Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Blaðsíða 15
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 12. MAÍ2005 15 Bættar samgöngur - allra hagur Ég er ekki hress með hvað fólk fyrir sunnan segir um Héðinsfjarð- argöng. Göng sem þessi rjúfa ein- angrun milli landshluta og gerir fólki kleift að ferðast á milli þeirra með betra móti en ella. Skilaboðin sem stjórnvöld setja með því að hafa af landsbyggðarfólkinu fram- í 1 | Samúel 1 f Einarsson vill bættar sam- göngur á lands- byggðinni. Rakarinn segir kvæmdir sem þessar eru að það eigi bara allir að flytja suður. Eftír að Vestfjarðargöngin komu árið 1996 hafa þau haft í för með sér stórfellda samgöngubót fyrir okkur Vestfirðinga, þó að enn mætti gera betur í að tengja okkur við Barða- strandasýsluna. Það leikur ekki vafi á því að góðar samgöngur leika stórt hlutverk í að halda byggðinni í landinu. Ég hef fulla trú á því að Héðinsfjarðargöngin munu verða til mikilla hagsbóta fyrir fólkið í landinu. Annað mál sem mig langar að minnast á snýr að tekjum sveitarfé- laganna. Nú er það svo að megnið af þessum tekjum fer í skólamálin. Mér finnst það skjóta skökku við að endalaust sé verið að dæla pening- um í að mennta unga fólkið til þess eins að það flytji suður. Ég væri miklu frekar til í að sjá þessa pen- inga fara í bætta þjónustu við fólk- ið úti á landi svo það geti búið við þau h'fsskilyrði sem þykja sjálfsögð í dag. Sífellt er verið að gera meiri kröfur um bætta þjónustu og mér finnst það ekki fjarri lagi að ísa- fjörður verði miðstöð verslunar og þjónustu á Vestfjörðum, svipað og Akureyri fyrir norðan. Það er víst stefna stjórnvalda, en hvort efridir fylgja orðum, það er annað mál. Lykilatriðið í þessum málum eru stórbættar samgöngur svo það taki því fyrir fólkið að sækja þá þjón- ustu sem í boði er. Áfram Katrín Steinunn hríngdi: „Ég fékk algjört sjokk þegar ég sá DV í gær. Þar var grein um þing- manninn Katrínu Júlíusdóttur og sagt frá veikindum hennar. Ég hef Lesendur haft miklar mætur á Katrínu frá því að hún kom inn á þing og má ekki til þess hugsa að hún geti ekki stundað sfn störf af jafii miklum krafti og hún hefur gert til þessa. Ég álít hana eitt mesta vonarljós íslenskra stjóm- mála og vonast til að sjá hana í fram- varðarsveit Samfylkingarinnar á næstu árum. Ég vona að hún jafni sig á þessum veikindum og komi enn sterkari til baka. Áffarn Katrín!” Erlahríngdi „Mig langaði bara að vekja athygli á því að eftir að umferðarljósin vom sett upp á Sundlaugarvegi, fyrir aftan laug- arnar, er eins og að umferðin þar hafi þyngst og versnað. Hér áður fyrr gekk umferðin ffarn hjá laugunum greiðlega Iog auðveldlega fyrir sig. Eftír að þessi ljós komu hefur stórhægst á allri um- ferð þarna, og núna myndast langar bílaraðir. Ég held jafrivel að það getí orðið slysahætta af þessu í ffamtíðinni. Það hreinlega hlýtur að vera hægt að stilla þetta af einhvem veginn þannig . að þetta gangi betur fýrir sig. Svo er nú malbikið á Sundlaugarveginum líka al- veg úr sér gengið, holótt og andstyggi- legt, en það verður nú vonandi lagað í sumar." Hitler blandast í átök í írak Á þessum degi árið 1941 sendi Adolf Hitler tvær sprengjuflug- vélar áleiðis til íraks til að styðja við bakið á uppreisn Rashids Áli al-Gailani gegn Bretum. Bretar vom á þessum tíma að reyna að fá íraka til að viðhalda sáttmála á milli ríkjanna. í upphafi seinna stríðs sleit Nuri as- Said, þá- verandi