Vera - 01.04.1983, Blaðsíða 17

Vera - 01.04.1983, Blaðsíða 17
YFIRLYSING FRA KVENNAFRAMBOÐINU I Vegna óljósra frétta í fjölmiðlum af afstöðu Kvennaframboðsins í Reykjavík til þingframboðs í komandi kosningum, vilja samtökin taka eftirfarandi fram: Félagsfundur, sem er æðsta vald í málefnum Samtaka um Kvennaframboð, tók þá ákvörðun eftir langvarandi umræður, að samtökin sem slík myndu ekki standa að framboði til Alþingis í komandi kosningum. Þessa ákvörðun samtakanna ber hins vegar ekki að skilja sem svo, að þau hafni þingframboði sem leið í barátt- unni fyrir bættri stöðu kvenna í þjóðfélaginu. Samtökin vilja minna á, að markmið þeirra er að: a) auka álirif kvenna í samfélaginu b) vekja umræðu um stöðu kvenna c) stuðla að því að viskuforði og jákvæð reynsla kvenna verði nýtt í þágu betra þjóðfélags d) berjast fyrir heimi, þar sem konur, karlar og börn standa jafnt að vígi, þar sem menning beggja kynja fær að njóta sín og kynferði hindrar engan í að sinna þeim störfum, sem hugur stefnir til e) að standa að baki þeirra fulltrúa, sem ná kjöri til borgarstjórnar af lista Kvennaframboðsins. Þessunt markmiðum hyggjast samtökin ná eftir ýmsum leiðum og á þeim starfsvettvangi sem þeim hentar hverju sinni. Að svo stöddu munu samtökin beina kröftum sínum að vettvangi borgarmála, þar sent þau hafa tekið á sig ábyrgð og skyldur og að utanþingsbaráttu, en þar munu samtökin leitast við að sameina konur um land allt til baráttu fyrir brýnustu hagsmunamálum kvenna og barna án tillits til afstöðu þeirra í landsmálum öðrum. Samtökin vilja hvetja allar konur til að liggja ekki á liði sínu í þcirri baráttu og velja sér þann vettvang, sem þær telja vænlegastan hverju sinni. Kvennaframboðið í Reykjavík. AÐ VERÐA GAMALL í REYKJAVÍK I Reykjavík býr hlutfallslega fleira gamalt fólk en á öðrum þéttbýlissvæðum landsins. Hvernig býr höfuðborgin að foreldrum sínum, ömmum og öfum — þeim, sem rutt hafa braut- ina hingað? Og hvernig er hann, sá helgi steinn, sem býður okkar, sem enn erum á yngri árum? Samkvæmt skýrslum Reykjavíkurborgar eru íbúar hennar, þeir, sem komnir eru yfir sjötugt, á bilinu 10—1 1 þúsund. Það er nær áttundi hver Reykvíkingur. í yfirliti Félagsmálastofnunar borgarinnar í febrúar koma m.a. fram aðstæður eldri borgara, sem sótt hafa um leiguhús- næði eða vistun á sjúkrastofnun eða vistheimilum á veg- um borgarinnar. Samkvæmt þeim hafa 991 ellilífeyrisþegi sótt um hús- næði eða vistun af einu eða öðru tagi hjá borginni, 761 einstaklingur og 36 hjón. Af þessunt hópi öllum búa 321 í eigin húsnæði, en er nú að sækja um vistun á sjúkra- stofnun, þar eð þau hafa ekki lengur heilsu til að annast um sig sjálf. Af þeim, sem ekki búa í eigin húsnæði eru 88 einstaklingar, sem búa hjá vinum og ættingjum, 2 búa í sumarbústað, 23 eru húsnæðislausir og urn 27 eru hreinlega ekki vitað, sem þýðir að þau búa í bráða- birgðahúsnæði eða hafa fengið inni til skamms tíma ein- hvers staðar. Af hjónunum voru 40 í leiguhúsnæði, 2 búa hjá aðstandendum, um 7 er ekki vitað og 2 eru húsnæðislaus. En hver eru kjör þeirra sem búa annað hvort í leigu- húsnæði eða eigin húsnæði? Svörin eru þessi: í kjallaraíbúð búa........ I risi búa................ í einu herbergi búa....... Í húsnæði með lítilli sem engri hreinlætisaðstöðu búa..................... Við erfiða stiga búa ..... í ótryggu leiguhúsnæði... Flefur verið sagt upp húsnæði og veit ekki hvert skal fara........... 85 einstaklingar lOhjón 35 - 4 - 78 - 80 einstaklingar 12hjón 166 - 48 - 75 - 6 - 35 einstaklingar 7 hjón Algjörir einstæðingar, þ.e. gamalt fólk án ættingja eru úr hópnum 98 einstaklingar og ein hjón. Eigið húsnæði Eins og fram kom áðan, búa 321 úr hópnum í eigin húsnæði. Mörgum kann að þykja, að þau séu þá nokkuð vel sett, alla vega vofir ekki yfir þeint burtrekstur og húsnæðisleysi. Mörgum kann enda að bvkja að lausnin sé sú að gefa gamla fólkinu kost á „að minnka við sig“ eins og það er kallað, eða þá að auka framboð á leigu- húsnæði, byggja íbúðir fyrir aldraða annað hvort til kaups eða leigu. En það er alveg ljóst að súlausnnær skclfing skantml. Hár aldur, ellihrumleiki eða veikindi gera það að verkum að húsnæöið eitt gagnar lítið heldur vantar þjónustu, hjúkrun og umönnun. Stefnan hefur verið sú að veita slíka þjónustu eftir fremsta megni með heimilishjálp og heimilishjúkrun. En þetta dugir ekki lengur. Brýnasta þörfin er fyrir fleiri sjúkradeildir. Leigu- eða eignaríbúðir handa aldraða fólkinu eru ekki í takt við þann raunveruleika, sem við blasir. 17 fi

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.