Húsfreyjan - 01.10.1967, Blaðsíða 29
mislitir dúkar, og væri þetta athugandi
fyrir konur eða kvenféliig, sem liug liafa
á að útvega eða sauma altarisdúka fyrir
kirkjur sínar.
Á miðjum altarisdúknufn frá Laufási er
svonefnt fangamark Krists, I H S, í skraut-
legri umgerð. Tákn þetta er myndað af
fyrstu þremur stöfunum í nafni Jesú á
grísku, sem á því máli er skrifað Ihsus
eða öllu heldur Ilicuc. Táknið er fremnr
ungt, því að það mun ekki liafa komið
fram fyrr en á 15. öhl, er heilagur Berna-
dín frá Síena tók það upp. Á myndum er
dýrlingurinn oft látinn lialda á spjaldi eða
sólartákni með áletruninni I H S.
Fangamarkið á Laufásdúknum er saurn-
að með gömlum íslenzkum krosssaumi, þ.
e. fléttusaumi, og tvöföldu þræðispori. Er
líndúkurinn fremur smágerður og sporin
saumuð alls staðar yfir þrjá þræði. Þræði-
sporin eru með sama lit og fléttusaumur-
inn næst þeim.
Fangamark Krists má finna víðar í ís-
lenzkum útsaumi og sjónahókum. Til við-
hótar uppdrættinum af Laufásdúknum
hirtast hér fimm mismunandi gerðir. Er
ein teiknuð eftir miðmunstri á silkisaum-
uðum kaleiksklúti frá Reynivallakirkju
(Þjms. 7154), en fjórar eru úr gamalli
sjónahók í Þjóðminjasafni (Þjms. 1105).
Eru þær öllu látlausari og kynnu að henta
betur en hið fyrrgreinda, ef ætltmin er að
nota fangamörkin með öðrum munstrum.
E. E. G.
IIÚSFREYJAN
23