Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 29.12.1947, Blaðsíða 3

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 29.12.1947, Blaðsíða 3
'Tím. V. F. I. 1947. 6. hefti. t STEIIMÞÓR SIGURÐSSOIM Fæddur 11. jan. 1904. Dáinn 2. nóv. 1947. Steinþór Sigurðsson var fæddur í Reykjavík 11. jan. 1904, sonur hjónanna Sigurðar Jónssonar, skóla- stjóra, og Önnu Magnúsdóttur frá Dysjum á Álfta- nesi, konu hans. Steinþór innritaðist í Menntaskól- ann í Reykjavík haust- ið 1917 og lauk stúdents- prófi stærðfræðideildar vorið 1923. Sama sumar- ið sigldi hann til Kaup- mannahafnar og lagði þar stund á ýmsar stærðfræðilegar fræði- greinar. I fyrstu var að- algrein hans eðlisfræði, en síðar hneigðist hugur hans meira að stjörnu- fræði, og lauk hann ma- gisterprófi i henni haust- ið 1929. Ekki gat hjá því far- ið, að Steinþór vekti á sér eftirtekt kennara sinna, og til marks um það álit, sem hann hafði unnið sér þegar á náms- 5 árunum, má geta þess, að honum voru gerðir þeir kostir, að hér heima yrði komið á.fót obser- vatorii íslendingum að kostnaðarlausu, ef Stein- þór veitti því forstöðu og rekstur þess yrði kostaður af ríkissjóði Islands. Steinþór mun þó hafa talið þetta ríkis- sjóði ofviða á þeim ár- um, enda veit ég ekki til, að hann liafi ieitaó um- sagnar stjórnar né þings um þetta mál. Þá átti hann einnig kost á stöðu erlendis við rannsóknir í sérgrein sinni, en út vildi hann og réðist strax að afloknu prófi kennari i stærðfræði og eðlisfræði við hinn unga Menntaskóla á Akureyri. Líklegt er, að þar hafi valdið nokkru um, að hann hafði þegar sumarið 1927 farið sína fyrstu rannsóknarferð um öræfi íslands með Niels Nielsen og Pálma Hannes- syni og orðið heillaður af öræfunum, bæði séðum með augum ferðamanns- ins og vísindamannsins, sem sjá þar mergð ó- leystra, heillandi verk- efna. I tvo áratugi vann Steinþór að rannsókn- um og mælingum á land- inu, og mér er sagt af þeim, sem kunnugastir eru, að þeim þyki ótrú- legt, að nokkur maður fyrr né síðar hafi orðið eins gagnkunnugur há- lendi íslands og hann varð. Steinþór var fastur kennari við Menntaskól- ann á Akureyri til 1935 og síðan við Mennta- skólann í Reykjavík til 1938, en þá var hann skipaður skólastjóri við hinn nýstofnaða Við- skiptaháskóla. Stunda- kennslu við Menntaskól- ann hafði hann á hendi frá 1941—46 og stunda- kennslu í eðlisfræði og geómetríu í verkfræði- deild Háskólans frá stofnun hennar 1940. ’ Þegar landspróf var haldið í fyrsta sinn, 1946, var Steinþór skipaður formaður prófnefndar- innar. Þó að Steinþór væri þannig bundinn við kennslu- störf, sem ýmsum hefði verið ærið verkefni, vann hann þó miklu umfangsmeiri störf á öðr- um sviðum, sem voru nátengd hvort öðru, rann-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.