Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 15

Ljósmæðrablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 15
Hugrenningar tir lífi Ijósmóðumema: Farseel bi-jóstagjöf Umræða um ábótina hefur verið mikil og eru skiptar skoðanir hvað fagfólki finnst um hana. Hvað veldur að ábótin er notuð og hvað veldur vali á ábót? Ég hef tilheyrt þeim hópi, sem er sammála því að stundum þurfi að gefa ábót. Ég hef ekki skilið það fum og fát sem er út af ábótinni. Er hún svona mikið notuð á sængurkvennagangi? Margar konur gera sér ekki grein fyrir því að það tekur mislangan tíma tekur fyrir mjólkina að losna úr brjóstunum. Ein kona getur verið lausmjólka og fundið mikið fyrir losunarviðbragðinu á meðan önn- ur bíður og finnur ekki neitt og hefur jafnvel tekið bamið af brjósti áður en mjólkin fer að streyma til þess. Sum böm eru því lengi á brjósti jafnvel upp í eina klst. á meðan það tekur annað barn um 15 mín- útur að nærast. Það er mikilvægt að setja engin tíma- takmörk en athuga vel hvort barnið tekur vörtuna rétt og sýgur rétt (Royal College of Midwives,1991). Eftir að hafa unnið með konum í sængurlegunni hef- ur mér fundist margar konur ekki tilbúnar til að gefa sér þann tíma sem þarf, til þess að brjóstafæða bam. Ég tel að skýringin á því sé m.a.vegna þess að konur í dag hafa enga fyrirmynd sem þær geta miðað við. Konur verða að vita að barnið er mikið á brjósti fyrstu dagana og eðlilegt er að það nærist á l'/2-2 tíma fresti. Magamál nýbura er ekki stórt og melta þau matinn hratt og þurfi því áfyllingu (Royal Col- lege of Midwives,1991). Ef ábót er gefm oft verður örvun brjóstamjólkur ekki nægjanleg. Það getur því leitt til aukinna erfíðleika við brjóstagjöfina. Ljóst er að ábót getur verið hjálpartæki okkar að farsælli brjóstagjöf. Mér finnst mikilvægt að við ljósmæður vitum hvað við erum að gefa nýburunum. Abót getur falist í vatni og sykurvatni svo og þurr- mjólk. Sumir barnalæknar hafa verið á móti sykurvatni þar sem rannsóknir hafa sýnt að bömum svelgist frekar á því. Meiri líkur eru á að sykurvatn valdi skaða í lungum ef það lendir þar (sykurvatn er ekki gefið á FSA skv. bamalæknum þar.). Sally Inch (1996 1*) fjallar um þurrmjólk í mars blaði MIDIRS. Þar segir hún að breskar konur sém gefa bömum sínum pela halda að þurrmjólk og brjóstamjólk sé svipuð. Þeim finnst þægilegra að pelafæða börnin sín og því verður það fyrir valinu hjá þeim. Eflaust em margir foreldrar sem hugsa ekki út í hvað er í þurrmjólk. Inch (1996 1*) hefur tekið saman hvað er í þurrmjólk. Segir hún að þurr- mjólkurblandan hafí verið óbreytt frá 1953 - 1984. Á þessum árum var of hátt hlutfall af calcium, fosforus og magnesium í þurrmjólk. Árið 1984 var Taurine fyrst bætt út í þurrmjólkina, en það er mikilvægt fyr- ir þroska miðtaugakerfisins. Um 20 sinnum meira magni af jámi er bætt út í þurrmjólk en er í brjósta- mjólkinni. Þetta er gert þar sem upptaka járns er ekki mikil hjá nýburum. Þessi stóri skammtur getur vald- ið því að nýburinn tekur ekki upp zink og kopar. Broddur móður inniheldur hátt hlutfall af IgA allt að 5 mg/ml.. Lítið af þessu mótefni er tekið upp en þess stærsta hlutverk er að smyrja þarmavegg barns- ins og verja hann fyrir sýkingum. Þurrmjólk hefur ekkert IgA. Þar sem þessi mál eru viðkvæm er erfitt að vera með áróður... og þó ! Ég er þeirra skoðunar að gæta skuli mjög mikils hófs við ábótina. Hvort heldur er um að ræða sykurvatn eða þurrmjólk. Mér finnst um- hugsunarvert hvort með þurrmjólkurábót á sængur- kvennagangi séum við að gefa slæmt fordæmi. Pelagjöf getur verið lífshættuleg í þeim löndum þar sem mæður eru ólæsar og hafa ekki aðgang að hreinu vatni og/eða aðstöðu til að sjóða vatn (Inch,1996 1*). Þrátt fyrir að við búum í vel upplýstu og öruggu umhverfi eru ekki nema 3 ár síðan Lsp. hætti að kaupa tilbúna þurrmjólk. Þar sem sveppir höfðu ræktast í einni af sendingu af þurrmjólkinni. Þessháttar slys/mengun geta alltaf orðið við fram- leiðslu. Slys/mengun við blöndun getur líka orðið hjá foreldrum t.d. of mikið af mjólkurdufti, óhrein áhöld eða ósoðið vatn. Einnig eru þess dæmi að ný- burar hafi brennst í munni og hálsi þar sem notaður var örbylgjuofn við hitun mjólkurinnar (Inch,1996 2*). Að lokum nefnir Sally Inch (1996 2*) að við hit- un í örbylgjuofni geti orðið breyting á próteinum í mjólkinni og þau myndað eitraða blöndu sem veldur skaða á nýrum, lifur og heila nýburans. Þetta er mjög öfgakennt dæmi og er ekki nefnd nein tíðni þessara skaða. Brjóstagjöfm er gjöf sem okkur var gefin og er það besta fyrir móður og barn. En þrátt fyrir það er hún kannski ekki alltaf besti kosturinn fyrir móður og barn. Ekki geta allar konur haft barn á brjósti. Margar ástæður geta legið þar að baki. Sagt er að brjóstagjöf sé 95% sálfræðileg. Konan verður að hafa trú á sjálfri sér (Dawson, Gauld og Ridler, UÓSMÆPRABLAÐIU 15

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.