Vera


Vera - 01.12.1988, Blaðsíða 27

Vera - 01.12.1988, Blaðsíða 27
„Bæði konur og karlar eru að verða að fólki" Samtal við Herbjörgu Wassmo Herbjörg Vassmo hefur alið all- an sinn aldur í Norður-Noregi, frd Bodö í suðri til Harstad í norðri. Mannlíf og menning Norður-Noregs er ekki ósvipuð okkar íslensku eyjamenningu, að borgarmenningu suðvestur- hornsins frdtaldri. Líf fólks er hdð fiskinum í sjónum og óblíð ndttúra setur sín spor d mann- eskjuna. Herbjörg kemur okkur ekki ókunnuglega fyrir sjónir. Við fyrstu sýn er hún hlédræg og dólítið feimin, getur jafnvel virk- að hrjúf, en þegar minnst varir brýst hlýjan og alúðleikinn í gegn. Herbjörg gæti því allt eins verið húsmóðir í sjóvar- þorpi vestur ó fjörðum. Eins og í íslenskum sjóvar- plóssum er kvennamenningin sterk því vegna langra fjarvista karlanna ó sjónum er það hlut- verk kvennanna að halda lífi og starfi gangandi í landi. Sem barn gekk Herbjörg með þann draum í maganum að verða myndlistar- maður en töluglöggur og hagsýnn faðir hennar réði henni eindregið fró þeim hé- góma, slíkt myndi nú lítið gefa af sér. Þess í stað menntaði hún sig í uppeldisfræðum og gerðist kennari. Herbjörg hefur starfað við ýmsa grunnskóla í Norður-Noregi samhliða ritstörfum. Seinustu árin hefur hún hins vegar getað nelgað sig þeim eingöngu. „Húsið með blindu glersvölunum" er fyrsta bindið af þremur sem fjalla um stúlk- una Þóru. Þóra er „lausaleiksbarn" norskrar konu og þýsks hermanns. (Það er ekki úr vegi að minna á að þó að hlut- skipti svokallaðra „ástandsbarna" hafi ekki verið neinn dans á rósum hér á Is- landi má fullyrða að það hafi verið leikur einn ef borið er saman við hlutskipti þeirra barna sem áttu ,,óvin" að föður). Neðar var varla hægt að komast í mannfélags- stiganum og ekki bætti það stöðu hennar að móðirin lætur bugast af ofsóknum „rétttrúaðra" Norðmanna og þrælar sér áfram með niðurbrotna sjálfsmynd. En þar með er ekki öll sagan sögð. Móðir Þóru giftist Henrik, áfengissjúklingi og stríðs- krypplingi sem misnotar Þóru kynferðis- lega. f stuttu máli fjallar þríleikurinn um líf þessarar telpu og baráttu hennar við ör- lög sín. Myndlistarkonan kemur glöggt fram í bókum Herbjargar. Myndmálið er mjög ríkt, sterkt og frumlegt: „Venjulega voru augu móður hennar stór og grænleit með 27

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.