Vera - 01.05.1994, Blaðsíða 22

Vera - 01.05.1994, Blaðsíða 22
„ÞETTA ER ALVÖRU BISSNESS" Margar okkar telja hann hafa aukió kon- um meira sjálfstraust og þor en allt okkar kvenréttindabrölt. Heiðar Jónsson hefur helgað líf sitt konum og fegurð kvenna, allra kvenna. „ Við eigum að sannfœra fólk um að við erum jafn falleg og við ákveðum sjálf því fegurðin kemur innan frá Hver er þá tilgangur feguröar- samkeppna? - Tilgangurinn var annar en nú. Kvenímyndin fyrir tíma kvenréttindabar- áttu var allt önnur og sú hugsun sem þá var að baki fegurðarkeppnum myndi konum í dag þykja niðurlægjandi. Síðan hafa þessar keppnir snúist upp í það að vera atvinnumöguleiki og stúlkumar em með það í huga að ná sér í vinnu í tísku- heiminum eða sýningabransanum. En nú segja margar stelpur sem hafa veriö í þessu að feg- urðarsamkeppni og fyrirsætu- keppni sé tvennt ólíkt! - Það er rétt en fegurðarsamkeppni er í raun fyrirsætukeppni líka og nú er þessi sýninga- bransi orðinn svo miklu stærri en bara fyrir tískusýningarstúlkur - og þetta er náttúrlega stökkpallur fyrir svo margt annað. Það sem Is- lendingar misskilja endalaust í sambandi við fegurðarsamkeppni er að þeir halda alltaf að það sé verið að velja voða sæta stúlku fyrir Is- land og Islendinga. Dómnefnd er uppálagt að spekúlera í því hvort þessar stúlkur nái langt í erlendum keppnum. Þetta er alvöru bissness og það er ekki verið að velja litla sæta stúlku sem hugnast Gróu í Eskihlíð 5. Er okkur Gróu ekki m.a. sagt að verið sé a& velja stúlkur sem geta selt fisk? - Jú, en þær þurfa jú að komast í toppsæti til þess. Þær Hófí og Linda eru með þekktari ís- lendingum og þetta er náttúrlega gífurleg land- kynning þegar svona vel tekst til og mikill sómi að. Er þetta æskileg landkynning? - Mjög svo, vegna þess að hér býr gífurlega fal- legt fólk og það vekur athygli víða um heim hvað stúlkunum okkar gengur vel, meira en all- ar íþróttakeppnir. Ahorfendur sjá að hér eru ekki neinir molbúar, eskimóar eða þriðjaheims fólk, heldur eru það þessar glæsilegu stúlkur sem birtast á skjánum. Og þá vakna spumingar eins og „hvar er þetta Island?" Þessar stúlkur Hciðar Jónsson Ljósm. Jim Smart koma vel fyrir, tala yffrleitt fullkomna ensku og sýna að hér býr hámenntað fólk, þannig að ég held að fólk fari að spekúlera í menningu okkar. Hér er alvara að baki undirbúningi fegurð- ardrottninga. Þó þær fari í dálítið mikla megrun þá læra þær óskaplega mikið um líkama sinn. Undirbúningurinn er þannig menntun út af fyrir sig, sem þær búa að alla ævi. Það sem fegurðarsamkeppni er fyrir mér er í rauninni hægt að taka saman í svolitla sögu. Eg þekki til stúlku sem var fúlltrúi sinnar sýslu í Ungfrú Islandskeppni fyrir nokkrum árum. Hún vann þá sem þjónn á veitingahúsi og var með strák sem barði hana alltaf þegar hann var fullur. Að keppninni lokinni fór hún aftur heim, hringdi í piltinn og bað hann að ná sér í aðra dömu til að berja. Hún var bara með grunnskólapróf en fór þama stuttu síðar utan í listnám, gerðist svo tungumálakennari í fram- haldsskóla að þeirri dvöl lokinni. Þar sá hún hvað hún gat og núna er þessi stúlka í háskóla- námi í Bandaríkjunum. Hún sagði við mig, „ef ég hefði ekki farið í þessa keppni þá væri ég þriggja bama móðir og væri komin í uppvaskið þama á veitingastaðnum, af því að ég væri alltaf blá og marin. Eg hefði aldrei rifið mig upp úr þessu“. Þama kemur nefnilega hin hliðin á fegurðarsamkeppnum. Það er breytt viðhorf stúlkunnar til sjálfrar sín og auknar kröfúr til lífsins. Þetta segir nú kannski meira um þjóðfélagið heldur en feg- urðarsamkeppnina? - Já, það gerir það nefnilega og ástæðan fyrir því að ég styð þessa keppni liggur í þessari sögu. Og ég hef þekkt óskaplega mikið af svona stelpum, sem hafa verið lauslátar og ekki vandar að virðingu sinni og farið í þessa keppni og tekið algjömm stakkaskiptum. En fyndist þér ekki æskilegt aó þetta uppeldi færi fram annars staðar? - Það væri mjög æskilegt að þessi útlits- þjálfun færi fram í skólunum, fyrir bæði kynin. Þetta er nú svolítið að breytast. Þeir fyrirlestrar sem ég hef verið með í skólunum byggja svolítið á því. En hver ókveður ab hvers kon- ar útliti skuli leita í hvert sinn? - Eigendur keppninnar á Islandi eru al- ráða hvað það varðar. Það væri náttúr- lega mikill plús ef það væri eins og í Venesúela þar sem ríkisstjórnin ákveður þetta. Ungfrú Venesúela mætir á Ungfrú heims-keppnina í forsetaþotunni ásamt 20 manna starfsliði og ef hún vinnur er frídagur og hátíðisdagur í heima- landinu við heimkomu hennar. Svona er þetta í allri Suður-Ameríku, þeir skilja hvað það felst mikil landkynning í þessu. En ef hún tapar? - Þá heyrist ekkert ógurlega mikið. En þú sérð hins vegar að ungfrú Venesúela er alltaf í úr- slitum, það er lagt það mikið undir og þær em mikið þjálfaðar. Þetta segir okkur að þessar spænskumælandi þjóðir fylgjast óskaplega grannt með þessu og þaó em því milljónir sem horfa á fegurðardrottningu íslands þegar hún birtist á skjánum sem sigurvegari. En hvab segirbu um þessar feg- urbarímyndir sem síast inn hjó ung- lingsstelpum ó vibkvæmum aldri? - Þarna kemur í raun engin fegurðarímynd í gegn. Og fólk er alltaf að gera sér betur grein fyrir því að fegurðin kemur innan frá og ytri fegurð sem hægt er að hafa laun fyrir er annað. Heldurðu ab stelpur ó vibkvæmum aldri skilji þarna ó milli? Ja, já, stelpur em mikið meira að spekúlera í sinu persónulega útliti heldur en að apa eftir eða dreyma svona drauma. En svo em sumar sem hafa áhuga á þessu og þá er mjög eðlilegt að þær eignist sínar fyrirmyndir. Utlitsbransinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.