Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 12

Ljósmæðrablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 12
Fæðing meö sogkltikku eöa töng og spangarskuröir Hér kemur áhugaverður útdráttur um tíðni spangarskurða við sogklukku og tangarfæðingar. Útdráttur- inn birtist í janúarhefti danska ljósmæðrablaðsins 1998 og er þýddur úr blaði bandarískra fæðingar- og kvensjúkdómalækna. Bandarísk yfirlitsrannsókn skoðar tíðni spangar- skurða í tengslum við fæðingar með töng eða sog- klukku á tíu ára tímabili árin 1984 til 1994 á einni fæðingardeild. Allar konur sem á þessum tíma fæddu með sogklukku eða töng eitt barn eftir 37 vikna meðgöngu tóku þátt í rannsókninni. Einnig var rann- sökuð tíðni á rifum í spöng og í leggöngum hjá þess- um konum. Sogklukkufæðingar voru 976 en tangar- fæðingar 1065. A þessum tíma lækkaði tíðni á spangarskurði úr 93,4% í 35,7%. Það kom ekki fram nein aukning á 3. gráðu rifum en marktæk lækkun á 4. gráðu rifum úr 12,2% í 5,4%. Það kom einnig fram lítil en marktæk aukning á fjölda spanga sem voru heilar, úr 2,2% í 2,7%. Það var aukning á fjölda rifa í leggöngum úr 16% í 40% sem er marktækur munur. Allar konurnar voru metnar saman fyrst en hópnum síðan skipt í fjölbyrjur og frumbyrjur, það hafði ekki áhrif á heildar- niðurstöður. Höfundarnir halda því fram að það séu ekki ytri aðstæður sem hafa áhrif á niðurstöður, hagur kven- þjóðarinnar og fjöldi fæddra barna á hverja konu hafi haldist óbreyttur. Mikilvæg breyting var í aukningu fjölda fæðinga með sogklukku úr 34,8% 1984 í 58,9% 1994. Á sama tíma féll tíðni spangarskurða bæði við sogklukku- og tangarfæðingar. Höfundarnir eru þeirrar skoðunar að afstaða fag- fólks til spangarskurða hafi breyst. I dag er ekki gerður rútínubundinn spangarskurður þegar fæðingu lýkur með sogklukku eða töng. Þessi breytta afstaða tengist sannanlega því að tíðni spangarskurða við eðlilegar fæðingar hefur fækkað injög mikið. Höfundarnir geta ekki mælt með spangarskurði sem óhjákvæmilegu inngripi við fæðingu með sog- klukku eða töng en mæla með frekari rannsóknuin. Heimilcl: Ecker, O.I., Tan, W.M., Bansal, R.K. o.fl. 1997. Amerícan Journal of Obstetrics and Gynecology, vol. 176 (2): 411-414 Þýðing úr dönsku: Unnur M. Egilsdóttir, Ijósmóðir Ljósmceður spjalla á Netinu Um miðjan janúar s.l. var stofnaður á Internetinu ljósmæðraspjallklúbbur. Þar hafa ljósmæður síðan hist vikulega og spjallað um allt milli himins og jarðar — þó mest um ljósmæðrastarfið og hugmyndafræð- ina. Þær ljósmæður sem hafa áhuga á að skiptast á skoðunuin og hugmyndum við stallsystur sínar, ættu endilega að ganga í klúbbinn og taka þátt í skemmtilegu spjalli og miðla þannig öðrum ljósmæðrum af visku sinni og reynslu. Til að ganga í klúbbinn þarf að fara á slóðina: http://clubs.ya- hoo.com/clubs/mothersoflight Spjalltíminn er öll sunnudagskvöld klukkan 20.00, en einnig er hægt að skilja eftir skilaboð og biðja um spjallfundi á öðrum tímum. Hittumst á Netinu!! 12 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.