Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 30

Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 30
Orlofsdvölin að Varmalandi Orlofsvika fyrir húsmæður í Mýra- og Borg- arfjarðarsýslu, á vegum orlofsnefnda fyrir Akra- nes, Borgarnes og sveitirnar, auk mæðrastyrks- nefndar Akraness, var haldin í barnaskólanum að Varmalandi dagana 19.—26. júní 1962. Tóku þátt í henni 27 konur, 5 úr Borgarnesi, 10 frá Akranesi og 10 úr sveitunum. Heldur var kalt í veðri þessa daga, eins og oft á þessu vori, en inni var hlýtt og vistlegt, þó voru tveir sól- bjartir indælir dagar og nutu konur þá veður- blíðunnar með því að sitja úti í brekkunni skrúð- grænni fyrir ofan skólann, liggja í sólbaði eða fara í gönguferðir um nágrennið. Konurnar voru á aldrinum frá 30 ára til 82 ára og því all sund- urleitur hópur, en það kom ekki að sök. Ánægja ríkti yfirleitt með tilhögun og viðurgjörning, enda allt i bezta lagi, Virtust þátttakendur njóta vel hvíldarinnar, lausar við amstur og áhyggjur hversdagslífsins, og kunna vel að meta þá til- breytingu, sem þarna stóð til boða, enda hver dagur eins og hátíð. Útisundlaug, sem þama er, var talsvert notuð og steypiböð í kjallara skóla- hússins þó enn meira, enda ómetanleg hressing fyrir líkama og sál. Ingveldur Guðjónsdóttir, formaður orlofs- nefndar í sveitum, var þarna fyrstu þrjá dagana og svo aftur síðustu tvo dagana og sá um aðstoð við konurnar og umsjón alla með frábærri fórn- fýsi og lipurð. Sömuleiðis var Eyvör Eyjólfsdóttir formaður mæðrastyrksnefndar á Akranesi, síð- ustu fjóra daga orlofsins og gegndi sama hlut- verki með prýði. Skólastjóri barnaskólans, Ólaf- ur Ingvarsson, var svo vinsamlegur að lána kon- unum bækur úr bókasafni Stafholtstungna, sem þarna er til húsa. Sömuleiðis sýndi hann skugga- myndir frá Ameríkuför sinni og ýmsar fleiri, eitt kvöld, og var gerður að því góður rómur. Ráðskona var Elísabet Jónsdóttir og rækti hún það hlutverk með sérlegri alúð og kost- gæfni ásamt aðstoðarstúlku sinni, Sigrúnu af sér, að tennurnar og tannholdið fá ekki það álag, sem nauðsynlegt og eðli- legt er. Tennurnar verða óhreinar og tannholdið bólgið. Tennurnar losna jafn- vel og detta úr vegna notkunarleysis. Auk þess verður meltingin öll erfiðari og ófullkomnari. Þeim tíma væri ekki illa varið, sem notaður væri í að kenna börnum í barnaskólum að tyggja fæðuna, því að Kristjánsdóttur. Skemmtanir voru þarna í þrjú kvöld og sáu konur úr orlofsnefndum um skemmtiatriði til skiftis, eitt kvöld hver nefnd. Auk þess var á miðvikudagskvöldið, þ. 20. júní smá-leikþáttur leikinn af þeim Sigurbjörgu Sig- urðardóttur, Króki og Guðrúnu Jónasdóttur Akranesi, getraunaþáttur, upplestur og smáveg- is annað til skemmtunar undir umsjá Ingveldar Guðjónsdóttur. Spilað var á spil, setið með handavinnu, hiustað á útvarp og sitthvað annað um hönd haft til dægradvalar. Guðrún Arna- dóttir, formaður orlofsnefndar Borgarness, kom tvisvar í heimsókn meðan Ingveldur var fjarver- andi og dvaldi um stund til umsjónar og að- stoðar. Fimmtudagskvöldið 21. júní var spiluð félags- vist á vegum orlofsnefndar Borgarness. Stjórn- endur voru Guðrún Árnadóttir og Margrét Gísladóttir. Verðlaun hlutu þessar konur: 1. verðlaun: Sigurbjörg Sigurðardóttir og Guð- rún Jónasdóttir, þær sömu sem skemmtu með leikþætti kvöldið áður, og þótti það einkennileg tilviljun og vel til fallið. 2. verðlaun hlutu Anna Jónsdóttir, Akranesi og Ragnheiður Ólafsdóttir, Borgarnesi. Sunnudagskvöldið 24. júní var kvöldvaka á vegum orlofsnefndar Borgarness, og orlofs- og mæðrastyrksnefndar Akraness. Til skemmtunar var þetta: Freyja Bjarnadóttir, Borgarnesi og Jakobína Hallsdóttir, sama stað, léku smá-leikþátt, Eygló Gamalíelsdóttir, Akra- nesi las upp kvæði, Herdís Ólafsdóttir las upp sögu, þá léku þær Herdis Ólafsdóttir og Ásgerð- ur Gísladóttir, Akranesi, smá-leikþátt: kvenrétt- indakonu frá Grænlandi, dverg, sem hélt fyrir- lestur um áhugamál sín. Ennfremur sýndi Ás- gerður ágætar skuggamyndir frá ýmsum fögrum stöðum hér á landi. Sigríður Sigurðardóttir Akranesi stjórnaði almennum söng, lék á orgel og söng milli skemmtiatriða. Spurningaþáttur, Já eða Nei, var á vegum ástandið er sízt betra hjá okkur í þess- um efnum en t. d. Norðmönnum og Sví- um, áður en þeir tóku skipulega á þess- um málum. Einmitt nú er auðvelt að kenna þetta, þegar það sjálfsagða fyrir- komulag er að komast á, að börnin fá mjólk í skólunum og borða bitann sinn með, í stað þess að hlaupa út í næstu búð, drekka gosdrykki og borða vínar- brauð. 30 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.