Ljósmæðrablaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 34
Bamamál, áhugafélag um Oö?ct og
þroska bama
Undanfari Barnamáls var sá að árið 1984 stofnuðu
nokkrar áhugasamar konur undir forystu Rannveigar
Sigurbjörnsdóttur, hjúkrunarfræðings, Ahugafélag
um brjóstagjöf í Kópavogi. Tilgangurinn með stofn-
un félagsins var að hlúa að brjóstagjöf og auka um
hana fræðslu og umræðu.
Meðal markmiða Barnamáls er að hjálpa þeim
mæðrum sem óska þess að hafa börn sín á brjósti.
Þessu er meðal annars framfylgt með störfum hjálp-
armæðra.
Upplifun kvenna af brjóstagjöf er mismunandi.
Mörgum reynist hún auðveld og hentug, en aðrar
lenda í vandræðum, sem leysa þarf til að jafnvægi
komist á. Brjóstagjöfin ætti að vera ánægjuleg fyrir
báða aðila. Mæður geta hins vegar þurft stuðning og
upplýsingar um til dæmis, hvernig leggja eigi barn
rétt á brjóst, útivinnu og brjóstagjöf, hvernig koma
megi í veg fyrir vandamál og hvernig eigi að leysa
þau.
Hjálparmæður veita ráðgjöf varðandi örðugleika
sem upp geta komið við brjóstagjöf og byggja hana á
reynslu sem þær hafa öðlast í gegn um eigin brjósta-
gjöf og fróðleik sem þær hafa meðal annars öðlast
með lestri fræðslurita. Við höfum mikið leitað til La
Leche League í Bandaríkjunum, til danska félagsins
Foreldre og födsel og norska félagsins Ammehjelpen
um nýtt fræðsluefni og hugmyndafræði.
Hjálparmæður fara ekki inn á verksvið lækna eða
hjúkrunarfólks, heldur leggja þær áherslu á að veita
stuðning og fræðslu frá móður til móður.
Félagið gerir þá kröfu að hjálparmóðir hafi reynslu
af brjóstagjöf, hafi áhuga á henni og sé tilbúin að
lesa sér til um brjóstagjöf, en umfram allt þarf hún
að vera góður hlustandi. Því reynslan hefur kennt
okkur, að virk hlustun gerir kraftaverk og leiðir oft
konuna sjálfa inn á lausn hennar tilfellis. Ráðgjöfina
veita hjálparmæðurnar í gegnum síma, en í einstaka
tilfellum er möguleiki að fá hjálparmæður heim ef
sýnt þykir að símtöl beri ekki árangur.
Barnamál hefur staðið fyrir opnu húsi undanfarin
ár í Hjallakirkju í Kópavogi, fyrsta og þriðja þriðju-
dag í mánuði klukkan 14-16. Þar hittast mæður með
börnin sín og bera saman bækur sínar. Hjálparmæður
eru á staðnum, veita ráðgjöf og aðstoð eftir þörfum,
auk þess sem stutt erindi er flutt hverju sinni.
Til þess að fá aðstoð frá hjálparmóður þarf kona
ekki að vera félagi í Barnamáli, en að sjálfsögðu er
það ósk okkar að sem flestir gerist félagar því það
eflir jú starf okkar. Allt okkar starf er unnið í sjálf-
boðavinnu og einu tekjur okkar eru af félagsgjöld-
um.
Þess má geta að með hjálp tölvupósts höfum við
möguleika á að veita íslenskum konum sem búsetar
eru erlendis aðstoð og stuðning. Nú þegar höfum við
góða reynslu af því. Bamamál hefur gefið út frétta-
og fræðsluritið Mjólkurpóstinn í 13 ár. í hverju blaði
er tekið fyrir ákveðið þema og eru greinar bæði
skrifaðar af fag- og áhugafólki. Blaðið kemur út
þrisvar á ári og fá allir félgar Barnamáls blaðið sent
til sín. Við gefum einnig út kynningarbækling með
lista yfir hjálparmæður og starfseini félagsins, en
honum er dreift inn á allar fæðingarstofnanir. Fyrr á
þessu ári var endurútgefið Sérrit okkar um brjósta-
gjöf sem er til sölu hjá félaginu og á mörgum heilsu-
gæslustöðvum og fæðingarstofnunum.
Margt hefur verið starfað á þeim árum sem liðin
eru frá stofnun félagsins, meðal annars var haldin
ráðstefna á fimm ára afmæli félagsinsl989. Um
svipað leyti var nafninu breytt í Barnamál, áhugafé-
lag um vöxt og þroska barna.
Barnamál hefur nú verið starfandi í fjórtán ár. í til-
efni af fimmtán ára afmæli félagsins á næsta ári er
stefnt að því að halda aftur veglega ráðstefnu.
Unnur B. Friðriksdóttir
Hjúkrunarfræðingur og
Formaður Barnamáls.
34
LJÓSMÆ9RABLAPIP