Akranes - 01.04.1944, Blaðsíða 7

Akranes - 01.04.1944, Blaðsíða 7
akranes 43 Húsmæðraskólar Það mun liggja við borð, að stofnað- ur verði húsmæðraskóli hér í þessum landshluta og sennilega fremur tveir en einn. Mun því ekki eiga illa við, að grein uieð þessari fyrirsögn birtist í „Akra- nesi“. Málefnið er líka svo þýðingar- mikið, að full ástæða er til að ræða það á opinberum vettvangi. Krafa vorra ára er menntun, og er þá einkum lögð áherzla á ýmislega fræðslu. Fæðsla er líka nauðsyn nú orðið. Þekk- ing er ekki aðeins góð eign, sem enginn getur haft af oss, rænt eða stolið, held- ur er hún nú á tímum orðin almenn nauðsyn í baráttunni fyrir lífinu. Skól- anir eiga að sjá um menntunina. Það eru ekki allir á einu máli um, hvernig þeim tekst það, en hitt orkar ekki tví- niælis, að þeir eiga og verða að inna það starf vel af hendi, ef þjóðinni á að farnast vel og hún á að halda áfram að vera menningarþjóð í réttum skilningi. Skólarnir eru margskonar, þ. e. a. s. það eu margar og ólíkar geinar, sem hver skóli einkum leggur áherzlu á. Húsmæðraskólar eiga að veita hús- naæðraefnum nauðsynlega menntun. Þeir eiga að kenna þá hluti, sem hver húsmóðir þarf að kunna, og þeir eiga uð vekja og glæða skilning og áhuga nemenda sinna fyrir gildi og mikilvægi húsmóðurstöðunnar. Húsmóðurstarfið er margþætt og námsgreinar geta verið niargar, en húsmæðraskólar verða, eins °g allir aðrir, að leggja megin áherzluna ú aðalatriðið, en aðalatriði þeirra er uppeldið. Aðalhlutverk húsmæðrastétt- arinnar er uppeldi barna þjóðarinnar, °g það verður því meginatriði í mennt- un húsmæðranna. Sé þess ekki gætt, og Se því meira að segja sleppt að miklu leyti, þá er nafnið húsmæðraskóli rang- uefni. Slíkir skólar geta heitið kvenna- skólar, sem bendir á, að þar sé lögð á- herzla á fræðslu, sem einkum hentar honum, eða matreiðsluskólar o. s. frv., eftir námsefninu. En er þá ástæða til að stofna og starfrækja slíka skóla, hús- mæðraskóla, handa konum, frekar en samsvarandi skóla handa körlum? Þeir ganga á ýmsa almenna og sérskóla, en euga húsfeðraskóla. Það er efalaust bæði gagn og nauð- syn, að veita karlmönnum fræðslu í upp- eldi, og skólar fyrir þroskaðri nemend- ur ættu að gefa því atriði meiri gaum en hingað til. En svo að litið sé á mennt- un húsmæðra, sem hér um ræðir, þá her að veita þeim góða fræðslu í- þessu efni af þeirri einföldu ástæðu, að upp- eidið hvílir að meira leyti á móður en íoður. Eins og börnin eru hið dýrmæt- asta, sem hver húsmóðir hefur undir höndum, bæði frá sjónarmiið foreldra, Þjóðfélagsins í heild og heilbrigðrar lífs- skoðunar, þannig er uppeldi þeirra, og þar með þjóðarinnar, eitt hið mikilvæg- asta starf, sem framkvæmt er henni til heilla. Manngildi hvers einstaklings fer að verulegum hluta eftir uppeldinu. Uppeldið er ef til vill allra mikilvæg- ast á fyrstu árunum, en þá er það ein- mitt einkum hlutverk móðurinnar. Þetta uppeldi mistekst sorglega oft, og hver getur með réttu álasað óreyndum og fákunnandi mæðrum og húsmæðrum, þótt svo fari, þegar þjóðfélagið hefir vanrækt skyldu sína um tilsögn og menntun í þessu mikilvæga efni. Þeg- ar þar við bætist, að allt uppeldi er nú orðið vandasamara en áður var í fá- menninu, þá verður nauðsynin á mæðrafræðslu enn þá brýnni og aug- ljósari. Skólarnir hafa einnig mikið hlutverk að inna af hendi, um uppeldi barna, en því má ekki gleyma, að þegar börnin eru orðin 6—7 ára, eru þau kom- in af bezta uppeldisaldrinum. Húsmæðraefni þjóðarinnar eiga að hljóta þá menntun að þær geti fyrir þær sakir skapað heimili, sem eru vist- leg og aðlaðandi og hvíla hugann, þar sem ríkir menning í umgengni og fram- komu barnanna og þar sem börnunum eru innrættar fagrar hugsanir og hin göfuga og farsæla lífsskoðuh, grund- völlur lífshamingju þeirra En geta kon- urnar orðið þessu hlutverki vaxnar? Þeir eru margir, sem fyr og síðar hafa efazt um gildi kvennanna í