Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Blaðsíða 4
4 Fréttir DV Lögreglan í Keflavík, í samstarfi við lögreglu og tollgæslu á Keflavíkurflug- velli, lögregluna í Reykja- vík.Tollstjórann í Reykjavík og lögregluna á Húsavík, hefur undanfarið unnið að rannsókn máls sem varðar innflutning á 1000 E-töflum og um það bil 130 grömmum af kókaíni. Lögð var fram krafa um að átta einstaklingar yrðu úrskurð- aðir í gæsluvarðhald og voru sex þeirra úrskurðaðir í 3-14 daga gæsluvarðhald á föstudag. Lögregla verst allra frekari frétta af mál- inu. Al Qaeda á kjarnorkju- sprengju Arabíska dagblaðið al- Hayat greindi frá því í gær að hryðjuverkasamtökin A1 Qaeda hefðu keypt kjarn- orkuvopn af aðilum í Úkra- ínu árið 1998. Heimildir blaðsins eru hátt settir aðil- ar innan A1 Qaeda. Kaupin eiga að hafa átt sér stað þegar úkraínskir vfsinda- menn heimsóttu afgönsku borgina Kandahar sem var ein af höfuðstöðvum Tali- bana. Sprengjan kemst fyrir í skjalatösku og er talin vera leifar úr sovésku vopnabúr- unum. Sprengjur af þessu tagi er taldar vera jafn öíl- ugar og þúsund tonn af TNT og geta drepið um 100.000 manns. Bandaríski herinn hefur tilkynnt um samdrátt hjá farþegaflugfélagi hersins, Patriot Express, sem þýðir að á árinu 2006 hættir það að fljúga til íslands. Patriot Express hefur verið notað til að flytja bandaríska her- menn og fjölskyldur þeirra milli herstöðva. Frá árinu 1960 hefur flugfélagið sinnt fólksflutningum milli 27 staða og með því hafa meira en 340.000 farþegar ferðast á ári. Á næsta ári ætlar Patriot Express að draga mjög úr flugi til Keflavíkur og Guantanamo-flóa á Kúbu. Flugi til Rínarstöðvar í Þýskalandi verður hætt. Á árinu 2006 verður svo hætt að fljúga til ýmissa staða, þar á meðal Keflavíkurflug- vallar. Keflavík fagnaði tveimur bikarmeistaratitlum í körfuknattleik með stæl í Stapan- um á laugardagskvöldið. Kvöldið endaði þó ekki eins og menn hefðu helst viljað því einn leikmanna liðsins, Fannar Ólafsson, varð fyrir hrottafenginni líkamsárás á leiðinni út af staðnum og uppskar ellefu skurði og yfir fjörtíu spor í andlitið. áll góða á milli Keflvíkinga og Njarðvíkinga í körf- unni en aldrei hefur rígurinn brotist fram á þennan hátt þó menn hafl stundum tekist á, eins og einn heimildarmaður DV orðaði það. Mikil reiði ríkir í Keflavík vegna málsins og hefur DV heimildir fyrir því að nokkrir ein- staklingar ætli að safna liði og hefna árásarinnar á Fannar. Hins vegar hefur DV einnig heim- ildir fyrir því að faðir Fannar missti tvo og hálfan Utra afblóði og sauma þurftí yfir 40 spor í andlit hans. Odds hafi hitt Fannar í gær og rétt fram sátta- hönd. Fannar, sem lék ekki með Keflvíkingum í bik- arúrslitaleiknum þar sem hann er að jafna sig eftir fingurbrot, sagði í samtali við DV í gær að hann hefði verið á leiðinni út af staðnum þegar hann sneri við til að kasta kveðju á Pál Kristins- son, leikmann Njarðvíkur. Þá hefði umræddur Oddur vikið sér að honum og reynt að æsa hann upp. Fannar sagðist hafa ýtt honum frá sér og beðið hann um hætta þessu en þá héfði Oddur slegið hann með glasi með áðurnefndum afleið- ingum. Fannar segist hafa ætlað að svara fyrir sig en að það hefði liðið yfir hann. „Það fóru tvær eða þrjár æðar í sundur og ég missti svo mikið blóð að það leið yfir mig. Að sögn þeirra sem voru þarna var þetta eins og í sláturhúsi - blóðið flaut um allt gólf.