Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 25
DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl2004 25 Undanfarin misseri hefur það sífellt færst í vöxt að íslenskar auglýsingastofur taki þekkt erlend dægurlög án þessa að sækja um leyfi hjá eigendum eða breyti þeim lítillega til notk- unar í íslenskum auglýsingum. STEF er ósátt og segir þetta hreina og klára móðgun við tónlistarmenn. STEF undirbýr málsókn en auglýsingastofur segja að þetta viðgangist einfald- lega á íslandi. Tískusýning Hersesimuu P fatahönnunardeildm bauð uf hugmyndaflugið vantar ekki Hönnunarnemar útskriftarhópsins samankominn.ána með árangurinn ef stífa vinnutörn. STEF gegn siolnum lögum í auglýsingum „Við erum að skipuleggja mjög stífa gegnumtöku og ætlum að reyna að vinna þetta þannig að hægt sé að fara með þetta fyrir dómstóla. Við reiknum líka með því að senda út- lendum rétthöfum þessara laga skýrslu um meint höfundarréttarbrot og þá er mjög líklegt að þeir fylgi okk- ur eftir í þessu mjög svo alvarlega máli,“ segir Magnús Kjartansson stjórnarformaður STEFs. Lögunum breytt lítillega Það hefur ekki farið ffamhjá mörg- um sjónvarpsáhorfendum að mörg þeirra laga sem notuð eru í íslenskum auglýsingum eru óduldar stælingar á vinsælum erlendum dægurlögum. Þannig hafa eilítið breyttar útsetning- ar á lögum eftir Madonnu, Badly Drawn Boy, Beyonce Knowles og fleiri tónlistarmönnum verið notuð til að auglýsa íslenskar vörur. Einnig virðist það vera algengt að erlend lög séu notuð í auglýsingar án þess að sótt sé um leyfi eða réttur að þeim keyptur. STEF hefur nú komið á fót nefhd sem hefur það hlutverk að taka upp sjónvarpsauglýsingar og skrifa skýrslu um það sem ne&idinni þykir athug- unarvert. „Þetta er ömurlegt ástand sem sýnir að þær auglýsingastofur og þau fýrirtæki sem bera ábyrgð á þess- um höfundarréttarbrotum treysta umhverfi sínu ekki betur hér á landi en raun ber vitni,“ segir Magnús enn- fremur. „Við erum að fá fullt af ábend- ingum frá fólki innan auglýsinga- geirans um þessi brot. Við fáum lfka ábendingar frá þeim sem vinna að hljóðsetningu á auglýsingum sem blöskrar þessi vinnubrögð." Aðspurð- ur hvort einhver sérstök auglýsinga- fyrirtæki séu grófari en önnur svarar Magnús því að þetta tíðkist meira á minni stofunum. Minnir á sjóræningjaútgáfur Ingólfur Hjörleifsson fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra auglýsingastofa segir að málið hafi verið til umfjöllunar innan sam- bandsins og verið sé að reyna að út- rýma þessum vinnubrögðum. Auglýsingastofa sem DV ræddi við segir þetta einfaldlega viðgang- ast hér á landi. „Við reynum oftast að kaupa réttinn að lögum sem við notum en f flestum tilvikum er það bara of dýrt til þess að það borgi sig." Enn önnur auglýsingastofan sagði þetta í sjálfu sér ekki vera stuld því að verið væri að vitna í ákveðin dægurlög eða stemningu og það væri hægt að vitna í svo margt án þess að menn væru „að stela." Máni Svavarsson tónlistarmaður hefur unnið að gerð fjölda auglýsinga- stefa. Hann segir að myndmáli í aug- lýsingum sé oftar en ekki ætlað að vekja upp einhverjar tilflnningar með því að vitna í aðra hluti og sama sé hægt að gera með tónlist. „Ég hef ávallt talið mig vinna innan ramma laganna í þessum efnum. Ég fagna því hins vegar ef STEF hyggst fara í saumana á þessu. Verst finnst mér að tekin séu heil lög og sett inn í auglýs- ingar án þess að spyrja kóng eða prest. Það er fyrir neðan allar hellur og ekkert annað en þjófnaður." Einn nefndarmannanna sem DV ræddi við líkti þessu við sjóræningjaút- gáfur. „Þetta minnir mig helst á sjó- Auglýsingar sem STEF er m.a. með til umfjöllunar: (slandsbanki, námsmannaþjónustan: Crazy in Love (Beyonce Knowles) Kringlan: Louis Armstrong Samskip: Echoes in my Mind (Nelson) Toyota: It's my life (Bon Jovi) Jói Fel: All You Need is Love (Bítlarnir) Fold Fasteignasala: Our House (Crosby, Stills, Nash and Young) Merrild-kaffi: Devil in Disguise (Elvis) lcelandair: Theme from Flashdance. Hestaauglýsing: Fly on the Wings of Love (Olsen-bræður) Gaukurinn: LedZeppelin Lýsing: American Life (Madonna) ræningjaútgáfur í Asíulöndunum þar sem heilu plöturnar em seldar án nokkurs leyfis ffá höfundi eða flytj- anda.“ Niðurlæging fyrir íslenska tón- listarmenn Magnús Kjartansson segir að fyrir- tæki eyði himinháum fjárhæðum í allt annað en tónlistina þegar auglýsinga- gerð er annars vegar. „Þetta er oft þannig að við gerð auglýsinga er þekkt popplag notað til viðmiðunar og svo þegar það kemur að því að semja end- anlegt lag fyrir auglýsinguna er popp- lagið bara stælt fyrir lftinn pening eða þá að það er bara notað án leyfis. Ég er viss um að þessi sömu auglýsingafyr- irtæki tækju það illa upp ef einhver stæli þeirra eigin efni.“ Magnús er einnig gáttaður á lagavali sumra fyrir- tækja. „Það er óneitanlega kaldhæðn- islegt þegar þau fyrirtæki sem hvetja íslenska neytendur tfi að velja íslenskt velja sjálf erlend dægurlög í auglýs- ingar sínar. Það er minn gmnur að fólk og þá sérstaklega íslenskir tónlist- armenn upplifi það sem niðurlæg- ingu þegar íslensk fyrirtæki notast við erlend lög eða eftiröpun á þeim í stað- inn fyrir íslensk. Þetta er náttúmlega bára hrein og bein móðgun." Magnús segir að það hljóti að vera markaðs- stjórar fyrirtækjanna og auglýsinga- stofurnar sem beri ábyrgð í þessum efnum. Höfundarréttarbrot er mjög alvarlegur glæpur og því lítum við þetta mjög alvarlegum augum." Stjörnuparið Gwyneth Paltrow og Chris Martin eru orðin foreldrar Eignuðust stelpu Leikkonan Gwyneth Paltrow og kærasti hennar Chris Martin hafa eignast sitt fyrsta barn. Stúlkan, seni hefur fengið nafnið Apple, fæddist eftir langar og erfiðar hríðir en bæði móður og barni heilsast vel. Martin, sem er söngvari hljómsveitarinnar Coldplay, sagðist vera í skýjunum. „Ég er 900 mílur yfir tunglinu og vU þakka öllum á sjúkrahúsinu fyrir hjálpina." Leikkonan sem ætlaði að eignast barnið heima hefur ákveðið á síðustu stundu að fara á sjúkrahús en hún átti stúlkuna í London. xr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.