Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 34

Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 34
Hefur skipulag mæðraverndar verið að þróast í rétta átt? Skipulag mæðraverndar hefur tekið talsverðum breytingum á undanförnum árum og það er því ekki óeðlilegt að spurt sé hvort þjónusta við verðandi mæður hafi verið að þróast í rétta átt. Sé horft 10-15 ár aftur í tímann þá var mæðravemd sinnt annars vegar af heilsugæslustöðvum og hins vegar af Kvennadeild Landspítalans. A þessum tíma vantaði mikið upp á að ljósmæður væru starfandi á öllum heilsugæslustöð- um, auk þess sem talsvert skorti á að búið væri að byggja upp heilsugæsluþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Einnig vom menn sammála um að aðstaða fyrir mæðravernd á Kvennadeild þyrfti að vera betri. Meginhugsunin á bak við þetta skipulag var að heilsugæslan ætti að sinna almennri mæðravernd, en að Kvennadeildin ætti að sjá urn konur í áhættumeðgöngu. Kvennadeildin sinnti hins vegar mun fleiri konum en þeim senr voru í áhættu og því varð sú þjónusta sem deildin veitti blanda af þjónustu vegna áhættumeðgöngu og almennri mæðravernd. Ein ástæða fyrir því að deildin hélt sig ekki eingöngu við áhættumeðgöngu var sú að Landspítalinn taldi nauðsynlegt að læknanemar kynnt- ust líka konum t eðlilegri meðgöngu. Á árunum 1996-98 var talsvert rætt um það innan og utan Landspítalans að eðlilegra væri að öll mæðravernd færi til heilsugæslunnar. Niðurstaðan varð sú að stíga þetta skref og í árs- byrjun 2000 tók heilsugæslan alfarið yfír mæðravernd á höfuðborgarsvæðinu. Mæðraverndin fékk rúmgott húsnæði á Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg og þar var byggð upp öflug þjónusta við verðandi mæður. Gerður var samningur milli Landspítala og Heilsugæslunnar í Reykjavík sem fól meðal annars í sér að Landspítalinn lagði til eina stöðu sérfræðings í áhættumeðgöngu, enda var Miðstöð mæðravemdar á Heilsuverndarstöðinni ætlað að sinna konum í áhættumeðgöngu. Miðstöð mæðraverndar var því ætlað að sinna almennri mæðravernd, áhættumeð- göngu og fræðslu og leiðbeiningum til ljósmæðra á heilsugæslustöðvum. Egill Ólafsson, blaðamaður á Morgunblaðinu Sigríður Sía Jónsdóttir, fyrrverandi yfirljósmóðir á Miðstöð mæðraverndar, sagði að Miðstöð mæðraverndar hefði frá upphafí sinnt bæði konum í eðli- legri meðgöngu og áhættumeðgöngu. Fljótlega hefði deildin hins vegar farið að beina konum í eðlilegri meðgöngu markvisst út á heilsugæslustöðvarnar. Þetta hefði verið gert með því að gera greiningu í gegnum síma um leið og konumar pöntuðu tíma með það að markmiði að greina frá konur sem væru í áhættu eða hefðu sögu sem kallaði á aukið eftirlit. Sigríður Sía sagði að það hefði kostað talsvert átak að koma málum í það horf að þorri kvenna leitaði í mæðraskoðun á heilsugæslustöðvum, en þetta hefði tekist og hefði undir lokin verið farið að ganga mjög vel. Samhliða þessari breytingu fóru heilsugæslustöðvarnar að ráða fleiri ljós- mæður til starfa og hækka starfshlutfall þeirra. Áður vom víða engar ljósmæður starfandi á heilsugæslustöðvum eða í lágu starfshlutfalli. Gallar á skipulagi Margrét Hallgrímsson, sviðsstjóri á Kvennadeild, sagði að þó ágætlega hefði gengið að byggja upp þjónustu á Miðstöð mæðraverndar hefði fljótlega komið í ljós að vissir gallar voru á fyr- irkomulaginu sem leitt hefðu til þess að þjónusta við sumar konur var ekki eins og best var á kosið. Hún sagðist eink- um eiga þar við konur sem við eftirlit á heilsugæslustöð hefðu verið með vanda- mál sem hefðu þurft nánari skoðunar við. Þessum konum hefði verið bent á að leita til Miðstöðvar mæðraverndar, en sumar þessara kvenna hefðu verið með alvarleg vandamál sem Miðstöð mæðraverndar hefði ekki ráðið við og því hefði þeim verið vísað áfram til Kvennadeildar. Þessum konum hefði hins vegar strax átt að vísa til Kvennadeildar. Margrét sagði að þegar búið var að gera nauðsynlegar rannsóknir á kon- unum á Kvennadeild hefði komið upp sú spurning hvert konurnar ættu að fara. Áttu þær að vera áfram undir eftirliti á Kvennadeild, Miðstöð mæðraverndar eða á heilsugæslustöð? Sigríður Sía sagði að vandamálið hefði að sínu mati fyrst og fremst snúist um að það hefði aldrei verið gengið endanlega frá þessum hlutum milli Miðstöðvar mæðraverndar og Kvennadeildar. Miðstöð mæðraverndar hefði alltaf verið háð Kvennadeild um ýmsar rannsóknir sem tengjast áhættu- meðgöngu. Miðstöðin hefði aldrei feng- ið allan þann tæknibúnað sem hún hefði þurft á að halda til að geta sinnt full- komlega þjónustu við konur í áhættu. Hún hefði aldrei fengið mónitor og sónar og eins hefði ekki verið hægt að gera allar nauðsynlegar mælingar, t.d. á konum með of háan blóðþrýsting. Sigríður Sía sagði að Miðstöð mæðra- verndar hefði eftir sem áður sýnt fram á að starfsfólk deildarinnar réði við það verkefni að sinna konum í áhættu. Þar hefði byggst upp mikil þekking og starfsfólkið hefði haft fulla burði til að sinna konum í áhættumeðgöngu allt fram að þeim tíma að nauðsynlegt varð að leggja þær inn. Margrét sagði, eins og Sigríður Sía, að þó Miðstöð mæðraverndar hefði verið að sinna áhættumeðgöngu hefði hana vantað búnað til að gera ákveðnar rannsóknir þegar um var að ræða grun um tiltekin vandamál. Þarna hefði því skort á að fyrirkomulag þjónustuunai' væri sem best var á kosið. Það er ljóst af orðum Margrétar að 34 Ljósmæðrablaðið júnf 2007
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.