Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2005, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2005 Sport DV Fimm leikir á dagskrá Intersport-deildarinnar í körfubolta 1 kvöld: \ Bollaleggingar Einars Bollasonar KR - ÍR Snæfell - Fjölnir Hamar/Selfoss - Skallagrímur - Njarðvík - Fimm leikir eru á dagskrá Intersport-deildarinnar í körfubolta í kvöld og geta Keflvíkingar hampað deildarmeistaratitiinum með sigri á Skallagrími í Borgarnesi. DV Sport fékk Einar Bollason, hinn kunna körfuboltaspeking, til að kortleggja leiki kvöldsins og telur hann afar líklegt að lið Keflavíkur tryggi sér þar með heimavallarrétt út alla úrslitakeppnina í kvöld. Brenton Birmingham „Hann er algjör lykilmaður í liði Njarðvíkur og sá sem ræður því hvort að liðið verði ítitilbaráttunni,"segir Einar. „Keflvíkingar eru með gríðarlega sterkt lið og er það lið sem öll önnur lið munu forðast að mæta í úr- slitakeppninni,“ sagði Einar í sam- tali við DV Sport í gær. Með umferðinni í kvöld eru þrjár umferðir eftir af deildarkeppninni. Línurnar í efri helmingnum eru nokkuð skýrar og er mesta spennan fólgin í því hvort það verði Njarðvík eða Snæfell sem nær öðru sæti deildarinnar. Mesta spennan er engu að síður í kringum neðstu sætin sem gefa sæti í úrslitakeppninni. KR-ingar eru í góðri stöðu í sjöunda deildarinnar og munu með sigri gegn ÍR á morgun fara langt með að tryggja sig í úrslitakeppninni. Keppnin um áttunda sætið er galopin og eiga liðin Grindavík, Hamar/Selfoss og Haukar í raun öll jafna möguleika. Demetric Shaw Hefur spilað frábærlega eftirað hann gekk tilliðs við Hauka fyrir skömmu og segir Einar Bollason að Sævar Haraldsson njótigóðs af þvi að hafa Shaw sér við hhð.„Saman mynda þeir besta bakvarðarpar í deildinni, * segir Einar. Allir forðast Keflmk KR eru liklegra því að: KR-ingar eru með gjörbreytt lið eftir að Aaron Harper gekk til liðs við þá. Og það er mjög athyglis- vert að með komu Harpers hefur Cameron Echol blómstraö hjá KR og þessir tveir saman eru illviðráð- anlegir fyrir hvaða andstæðinga sem er. VonÍRfelsti: þeirri feykilega öflugu vörn sem liðið getur spilað. EfÍR nær upp þeirri stemningu sem einkennir liðið á köflum eru KR-ingar I vondum málum. Niðurstaða: KR-ingar hafa loksins fengið topp- leikmann ÍAaron Harpersem ger- ir, líkt og Shaw hjá Haukum, alla leikmenn I kringum sig betri. Liðsmenn ÍR hafa sann- að að liðið er dúndurlið og unnu KR-inga mjög sann- . gjarnt I Seljaskóla fyrr í I 4 vetur. Þeir eru ekki lengur Y jjjj þetta upp/niöur lið sem k þeir voru. Gæti orðið mjög spenndandi leik- urenégheldað heimavöllurinn geri ?: útslagið hér. Fylgist með: Hvernig leikur KR hefur gjör- breyst með tilkomu Aarons Harper. Þetta er í raun alveg nýttlið. Snæfell eru liklegra því að: liðsmenn eru á heimavelli og hafa þannig leikmenn að þeirsætta sig ekki við að tapa tveimur leikjum í röð. Fjölnismenn er i sárum eftir að hafa tapað bikarúrslitunum og ég held að það verði erfitt fyrir þá að ná sér aftur á strik. Von Fjölnis felstí: því að hinir fjölmörgu ungu, efni- legu og íslensku leikmenn nái sér á strik. Þeir verða að láta meira tii sín taka efFjölni á að takast