RITMENNT 5 (2000| 9^(7 Lll liLLZXU. Birgir Þórðarson á Öngulsstöðum Eggert Ó. Gunnarsson Getið í eyður gamalla blaða* í þætti þessum er fjallað um tvö gömul handrit og reynt að gera grein fyrir uppruna þeirra. Annars vegar er um að ræða minnisbók um verslun og viðskipti og hins vegar dagbókarbrot úr utanlandsferð. Færð eru rök að því hver sé skrásetjari þessara hand- rita og leitað skýringa á mönnum og málcfnum scm þar eru tekin til umfjöllunar. Ifórum ritara þessa þáttar er gömul og velkt minnisbók, heimagerð. Spjöld hennar eru úr tvöföldum þunnum pappa og blöðin, 34 að tölu, úr tvenns konar pappír, 14 úr hvítum en 20 blöð eru ljósblá. Þau eru óstrikuð og ótölusett. Stærð bókarinn- ar er sem næst 10,5x8,5 sm. Á fyrstu síðu bókarinnar, sem er nokkurs konar titilblað, hef- ur eigandinn skrifað: Minnisblöð mín frá níjári 1858 til níárs 1859 og - hefur þar væntanlega átt að bæta við tímasetningu á lokafærslum í bókina en farist fyrir. Bókin er sem næst fullskrif- uð af minnisatriðum eiganda hennar, um margvísleg viðskipti hans við ýmsa menn og konur. Bókin sjálf er hvergi merkt eig- anda eða notanda, en af heimilisföngum þeirra sem bókareigand- inn hefur haft viðskipti við má ljóst vera að hann hefur verið bú- settur í Fnjóskadal. Þá er aftast í bókinni laust blað, sem trúlega hefur ekki verið í henni í upphafi. Virðist það vera með sömu skrift og færslur í sama formi og á blöðum bókarinnar. Aftan við færslurnar á því blaði hefur ritarinn merkt sér það með E Ó Gunnars. Beinast þá allar líkur að því að ritari bókarinnar sé enginn annar en Eggert Ólafur Gunnarsson, sem var einn af þekktari mönnum þjóðarinnar á síðari hluta 19. aldar, en er nú flestum I'jóóininjosafn Islancls. Eggert Ólafur Gunnarsson. Sérstakar þakkir eru færðar Kristjáni Sigfússyni á Ytra-Hóli og Aðalbjörgu Sigmarsdóttur, safnverði á Akureyri, fyrir aðstoð við að afla upplýsinga um fólk scm nafngreint er í handritunum.