Ljósmæðrablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 14
Ljósmæðraþan kar
í bók sinni, “Sensitive midwifery”, skrifar Caroline Flinr um þá þætti sem henni
finnst að skapi nærgætna ljósmóður. En í skilgreiningunni felst að ljósmóðirin sé
ekki aðeins vel að sér faglegri umönnun; greiningu, meðferð og aðgerðum, heldur
einnig að hún sé fær í mannlegum samskiptum og kunni að meta hverja einstaka
reynslu í starfi sem sérstæðan atburð. Þá er ekki er síður mikilvægt að ljósmóðirin
viðurkenni hæfileika sína, sé meðvituð um eigin veikleika og styrk, að hún kunni að
hrósa sjálfri sér og kollegum sínum fyrir vel unnin störf, og að hún fái stuðning frá
öðrum.
Bókinni er skipt í 16 kafla og snertir hver þeirra flöt sem snýr að ljósmóðurstörfum.
Inngangurinn byrjar á umfjöllun um það sem að Ijósmæðrum snýr persónulega, þ.e.
reynslu í starfi, og mikilvægi þeirra tengsla sem myndast á milli mæðra og ljós-
mæðra. Caroline skrifar á léttu nótunum en með alvarlegu ívafi þó og er full ástæða
til að ætla að efnið eigi ekki síður erindi til íslenskra ljósmæðra en enskra.
Hér birdst fyrsti hluti af fimm þýðingum úr inngangi bókarinnar:
“Mæður og ljósmæður eru samvaxnar
líkt og síamstvíburar - sú reynsla sem
ljósmóðirin verður fyrir hefur áhrif á
konur og sú reynsla sem konur hafa að
baki hefur áhrif á Ijósmóðurina.
Ljósmæður þurfa að vera sterkar, blíðar
og vakandi fyrir þörfum kvenna; og
aðeins þá finna konur fyrir öryggistil-
finningu við hina ýmsu atburði sem
tengjast eða umkringja barnsfæðingu.
Konan gleymir aldrei ljósmóðurinni
sinni. Mörgum árum seinna man hún
greinilega hvað ljósmóðirin sagði, hvað
hún gerði, og hvernig hún brást við.
Hvernig ljósmóðirin annast hana kann
að hafa áhrif á viðhorf konunnar gagn-
vart sjálfri sér, hvernig hún lítur á sjálfa
12 --------------------------------
sig sem móður, og tilfinningu hennar
fyrir eigin kvenleika. Ljósmóðirin getur
á sama hátt haft áhrif á manninn - hún
getur stutt hann svo að hann upplifi sig
sem sterkan og öruggan í sínu nýja
hlutverki sem faðir, eða hún getur látið
líta út eins og hann sé vandræða gripur
sem sé aðeins til trafala. Ljósmóðirin er
því áhrifavaldur við fæðingu nýrrar fjöl-
skyldu - hún er þannig hornsteinn
andlegrar líðan samfélagsins í heild.
En svo ljósmæður geti veitt konum
væntumþykju og umhyggju á með-
göngu, í fæðingu og í sængurlegu þurfa
þær sjálfar að búa við ást og umhyggju.
Við vinnum á tilfinningalegu hættu-
svæði. Hvert orð, hver svipbreyting,
______________________ LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