“ Fannar sagði að það lægi beinast við að kæra Odd fyrir líkamsárás, enda væri ekki hægt að láta mann komast upp með svona. „Ég vil hins vegar ekki reka þetta mál í fjölmiðlum heldur mun það hafa sinn vanagang í dómskerfinu," sagði Fannar. Oddur pípari vildi ekkert tjá sig um málið þegar DV hafði sam- band við hann og vildi hvorki neita því né játa að hann hefði ráðist á Fannar, þrátt fyrir að fjölmörg vitni tengdu hann við líkamsárásina. Lögreglan í Keflavík staðfesti að maður hefði verið í haldi í nótt vegna líkamsárásarinnar en honum verið sleppt þar sem málið væri talið upplýst. Fann landslii Fannar fagur og fríður FannarÓlafsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, sést hér fagna ís- landsmeistaratitlinum með Keflavík árið 1999. Hann er ekki jafn fagur og friður í dag eftir hrott- lega og tilefnislausa likamsárás sem hann varð fyr- ir aðfaranótt sunnudags i Stapanum i Reykjanesbæ Keflvíkingar voru á skemmti- staðnum Stapanum að fagna tveimur bikarmeistaratitlum sem karl- og kvennalið félags- ins unnu á laugardaginn. Karlaliðið vann granna sína í Njarðvík í úrslitaleik og heldur hefur það farið í taugarnar á Oddi Jónassyni, 22ja ára pípara úr Njarðvík, því að hann réðst á Fann- ar Ólafsson, ieikmann Keflvíkurliðsins og landsliðsmann, þegar hann var á leiðinni út af Stapanum og braut glas á höfði hans með þeim afleiðingum að æðar fóru í sundur, hann missti tvo og hálfan lítra af blóði og að sauma þurfti yfir 40 spor í andlit Fannars. Að sögn heimildarmanns DV var árásin hrottaleg og algerlega tilefnislaus. Heimildamaðurinn sagði í gær að fólk, sem hefði orðið vitni að þess- ari árás, væri enn slegið ve hrottaháttarins sem við- hafður var. Það hefur lengi verið grunnt á því Nefið á John Kerry Svarthöfði er með böggum hildar þessa dagana. Annars vegar fylgist hann auðvit- að grannt með forkosningum demókrata í Bandaríkjunum og af því Svarthöfði er óneitanlega búinn að fá sig fullsaddan á Bush forseta, þá óskar hann þess heitt að demókratar beri gæfu til að velja einhvern sterkan frambjóðanda. í bili virðist næsta víst að John Kerry verði fyrir valinu, þótt Svarthöfði geri sér grein fyrir því að margt geti enn gerst á langri leið. Hins vegar hefur Svarthöfði fylgst síðustu dagana með auglýs- ingaherferð Stöðvar tvö sem ætlar að setja Ruth Reginalds í „Extreme Makeover" og barnastjarnan knáa hefur meðai annars lýst því yflr að hún ætli að nota tækifærið til að láta laga á sér nefið. Þótt Svarthöfði hafi svo sem alltaf getað bæði vatni haldið og sofið vært fyrir tilhugsunum um nefið á Ruth Reginalds, þá hefur honum alltaf þótt söngstjarnan bara vera með hið ágætasta nef. Svarthöfði er að minnsta kosti þeirrar skoðunar að hið prúða og fallega nef Ruthar eigi sinn þátt í því að hún hefur aldrei fallið honum úr minni, meðan aðrar barnastjörnur og „venjulegri" í útliti eru honum með öllu gleymdar. Ekki gæti Svarthöfði til dæmis með nokkru móti rifjað upp hvernig Hanna Valdís leit út, þótt hún hafi án efa verið smáfríðari en Ruth, samkvæmt hefðbundinni skilgrein- ingu. Svarthöfði hélt sem sagt að allt væri í stakasta lagi með nefið á Ruth. En fyrst það er greinilega mis- skilningur og heil sjónvarpsstöð sér ekkert athugavert við að kosta miklu til að „laga" á henni nefið, svo henni líði vel og öðlist sjálftraust, þá renn- ur um leið upp fyrir Svarthöfða að nefið á John Kerry hlýtur að verða honum mikill fjötur um fót í barátt- unni um forsetastólinn í Bandaríkj- unum. Því það sama hlýtur að gilda um konur og karla, er það ekki? Svaithöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.