Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 Fréttir DV k'iin fynnækisl Krunisýning Skuggalwn Fjölmiðlasj Kvöldmjaltir á Dögum myrkurs Dagar myrk- urs verða haldnir íFjarðabyggð 17. til 20. nóvember. „Verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá um allt Austurland. Meðal þess sem verður á dagskrá í Fjarðabyggð er Bflabíó og ástareldur á Mjóeyrinni, kvöldmjaltir í Seldal og lifandi hand- verkssýning í Valhöll," segir á fjardabyggd.is. Dagskrána má sjá nánar á bls. 24-25. Platfyrirtækið Langlífisstofa íslands var sett á laggirnar til að framkvæma rann- sóknir á omega-3 lýsi. Gæðastimpill fyrirtækisins hefur verið settur á lýsistöflur sem seldar eru í Bandaríkjunum án þess að nokkrar rannsóknir hafi verið gerðar. Ný sumarhús á Þingvöllum Til stendur að reisa 26 frístundahús í túninu á Skálabrekku við Þingvalla- vatn. Níu eigendur annarra sumarhúsa þar í kring hafa sent inn athugasemdir við þessi áform og sveitarstjórn frestaði á síðasta fundi sín- um að afgreiða tillögu um deiliskipulag fyrir nýju húsin þar til aðalskipulag er stað- fest. Lóðimar eiga að vera á bilinu 5.900 til 22.700 fer- metrar að stærð. Nágrannar bentu meðal annars á að gert sé ráð fyrir 20 lóðum í skilmálum en að lóðir séu í raun 26. Einnig að ein lóð nái til lands sem gildur leigusamningur nái til. Bændahátfð á Ströndum Bændahátíðin á Strönd- um sem blásin var af á dög- unum vegna ótryggs veður- útlits er nú aftur komin á dagskrá. Að því er segir á strandir.is er það Sauðijár- setrið sem stendur fyrir þessari árlegu hátíð og verð- ur hún í Sævangi „laugar- dagskvöldið 19. nóvember í blíðskaparveðri" eins og segir á Strandavefnum. „Á bændahátíð verður að venju margt til skemmtunar, þaul- æfð og fjölbreytt skemmti- atriði, ræðumaður sem kemur á óvart, dýrindis grilluð lambasteik og dansi- ball á eftir þar sem Gunn- laugur Bjarnason og Sigríður Óladóttir spila og syngja." KfSSSSS Vlnav nvft k'l Zeam vóru en W________________■■ I !■! I ffFHIÍ DV 14. nóvember htnnn Cunn*rs*oii.' f.[K,kkj,r bTirfyr'm'Íkírt alvarleg Iðgbrot að npöa Mark Stenberg, stjómarformaður Iceland Health, vísar því á bug í bréfi til DV að nokkuð athugavert sé við markaðssetningu fyrir- tækisins á íslenskum omega-3 lýsistöflum sem Lýsi hf. framleið- ir og pakkar fýrir Iceland Health. væri settur á vörur fyrirtækisins. Hann vísaði þvf samt á bug að um svindl væri að ræða. MAWMUM stwfsom OMtCA-5 Johannes Gunnars- son Formaður Neyt- endasamtakanna ætl- araðtilkynna hátta- lagið til kollega sinna i Bandarikjunum. Eins og DV hefur greint frá und- anfarna daga er að finna gæðastimp- il platstofnunar sem gefið hefur verið nafnið Langlífisstofa fslands á um- búðum omega-3 lýsistaflnanna. Lýsistöflurnar eru framleiddar hér á landi og þeim pakkað af Lýsi hf. Forsvarsmenn Lýsis firra sig ábyrgð og segjast enga ábyrgð bera á merk- ingum vörunar fyrir utan innihalds- lýsingar. Katrín Pétursdóttir hefur sagt í DV að hún hafi fengið rangar upplýsingar frá Iceland Health vegna málsins og hyggst krefjast svara. Þrátt fyrir fullyrðingar Lýsis um að fyrir- tækið tengist Iceland Health ekki á nokkum hátt, fyrir utan að selja því vöru sem Iceland Health selur svo í Bandaríkjunum, sér Lýsi hf. ástæðu til þess að birta á heimasíðu sinni yf- irlýsingu ffá ánægðum viðskiptavini Iceland Health. Rannsóknarstofnun án rann- sókna Mark Stenberg segir að tilgangur- inn með stofnun Langlífisstofu ís- lands hafi verið að hvetja til frekari rannsókna á áhrifum omega-3, sem og að koma á framfæri rannsóknar- niðurstöðum annarra. Það sé eðlileg- ur og alkunna siður í Bandaríkjunum að koma á fót slíkum stofnunum til að styðja við markaðssetningu á vör- um. Því