Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 11

Vera - 01.10.1982, Blaðsíða 11
Fjölskyldan hefur, eins og allir vita, tekið mjög miklwn breytingum síðastliðna áratugi. Fyrir tíma iðnbyltingar og þéttbýlisþróunar var at- vinnu- og fjölskyldulíf nánast eitt og hið sama. Pví næst öll verðmœtasköp- ttn þjóðfélagsins fór fram á vettvangi heimilis og fjölskyldu. í dag er þessu öðruvísi farið og vísar heimilið nú ífæstum tilvikum til vinnunnar. En það er ekki bara vinnan sem flust hefur út af heimilinu. Nú er ríkisvaldið búið að taka á sína átbyrgð ýmislegt sem áður heyrði undir fjölskylduna, s. s. umönnun sjúkra og aldraðra og kennslu barna. Mörgum þykirþví að búið sé að kippa stoðunum undan því að vinna kvenna innan heimilisins geti talist fullt starf. Utivinna giftra kvenna eykst líka stöðugt, og nú er svo komið að rúmlega 80% þeirra eru útvinnandi. Ann Oakley er breskur félagsfræðingur sem gerði árið 1970 rannsókn á húsmæðrum í London. Þá kom margt athyglisvert í Ijós. 75% húsmæðr- anna kvörtuðu yfir tilbreytingarlausu og slitróttu starfi og 50% þeirra yfir því að húsverkin væru þess eðlis að þeim lyki aldrei. Einmanaleiki virtist hrjá þær margar og þœr kvörtuðu yfir lítilli virðingu sem húsmœður nytu, og nefndu í því sambandi orðatiltœkið sem allir þekkja: „Hún er nú bara húsmóðir.“ Oánægju með húsverkin gætti frekar meðalþeirra kvenna sem höfðu fengið fullnægju í því starfi sem þœr gegndu ciður en þær gerðust húsmæður. Pá kom í Ijós að konur úr verkalýðsstétt gátu betur aðlagað sig húsmóðurstarfinu en konur úr millistétt. Flestar þessara kvenna höfðu þá hugmynd að kvenfrelsiskonur hefðu engan áhuga á húsmæðrum lieldur þvert á móti, litu niður á þær. Eg rabbaði eina kvöldstund við 3 heimavinnandi liúsmæður um þeirra störf og skyldur. Pað voru þær Elinóra Guðjónsdóttir sem á 2 dætur, 4ra og 7 ára; Hanna Níelsdóttir sem á 5 ára dóttur og 4 ára son og Jónína Guðjónsdóttir en hún á tvo syni, 2ja og 7 ára. Jónína erfyrir skömmu farin út á vinnumarkaðinn aftur og gegnir þar hálfs dags starfi. Mér lék forvitni á að vita hvers vegna þessar konur hefðu valið þann kost að vera heimavinnandi nú á þeim tímum sem svo margar giftar konur vinna utan heimilisins.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.