Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 31

Ægir - 01.10.2002, Blaðsíða 31
31 T Ö LV U T Æ K N I N Á S J Ó N U M Fyrir nokkrum vikum urðu ÚA-skipin tölvupóstvædd, sem þýðir að skipverjar eru með sín eigin netföng og geta þannig haft samband við hvern sem er gegn- um tölvupóst. Böðvar segir að eins og gengur séu menn misjafn- lega áhugasamir um notkun á þessari tækni. Sumir nýti sér tölvutæknina sáralítið, en fyrir þá sem noti tölvu mikið, sé þessi tækni mikilsverð. Möguleiki á fjarnámi úti á sjó Hér á landi er Radiomiðun um- boðsaðili fyrir Iridium kerfið. Hafsteinn Guðjónsson, sölufull- trúi hjá Radiomiðun, segir að tölvupóstvæðing fiskiskipa hafi færst mjög í vöxt að undanförnu, ekki síst þau skip sem eru í úthaf- inu, fjarri Íslands ströndum. En einnig hafi mörg skip, sem veiði í landhelginni, tekið þessa tækni í notkun, t.d. togarar Útgerðarfé- lags Akureyringa. “Þetta er algjör bylting. Auk samskipta í gegnum tölvupóst gerir þessi tækni sjó- mönnum til dæmis kleift að stunda fjarnám. Sjómenn eru með sitt eigið netfang, rétt eins og í landi,” segir Hafsteinn. Iridium kerfinu var komið á fót fyrir nokkrum árum, en síðan var það tekið niður sökum erfiðleika rekstraraðilans við að halda því gangandi. “Kerfið var síðan keypt af fjársterkum aðilum, m.a. Boeing flugvélaverksmiðjunum, og nú er rekstur kerfisins kominn í gott horf. Með aukinni notkun kerfisins er enginn vafi að notk- unargjöldin munu lækka enn frekar,” segir Hafsteinn. Hagstæður samskiptamáti Eins og áður segir eru nú þegar þónokkur hérlend skip komin með þessa tækni. Hafsteinn nefn- ir dæmi um skip, sem í septem- ber var að veiðum í Barentshaf- inu. Frá 1. september til 20. sept- ember eru skráðar um eitt þúsund tölvupóstsendingar á þetta skip. “Þetta dæmi er til marks um að menn eru farnir að nota þetta kerfi umtalsvert,” segir Hafsteinn og heldur síðan áfram. „Í tengsl- um við þetta kerfi bjóðum við upp á annars konar þjónustu. Segjum sem svo að eiginkonan þurfi að ná í eiginmanninn úti á sjó. Hún getur þá hringt í ákveð- ið númer, sem er hérna hjá okkur í Radiomiðun. Síðan slær hún inn sex stafa lykiltölu, sem er tengt hennar kreditkorti. Með þessu móti er símtalið skráð innan Iri- dium kerfisins, sem er töluvert ódýrari samskiptamáti – eða 95 sent á mínútuna. Skrifstofur út- gerðarfélaga nota þessa þjónustu í miklum mæli þegar þarf að ná sambandi við skipin,” segir Haf- steinn. Þróunin heldur áfram Enginn vafi er á því að þetta kerfi um mun þróast áfram. Hafsteinn segist sjá fyrir að næsta skref verði að geta sent stórar myndir sem viðhengi í póstsendingunum, en þetta kerfi býður ekki upp á mikla flutningsgetu. Reyndar er unnt að senda mjög litlar myndir með, en kerfið neitar að taka við myndum í góðri upplausn. „Þetta er óneitanlega mikil bylting, nú getum við sent tölvupóst án vandkvæða,“ segir Böðvar Eggertsson, vélstjóri og tölvuáhugamaður á Harðbaki EA, togara ÚA. Sjómenn eru í auknum mæli komnir í tölvupóstsamband úti á sjó: „Þetta er algjör bylting“ „Þetta er óneitanlega mikil bylting. Nú getum við sent tölvupóst án vandkvæða,” segir Böðv- ar Eggertsson, vélstjóri og tölvuáhugamaður á Harðbaki EA, um tölvusamskipti sem nú eru komin á við skipverja í gegnum hið svokallaða Iridium kerfi, sem miðlar sendingum í gegn- um gervihnött.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.