Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 15

Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 15
Eftir Charles Gross Fyrir mörgum árum var ég lögreglu- maður í Rhodesíu í Suður-Afríku. Þá var ég eitt sinn sendur út af örkinni til þess að taka fastan Hollending, sem sakaður var um margs konar misferli. Þegar ég kom inn í kofa hans, þá lá hann í rúminu. Ég greip í öxl hans og var við öllu búinn, því illt orð fór af honum. Ótti minn reyndist ástæðulaus, maðurinn var dáinn. Þar sem ég stóð og starði á hann, marraði í gólffjöl fyrir aftan mig. Ég snérist á hæli með byssu á lofti. Undir slitnum ábreiðugarmi störðu tvö móbrún, angurvær augu á mig. Þannig hitti ég Solo í fyrsta sinn og þar hófst vinátta, sem varð mér mikils virði. Solo var api — simpansi — um tveggja ára gamall. Hann var auðsjáan- lega undrandi á því, hve hægt húsbóndi hans hafði um sig, fór til hans og snart gætilega við honum og gaf um leið frá sér sönglandi hljóð. Fyrsta embættisskylda mín var að komast í síma, gefa skýrslu og sjá um að læknir framkvæmdi líkskoðun. Ég batt aftur kofadyrnar utanfrá og ætlaði að fara að sveifla mér á bak hesti mín- um, þegar ég heyrði, að barið var á gluggann. Ég leit við. Litli apinn stóð þarna og hélt á tómum diskinum sín- um. Ég snéri við, leitaði í flýti og fann brauð og mjólkurdós. Gleðidans Solo tók af allan vafa, þetta var matur að hans skapi. Meira að segja opnaði hann borðskúffuna, náði í hníf og rétti mér, svo að ég gæti skorið brauðið í sundur. Ég útbjó brauð- ið og mjólkina á diskinn. Hann þakk- aði mér með handabandi, lét diskinn á kassa, studdi hönd undir vanga og fór að borða. Hann líktist litlu gamalmenni við smáborð og virtist þungt hugsi. Ég yfirgaf hann, fór í símann, en snéri aftur eins fljótt og ég gat. Þegar ég var búinn að skrifa upp eigur hins framliðna, tók ég stól og fór með út fyr- ir dyrnar og settist á móti sólu. Solo elti mig, studdi lúkunum á hné mitt og starði á andlit mitt þessum raunmæddu augum. Þannig horfðum við drjúga stund hvor á annan og ég held, að hann hafi skynjað hlýhug minn. Hann klifr- aði upp á hné mitt, tók um hálsinn á mér með annarri framloppunni, en með hinni tók hann í hönd mína, nartaði svolítið í fingur mína og sýndi mér þar með það fyllsta trúnaðartraust, sem api kann að tjá. Þegar læknirinn var kominn og verki okkar lokið, snéri ég að apanum. „Viltu koma?“ spurði ég. Hann svipaðist um í mannauðum kofanum, fór að bólinu sinu í horninu og greip ábreiðuna sína. Þá var hann ferðbúinn. Hann teygði sig upp í ístaðið mitt, sveiflaði sér upp á skótána mína og það- an á bak fyrir aftan mig. Þannig ferð- uðumst við saman næstu þrjú árin. Solo hafði ekki einasta hermigáfu, hann gat hugsað rökrétt. Ef hann skildi ekki eitthvað í fyrstu, velti hann því fyrir sér, hrukkaði ennið, nuddaði hök- HÓSPRBYJAN 15

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.