæjarlandið liggja óræktað, en láta flytja inn í bæinn mjólkurafurðir, egg og garð- ávexti fyrir hundruð þúsunda frá f jarlæg- um löndum eiga ekki lengur að hafa um- ráð yfir sameiginlegum eignum bæjarbúa. Heill Reykjavíkurbæjar krefst nýrrar stefnu í bæjarmálum og nýrra manna til að hafa forystu þeirra mála. Háttvirtu borgarar! Framsóknarfélag Reykjavíkur gefur ykkur, við næstu bæjarstjómarkosningar, kost á nýrri stefnu og nýjum mönnum. Stefn uþeirra manna, sem að B-listan- um standa eiga borgarar bæjarins kost á að kynna sér á fremstu síðu þessa blaðs. Mennirnir, sem eiga að bera stefnu- skrána fram til sigurs eru frambjóðendur B-listans. Því er heitið á alla áhugasama borgara B-listanum til stuðnings. Allar konur og menn í Reykjavik, sem meta uppeldi barnanna sinna, heilbrigði og möguleika ungu kynslóðarinnar, vel- gengni atvinnulífsins, í stuttu máli, framtíð þessa bæjar' meir en þrengstu eiginhagsmuni eða blint fylgi við -póM- tiskar formúlur", eiga að styðja listann, sem borinn er fram af Framsóknarfélagi Reykjavíkur. \ Frambjódendiir i-listaus. Það er flesfcra manna niál hér í bænum, að val frambjóðenda á B-listanm hafi tek- ist betur en kjósendur hafa áður átt að venjast um framboðslista við bæjar- stjómarkosningar. Er sú staðreynd viður- kend af andstæðingum sem öðrum. Sann- ast það og löngum, að því aðeins er vel séð fyrir framgangi góðra mála, að þeim sé fram fylgt af hæfum mönnum. Þeir sem kunnugir ei*u undirbúningi bæjar- stjómarkosninga hér í Rvík og reipdrætti þeim, sem átt hefir sér stað innan gömlu flokkana um val frambjóðanda, þekkja engin dæmi þess, að listi hafi verið sam- þyktur jafn einhuga og B-listinn í Fram- sóknarfélagi Reykjavíkur. Ástæðan er vitanlega sú, að á listann höfðu valizt þeir einir, sem mest áttu traustið. Vér brosum". Morgunblaðið í dag telur það regin- hneyksli að nokkur þúsund áhugasamra borgara, sem B-listanum fylgja, skuli leyfa sér þá ósvinnu! að fara fram á í- hlutunarrétt um bæjarmál. Virðist það vera óhagganleg trú blaðsins, að Knud borgarstjóri og menn, sem hann er vel við, séu af forsjoninni kjömir til 'yfirráða í þessum bæ. Blaðið brigslar Framsóknar- mönnum um þekkingarleysi á högum Reykjavíkur. Ritstjórar Mbl., sem alment eru taldir nokurskonar authoriseruð" flón hér í bænum, þykjast víst einir hafa vita á bæjarmálum! Vér brosum". Kjósendur 6-listans. eru ámintir um að gæta þess að þeir séu á kjörskrá. Kosningaskrifstofan gefur allar upplýsingar um kjörskrána og leið- beinir um kærur.