þetta. Þessir þrír útlendingar hjá Fjölni geta ekki borið liðið á herðum sér heilt mót. Það bara gengur ekki. Niðurstaða: Bæði þessi lið töpuðu í síðustu umferð og má gera ráð fyrir að þau bæði ætli sér að sýna það og sanna að þau séu miklu betri. Þess vegna verður þetta örugglega mikill baráttuleikur. En heima- völlurinn gerir útslagið og Snæfell vinnur á endanum. Fylgist með: þvísem verður án efa rosa- legt einvígi á milli Hlyns Bæringssonar hjá Snæfell og Darrel Flake hjá Fjölni. Efég þekki Hlyn rétt á hann eftir að vera brjálaður eftir tapið gegn [R i síðustu viku og það verður ekkert„elsku mamma" fyrir Flake í baráttunni um fráköstin. Haukar Keflavík Haukar eru liklegri því að: þeir hafa á að skipa þvi sem ég tel vera besta bakvarðarpar landsins, þeim Sævari Haraldssyni og Dem- etric Shaw. Mikið hefur mætt á Sævari í vetur en nú er hann kom- inn með mann við hliðina á sér sem tekurafhonum mikið álag. Það verður erfitt að stoppa þessa tvo menn. Von Hamars/Selfoss felst í: gríðarlega sterkum heimavelli þar sem Hamar/Selfoss er ekki þekkt fyrirað tapa mörgum leikjum. Niðurstaða: Leikur sem gæti orðið mjög spenndandi en Haukar eru á mikilli siglingu og hafa bætt sinn leik mikið með komu nýja Kanans. Hann mun reynast ofstór biti fyrir Hamar Fylgist með: Demetric Shaw, nýj- um útlend- ingi Hauka. Hannerótrú- lega skemmtilegur leik- maður og skorar ekki bara mikiö heldur er líka hann mikill liðs- maðurog geriralla samherja l kring- um sig betri. Keflavík er liklegri því að: Liðið er einfaldlega með besta leikmannahópinn í deildinni og þetta er besta liðið á landinu eins og staðan er I dag. Von Skallagríms felst í: sterkum heimavelli, íþví að sjálfs- traustið eftir frábæran sigur á Fjölni í síðustu umferð sé enn til staðar og að stöðva þriggja stiga skyttur Keflavíkur. Niðurstaða: Liðsmenn Keflavíkur búa yfir mun meiri reynslu og það skilar liðinu sigri íþessum leik. Þeir hafa breiddina og efeinn leikmað- ur finnur sig ekki tekur ann- ar einfaldlega afskarið á meðan leikurSkallagríms ræðst að miklu leyti af dagsformi Cliftons Cook. Fylgist með: Clifton Cook og einvígi hans við Sverri Þór Sverrisson. Ef að Cook nær sér á strik mega Keflvíkingar vara sig en Sverrir er frábær varnar- maður og gæti haldið hon- um niðri. Tindastóll Njarðvik er líklegri þvi að: Lið Njarðvíkur er einfaldlega miklu sterkara en lið Tindastóls. Auk þess eru þeir nýkrýndir bikar- meistarar og það gæti loksins komið liðinu á flug. Von Tindastóls felstí: því að kraftaverk eigi sérstað í Ljónagryfjunni. Ég sé Tindastól ekki eiga neinn séns. Niðurstaða: Njarðvikingar misstíga sig ekki og það er nánast formsatriði fyrir lið- ið að klára þennan leik. Öruggur heimasigur hér þrátt fyrir að liðið hafi valdið mér miklum vonbrigð- um í vetur. Fylgist með: i Brenton Birmingham hjá Njarvík. Hann er að finna sitt gamla form á ný eftir að hafa verið í vandræðum framan afvetri. Hann er algjör lykilmaður í bessu liði, mikill persónuleiki og maðurinn sem kemur til með að ráða því hvort að Njarðvík hampi meistaratitl- inum I vor eða ekki. Það er ekkert flóknara en það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.