Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 11

Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 11
sjálft stendur að baki útgáfunnar og leggur árlega nokkurn skerf til hennar, eins og kunnugt er. Hygg ég, að flestir kaupendur blaðsins telji það betur ráð- ið, að hækka verð þess en að draga saman seglin á þann hátt, sem áður er getið, enda þótt kaupendur verði við þessa hækkun 15 krónum óríkari ár- lega en ella. Þá má og á það minna, að langflestir áskrifendur blaðsins eru ó- beinlínis útgefendur þess, þar sem fjöldinn allur af þeim konum, sem blaðið kaupa, eru meðlimir i einhverri félagsdeild innan K. í. — Með því að greiða hærra áskriftarverð eru konur því í raun réttri að rétta hlut síns eig- in útgáfurits. Á þetta hefur oftar en einu sinni verið drepið í þessu blaði og verður því ekki fleiri orðum um það farið að þessu sinni. Eitt atriði varðandi áskriftarverð blaðsins má ekki láta óumtalað hér. Er skorað á sem flesta formenn kvenfé- laga að láta taka það til umræðu og at- hugunar á félagsfundi. Þetta ákvæði, samþykkt á stjórnarfundi K. f., er á þá leið, að ef kvenfélag kaupir blaðið handa öllum, sem í félaginu eru og greiðir svo andvirðið í einu lagi, er heimilt að lækka verðið í 40 krónm-. Eins og málum er háttað nú, er aðeins eitt félag, sem notið getur þessara hlunninda. Hver veit nema fleiri fé- lög vilji nota það, þegar þau ræða og íhuga málið. Formaður kvenfélags Lágafellssóknar, en það er félagið, sem kaupir blaðið handa meðlimum sínum, telur þessa tilhögun hafa talsverð örf- andi áhrif á félagslífið. Vitanlega verða þau félög, sem þennan kost taka, að hækka árgjald félagskvenna. Þá er enn eitt, sem ég vil nota tæki- færið til að benda á. Ákveðið hefur verið að færa gjalddaga blaðsins fram þannig, að nú er ætlast til að gjald- dagi sé fyrir 1. júlí ár hvert i staðinn fyrir 1. október áður. Orsök til þess- arar breytingar er sú, að þess hefur nokkuð gætt, að blaðið ætti of mikið útistandandi hjá kaupendum um hver áramót. En sé hinn rétti gjalddagi 1. júlí, ætti að vera hægara fyrir ein- staklinga og útsölukonur eða félög að greiða hvern árgang fyrir áramót. Að endingu vil ég svo í nafni rit- stjórnarinnar mælast til þess að les- endur láti okkur í té óskir sínar um efnisval, ef þeir eru óánægðir með ein- hverja af hinum föstu þáttum blaðsins eða óska eftir að fá eitthvað sérstakt flutt í þeim. Þá ættu og konur að minn- ast þess, að ,,Húsfreyjan“ er fús til að taka við því, er þær kunna að óska að koma á framfæri í blaðinu. Fyrirspurn- um um ýmis efni mundi einnig verða leitast við að svara eftir beztu getu um sérhvað það, er varðar starfssvið hús- freyjunnar á heimili hennar og jafn- vel fleira. húspreyjan 11

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.