Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 13

Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 13
Um bækur Andlit Asíu eftir Rannveigu Tómasdóttur Jafnvel áður en unnizt hefur tími til að lesa orð i þessari bók, vekur hún at- hygli fyrir fágætlega skemmtilegan frá- gang, því auk rithöfundarins hefur önnu- ur kona lagt hönd að verki um gjörð bók- arinnar. Er það Barbara Árnason listmál- ari, sem nú gerir listrænastar bókaskreyt- ingar hérlendis. Rannveig Tómasdóttir mun víðförlust íslenzkra kvenna, en það útaf fyrir sig, gefur bókinni ekki gildi, heldur það, að hún ferðast með opin augu og eyru og undirbýr sig með bókalestri áður en hver ferð er farin, svo að hún veit skil á lönd- um og menningu þeirra, áður en hún kemur á hvern stað. Frásagnir þessarar bókar eru frá Ind- landi, Kashmir, Nepal, Ceylon, Thai- landi. Cambodiu og Sovétlýðveldunum í Mið-Asíu. Ekkert af þessum landssvæð- um eru í alfaraleið íslendinga og þvi margt nýstárlegt þaðan að heyra. Rann- veig lýsir þáttum þjóðlífs og menningar, persónureynslu og kynnum við einstakl- inga. Hún er sjálf hlédræg, stundum næstum um of, því hún hefur ýmislegt fleira að segja af eigin reynslu, en fram kemur í bókinni. Ef ég ætti að nefna einn kafla bókarinnar öðrum fremur, sem dæmi um hvar höfundinum tekst með ágætum að draga upp ljósa mynd, myndi ég líklega nefna kaflann um „þorp stepp- unnar". Eftir lestur þessa stutta kafla, finnst mér ég hafi sjálf komið í hirðingja- þorpið á sléttum Kazakhstan, andað að mér rykblönduðum reykjareym og séð fólkið, sem enn lifir hinu háttbundna lífi, háðu árstíðum, lítið breyttu öld fram af öld. En þetta er aðeins lítið dæmi. Bók- in er full af fróðleik og skemmtan í sexm, húsfreyjan höfundi til sóma og okkur lesendum til varanlegrar ánægju. í Ijósi minninganna eftir Sigríði Björnsdóttur frá Miklabæ I þessari bók rekur Sigríður Björns- dóttir minningar frá bernsku- og æsku- árum, segir ferðasögur, veftu* reynzlu sjálfrar sín og annarra í söguform og fest- ir á blað hugleiðingar af ýmsu tilefni. Höfundurinn er ritfær vel, gáfuð og lífsreynd. Mynd æskuheimilisins og sveit- arinnar er fjölskrúðug og eðlileg. Með skemmtilegustu köflunum þykir mér frá- sögnin af barnalestrarfélaginu. Slíkir við- burðir voru ekkert smáræði í augum sveitabarna meðan ferðalög og skemmt- analíf var fáskrúðugra en nú gerist. Heimili eins og það, sem birtist okkur í lýsingum þessarar bókar á prestsetrinu á Miklabæ, eru ekki lengur til, aðstæður allar breyttar og aldarandinn annar. Frú Sigríður segir færra af því ævi- skeiði, er hún veitti sjálf forstöðu mann- mörgu heimili, sem prestskona á Hesti í Borgarfirði, enda mun þá dagsins önn hafa verið æði aðgangshörð og fáar stundir aflögu til að festa á blað það sem á hugann kann að hafa leitað. Árið 1937 gisti ég eina nótt á Hesti og hef síðan geymt í minni mynd af húsfreyjunni, prúðmannlegri, festulegri en mildri, sem tók alókunnugum gestum með hlýrri gestrisni, þrátt fyrir annriki hásumars. Lestur bókarinnar vekur sömu hughrif, menn eru í góðum félagsskap meðan hennar er notið. Hundrað ór í þjóðminjasafni eftir dr. Kristján Eldjárn Ritgerðasafn þetta er gefið út í tilefni af aldarafmæli þjóðminjasafnsins og 13

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.