miður hafi enn ekki náðst að koma rannsóknarstarfseminni í gang en það sé á teikniborðinu. Hann vildi ekki svara því til hvers vegna gæða- stimpill íslenskrar stofnunar, sem engar rannsóknir hafi framkvæmt, Svarar engu um svindlið Sölufulltrúar sem annast sölu hinna íslensku omega-3 taflna sem framleiddar em af Lýsi hf. fyrir Iceland Health hafa fullyrt við blaða- mann að Langlífisstofa sé fjármögn- uð af ríkisstjórn fslands. Það mun ekki vera rétt. Á heimasíðu Langlífis- stofu, sem lokað var skömmu eftir að DV fór að spyijast fyrir um fyrirtækið, var að finna mynd af Háskóla íslands, líkt og tengsl væm á milli Langlífis- stofu og Háskólans en þau em ekki til staðar. Þar að auki var forstjóri Lang- lífisstofu sagður á sömu heimasíðu dr. Jón Pétur Sigurðsson. Eini maður- inn með því nafni á Islandi sór af sér öll tengsl við fyrirtækið í samtali við DV. Fullyrti að hann hafi aldrei heyrt þess getið áður. Mark Stenberg vildi ekki svara spumingum varðandi þessi atriði í gær. Heimasíðu Langlífisstofu, sem lokað var skömmu eftir að DV fór að grennslast fyrir um málið, átti að opna í gær samkvæmt til- kynningu sem þar var að finna. Hún var enn lokuð þegar DV fór í prentun í gær. andri@dv.is lceland Health Stjórnarfor- maður fyrirtækisins segir ekk- er athugavert við málið. Industria á Irlandi íslendingar tæknivæða írland Upplýsingatæknifyrirtækið Industria hefur samið um uppbygg- ingu breiðbandskerfis fyrir stafrænt sjónvarp á írlandi. Samningur um verkið var undirritaður í gær. Verk- efnið er hið stærsta sinnar tegundar sem Industria hefur tekið að sér og hleypur á milljörðum króna. Einn aðaleigenda Industria er Guðjón Már Guðjónsson sem var áður kenndur við Oz. Hann telur þetta mikla viðurkenningu fyrir þá vinnu sem starfsfólk félagsins hefitr Hvaö liggur á? lagt á sig undanfarin ár og f sam- ræmi við stefnu félagsins um að verða leiðandi á sínu sviði í Evrópu. Samið var við fyrirtækið Magnet Networks sem er í eigu Columbia Ventures, fyrirtækis Kenneths Peter- sons sem er íslendingum vel kunn- ur. Hann hefur áður fjárfest í Og Vodafone og Norðuráli svo eitthvað sé nefnt. Samningurinn felur í sér að Industria tekur að sér uppbyggingu breiðbandskerfis Magnet frá grunni fyrir stafrænt sjónvarp, símaþjón- 1 ■BHpífe j ■'<'ðK - fe IKenneth Peterson og Guðjón Már Semja um uppbyggingu breiðbandskerfis á frlandi. „Það liggur á að hlusta á allar plöturnar sem eru að koma út fyrir jólin," segir Guðni Már Henningsson, einn umsjónarmanna Popplands á Rás 2.„Það er þvilíkt ógrynni af efni sem kemur út núna og ég þarfað nýta allan mögulegan og ómögulegan tíma til að hlusta. Ég hlusta á tónlist í vinnunni, í bílnum og jafnvel þegar ég sef. Þettá er í undirmeðvitundinni altan sótarhringinn." ustu og háhraðanetþjónustu á írska markaðnum. Fyrst um sinn verður lögð áhersla á uppbyggingu kerfis- ins í Dublin og nágrenni. Um er að ræða stærsta útflutningsverkefni á þessu sviði sem íslenskt fyrirtæki hefur tekið þátt í, en samningurinn sem nú hefur verið gerður býður ennfremur upp á frekari uppbygg- ingu og auknar tekjur. Saga Garða- bæjar skrifuð Bæjarráð Garðabæjar sam- þykkti á fundi sfnum í gær til- lögu ritnefndar að ráða Steinar J. Lúðvíksson til að annast ritun á sögu Garðabæjar. Bæjarstjóra var falin frekari afgreiðsla máls- ins en að öðru leyti var bréfi rit- nefndar vísað til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar. Steinar er búsettur í Garðabæ og hefur meðal annars skrifað bókina Á vaktinni, sem er ævisaga Hann- esar Þ. Hafstein sem var lands- þekktur fyrir störf sín fyrir Slysa- varnafélags Islands. Segist ekki vera svindlari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.