for- sætisráð- herra íraks, stjórnmála- __________________ sambandi við Þjóð- verja en gekk þess í stað í banda- lag með Bretum. f aprfl 1941 var I dag áriö 1964 vann Barbara Streisand til Grammy- verðlauna sem besta söngkonan stjórn Saids steypt af stóli af Gail- ani, sem var hershöfðingi, var andsnúinn Englendingum. Gail- ani lét skrúfa fyrir olíuleiðslu til Miðjarðarhafs sem þjónaði Eng- lendingum. Bretar stóðu vörð um hagsmuni sína og sigruðust á 9000 íröskum hermönnum í átökum um olíuna. í því skyni að aðstoða íraka sendi Hitler því flugvélar og fýlgdarlið. Það dugði ekki til og uppgöf íraka lá fýrir í lok aprfl. Ríkisstjóm var komið á laggirnar sem studdi Englend- inga og bandalag þjóðanna gekk í endurnýjun lífdaga. frak hélt áfram að gegna mikilvægu hlut- verki fyrir bandamenn í þessum heimshluta. Þeir urðu fyrsta ríki múslima til að lýsa yfir stríði á hendur Öxulveldunum. Hitler Blandaði sér f átök Breta og fraka. .. .að bæta sig? „Það er alltaf góð tilfinning að bæta sig, hvort sem það er í ræðu- mennsku eða einhverju öðm. Er það ekki alltaf markmiðið þegar maður vaknar á morgnana - að láta gott af sér leiða þann daginn? En varðandi ræðumennskuna þá stend ég að sjálfsögðu í mikilli þakkarskuld við JCI-samtökin fyrir að bjóða mér á þetta námskeið. Góð reynsla Mig minnir að það hafi verið átta manns sem byrjuðu á nám- skeiðinu. Maður má víst bara missa af einu kvöldi þannig að ekki náðu allir að út- skrifast. Nám- skeiðið sjálft var að sjálfsögðu frá- bær reynsla og mæli ég hiklaust með því fyrir alla sem vilja bæta sína framsögn og ekki síst fyrir þá sem vilja sigrast á feimni. Prófið sjálft var í formi rökræðna og var umræðuefhið fjölkvæni. Ég mælti að sjálfsögðu á móti því þar sem ég trúi áástina.Þess má geta að ég var ekki valinn ræðumaður kvöldsins heldur tmg stúlka sem á örugglega eftir að láta mikið að sér kveða í fyrra hafi verið þau að ég var mjög óreyndur ræðumaður og hafði ef til vill ekki fengið þetta uppeldi sem margir aðrir hafa fengið í ung- liðahreyfingum gamalgrónu flokk- anna. Mér finnst nú eðlilega ekki mikil eftírsjá í títlinum „lakastí ræðumaður Alþingis". Mun verra þykir mér að missa títilinn „sund- kappi Skagafjarðar" sem verður líklega annar títillinn sem ég mun sjá eftir á þessu ári. Ég er sann- færður um að þessi gagnýni sem ég fékk á mig hafi ekki verið úr lausu loftí gripin, en auðvitað reynir maður að nýta alla gagnrýni á jákvæðan hátt og setja sér há markmið. Gamaldags Alþingi Það sem helst hefur vafist fyrir mér eftir að ég hóf störf á Alþingi eru forskeytí líkt og „hæstvirtur" og „háttvirtur", en þetta eru bara hlutir sem koma með æfingunni. Mér finnst þessi hátíðleikablær sem er yfir Alþingi fæla marga, og þá sérstaklega ungt fólk, ffá um- ræðunni. Við erum að tala um hlutí sem koma öllum við sem búa stjómmálum í framtíðinni. Óreyndur í ræðumennsku Ég held að ástæða þess að ég fékk þessi skussaverðlaun í á þessu landi og það er dapurt að hugsa til þess að ungt fólk missi áhugann á þjóðfélagsumræðunni af þessum sökum." , Þóröarson alþingismaöur var valinn verstl ræðumaöur AIÞIngisaf tökunum (fyrra. f eldhúsdagsumræðumsem fram foru a Alþ.nq . . ..• __-.írioiiic nm hptur oa varð i oor tökunum I fyrra. f eldhúsdagsumræðumsem rran, ror« - Ég er sannfærður um að þessi gagnýni sem ég fékk á mig hafí ekki verið úr lausu lofti gripin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.