mannfélag- inu. Staða, virðing og réttur kvenna eru mjög misjöfn með ýmsum þjóðum. Það fer eftir menningu þeirra yfirleitt. Því lægra sem menningarstig þjóðar er, því nær sem hún stendur villimennsku, því aumari er yfirleitt hlutur kvenna í þjóð- félaginu og er jafnvel allt ofan í- það, að þær séu ambáttir karlmannanna. Sama hefur átt sér stað í ríkjum, þar sem drottnað hefur siðleysi hnefarétt- arins, sem svo er nefndur, en er í raun- inni ranglega hugsað orð. Með vaxandi menningu, sem það heiti á skilið, fer karlmönnunum að skiljast, að konurnar eru líka menn, sem eiga rétt og kröfu á sömu hlutdeild og kjör- um í lífinu og þeir sjálfir. Þetta auðsæja mál hefur gengið furðu erfitt að skilja og réttur kvenna hefur átt furðu erfitt uppdráttar. Það er enda vafi á, að rétt- ur og manngildi kvenna sé viðurkennt og metið rétt með menningarþjóðum á vorum menningardögum. Dæmi eru nærtæk, líka meðal hinnar gáfuðu og menntuðu íslenzku þjóðar, sem benda í þá átt. Vér erum afkomendur forfeðra vorra í ræðu og riti menntamanna, og frá þeim höfum vér arfinn þegið. „Börn- in eru forfeðurnir endurbornir“, sagði einn menntamanna vorra ekki alls fyr- ir löngu. Það er undarlegt fyrirbrigði í erfðunum, að allur hlutur formæðranna hefur horfið. Menntamenn ávarpa sam- komu og útvarpshlustendur með orðun- um „góðir hálsar“. Ávarp til kvenna gæti verið kurteisara. Enn má nefna það, að orðið maður virðist nú hafa fengið merkinguna karlmaður í nútíð- armáli voru. Loks má nefna það, sem allir vita, að það eru ekki ýkjamörg ár síðan fulltrúar þjóðarinnar deildu um það á Alþingi í fullri alvöru, hvort kon- ur hér á landi skyldu njóta sömu al- mennu mannréttinda og karlmenn. Hvers hafa menn þá orðið vísari um hæfileika kvenna, borið saman við karl- menn? Niðurstaða þeirra, sem fróðir teljast í þeim efnum, er í stuttu máli sú, að í öllum aðalatriðum sé ekki neinn eðlismunur á hæfileikum karla og kvenna. Sá munur, sem fljótt á litið virðist vera, stafar af mismun á starfi og þjálfun. Konur eru fyllilega hlut- gengir aðilar í starfi hverrar þjóðar. Merkur ithöfundur á að hafa mælt þessi orð: „Þér, konur, sem hafið alið oss, þjer verðið líka að hjálpá oss til þess að bæta heiminn“. Aðalhlutverk menning- arinnar er að bæta heiminn. En til þess þarf fyrst og fremst að bæta mennina. Verulegur þáttur þeirra umbóta er upp- eldið. En það verður að vera nýtt upp- eldi á réttum grundvelli, til þess að eigi hendi sú hin mikla smán og gajldþrot menningarinnar, sem nú dynur yfir heiminn. Það má ekki einblína á þekk- inguna og hagnaðinn, heldur verður að meta að verðleikum öll þau andlegu verðmæti, sem lífið hefur að bjóða og skipa dyggðunum í það heiðurssæti, sem þeim ber. Þá verður fyrst og fremst að innræta börnum og æskulýð þá lífs- skoðun, sem er fegurst og göfugust, kristna trú. Það eru nú einmitt mæð- urnar, sem eiga að byrja uppeldið á þessum grundvelli. Þær eru hinn rétti aðili og vel til þess fallnar fyrir margra hluta sakir. Starf karlmanna er lífsbar- áttan í þrengri merkingu, sem oft, því miður, verður barátta allra gegn öllum og lítt til þess fallin, að efla og þroska manndyggðirnar. Starf kvenna og þá einkum mæðra, er aftur á móti til þess fallið, að þroska fórnfýsi, mannkærleik og þau andlegu verðmæti yfirleitt, sem mest er um vert í þessu sambandi. Kon- ur eiga mikið og göfugt hlutverk, að leggja grundvöllinn að menningu þjóð- anna, nýrri og sannari menningu. Vér verðum að vona, að íslenzkar húsmæð- ur verði þessu hlutverki vaxnar á kom- andi árum, og það er skylt, að veita þeim nauðsynlega undirbúningsmennt- un. Hana eiga húsmæðraskólar að veita og þá má ekki gleyma stóra atriðinu, að kenna þeim að ala börnin upp í krist- inni lífsskoðun, gjöra þau kristin. Ann- ars vantar þar sjálfa sálina og þá ættu þeir skólar ekki skilið fagurt nafn. Árni Árnason.

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.