Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 9

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 9
I síðasta Ljósmœðrablaði kom fram að okkur hefðu áskotnast tvær ritgerðir eftir mannfrœðinema og birtist sú fyrri í síðasta blaði. Sú ritgerð fjallaði um brjóstagjöf. Hér kemur hin ritgerðin, en húnfjallar umfœðinguna. Fæðingin: Réttur barns og móður eða \>alds\>ið lceknastéttarinnar? efttr Kristján Þór Sigurðsson, mannfrðeðinema „'Kennt er máttur“ - (gamatt slagorð). Varla er hægt að hugsa sér líkam- legri reynslu en fæðinguna, bæði hvað varðar barn og móður og að sama skapi er varla til sá atburður sem er jafn afger- andi fyrir tilvist og fram- tíð hvers samfélags. Fyrir tilstilli ofbeldisfulls nátt- úrukrafts er okkur þrýst út í lífið með valdi, ötuð blóði og öðrum líkams- vessum, og engin athöfn í lífinu er jafn óafturkallan- leg og fæðingin. Við erum hér hvort sem okkur líkar það betur eða ver. í þessari ritgerð mun ég velta fyrir mér tengsl- um þessa atburðar, fæð- ingarinnar, og læknastétt- arinnar og ég mun leita svara við þeirri spurningu hvort læknarnir, sem sjálf- skipaðir fulltrúar samfé- lagsins, hafi smám saman verið að taka „fæðingar- réttinn“ af konum með valdi; valdi sem byggt er á aukinni þekkingu á líkam- anum og sérhæfmgu þeirri sem átt hefur sér stað í seinni tíð. Ég mun m.a. skoða þetta í tengslum við hugmyndir franska fræðimannsins Michel Foucaults um valdið og tengsl þess við þekkingu og notkun valds og þekkingar í þágu lækna- vísindanna. Foucault hefur rakið sögu læknavísindanna í Frakk- landi síðustu tvær aldirnar í bók sem á ensku heitir The Birth of the Clinic (1963,1994) og þar rek- ur hann þróun sérhæfingar og aukna beitingu lækna og annarra sérfræðinga á þekkingu sinni í þeim tilgangi að ná föstum tökum á viðfangsefni sínu, þ.e. sjúkl- ingnum. Hann talar um að með því að sundurliða og einangra lík- amann ásamt því að geta rýnt inn í iður hans hafi áður hulinn leynd- arheimur opnast og blasað við því sem Foucault kallar á frönsku le regard sem á ensku er þýtt sem Úr bók Michel Odent: Birth Reborn the gaze en sem ég ætla að snúa yfír á íslensku með orðinu glápi. Með glápinu og nákvæmu flokk- unarkerfi (þ.e. nýju tungumáli sem engin skildi nema þeir) hafi læknarnir náð valdi yfir sviði sem var áður utan reynslu ásamt því að ná fullu valdi yfir henni“ (ibid:xiv). Hann talar enn fremur um „...að gláp og andlit horfí auglitis til auglitis á hvort annað...“ (ibidrxv). Læknavæðing (medicalization) líkam- ans var komin á fullt. Með þekkingu sinni og tækni hafa læknavísindin náð æ sterkari tök- um á lífi og dauða og með nútíma erfðatækni eru þau á góðri leið með að taka völdin af skaparanum sjálfum. En það er önnur saga. Eins og þegar má sjá af þessu orðalagi er Foucault mjög upptek- inn af ofangreindum tengslum við vald þeirra (Foucault 1994:xii). Þeir gátu allt í einu opnað ávöxt þekk- ingarinnar, „bústað sann- leikans í hinni myrku miðju hluta sem tengdist á mótsagnakenndan hátt hinu allsráðandi valdi og ríkidæmi glápsins sem snéri myrkri þeirra í birtu“ (lausl. þýtt. ibid:xv). Foucault segir enn fremur um glápið að „það tengist á óvirkan hátt þeirri frumóvirkni sem er helguð hinu enda- lausa verki að nema alla UÓSMÆPRABLAPIÐ 9

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.