Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2006, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 14.JANÚAR2006 Helgarblað DV snu/'tíoucuuuicL Góður maskari „Þessi er frá Yves Saint Laurent. Mér finnst hann mjög góður enda yfirleitt góðar vörur sem koma frá þessu merki." Augnblýanturinn Augnblýantur Vigdísar kemur einnig frá því góða merki Yves Saint Laurent. Eitthvað sem klikkar aldrei þó oft reyn- ist manni erfitt að bera fram heitið á merk- inu. Meikpúðrið Vigdís segist hafa notað þetta meikpúður í nokkur ár enda sé hún mjög ánægð með það. Það sé svo- lítið dýrt en vel þess virði. „Þetta er rosalega gott. Yfirleitt kaupi ég það í versluninni Hygea." Sólarpúður á kinnbeinin „Þetta hér er frá Christian Dior. Með því skyggi ég kinnbeinin og fríka mig aðeins upp." Varalitablýanturinn fráMac Vigdís segist kunnaj mjög vel við vörumar frá j Mac en þær hafa notiðj síaukinna vinsælda hér-1 lendis. Varaliturinn Liturinn er klassíkur! og fallegur og segist Vig- f dís hafa góða reynslu af j vörum frá fyrirtækinu J No Name. Augnskuggamir Þeir koma frá Estée Lauder. Eins og sést á myndinni samanstendur askjan af litum sem eiga vel við hversdags og þá sem ' JMF1 betur passa við \ virðuleg | .’;ív | tilefni. Vilborg Víðisdóttir danskennari geislar af heilbrigði og glæsileika. Hún kennir dans í Landakotsskóla og segist ávallt hafa gaman að því að kenna börnum réttu sporin f dansinum. Við fengum að Ifta f snyrtibuddu þessarar fallegu konu og þar með að skyggnast á bak brot af leyndardómum fegurðar hennar. Vilborg segist hafa gaman af því að mála sig en haldi ekki sérstakri tryggð við eitthvað eitt merki. „Það er voða gaman að mála mig þótt ég reyni nú að gera ekki of mikið að þvf," segir hún enda vita flestir að falleg förðun setur punkt- inn yfir i-ið þegar maður ætlar að líta vel út. Athafnakonan Hrefnu Björk Sverrisdóttur langaði að gera eitthvað skemmtilegt og græða á því eftir að hún útskrifaðist úr framhaldsskóla. Hún stofnaði því stelpublaðið Orðlaus með tveimur vinkonum sínum. Nú er blaðið búið að koma reglu- lega út í rúm fimm ár. Árið 2000 kom út fyrsta tölublað tímaritsins Orðlaus. Hrefna Björk Sverrisdóttir er ein af stofnendum og núverandi framkvæmdastjóri þess. Hún ákvað þegar stúdents- prófið var í höfn að hleypa af stokk- unum blaði fyrir stelpur. Hún stakk sér því í djúpu laugina ásamt með vinkonum sínum Steinunni Jakobs- dóttur og Ernu Þrastardóttur. „Við vorum búnar með mennta- skólann og okkur langaði eiginlega bara til að gera eitthvað skemmtilegt og héldum að við myndum hugsan- lega græða á því í leiðinni. Okkur fannst vanta blað fyrir ungt kven- fólk. Á þessum tíma var blaðið Undirtónar gefið út og það átti að höfða til ungs fólks. Okkur fannst það vera svo strákalegt þannig að við sáum í hendi okkar að þarna væri gat á markaðnum og ákváðum að hella okkur bara út í útgáfu." Erfið fæðing Útgáfa blaðisins vakti mikla athygli og þótti það kærkomin við- bót í fjölmiðlaflóruná en þær stöllur voru ekki beinlínis ab hala inn aur- unum í byrjun. „Þetta var alveg rosalegt strögl í byrjun. Við gáturp ekki borgað sjálfum okkur nein laun alveg heil- lengi og þurftum allar áð vinna við eitthvað annað með. iÞetta var í raun og veru svolítið sjokllfyrir okkur. Að þetta væri svona erfitt. Ef við hefðum sest niður og gert viðskipta- áætlun hefðum við ikugglega aldrei farið út í þetta." En eftir margra mánuða strögl fór erfiðið að borga sig, blaðið stækkaði og dafnaði og fjárhagurinn fór að batna. „Þetta fór svo lojsins að ganga mjög vel, við fórum að geta borgað okkur laun og svoleiðis og þetta hefur aldrei gengið betur en einmitt núna." Launaseðlar mánaðalega Útgáfufyrirtækið Ár og dagur sem gefur út Blaðið keypti reksturinn af þeim stöllum í fyrra og hefur blaðið verið algerlega sjálfstæð eining innan fyrirtækisins síðan reksturinn var keyptur. „Við sjáum enn um allt sjálfar, bókhald og auglýsingasölu og slíkt, það breyttist voðalega lítið nema að við erum lausar við þessa íjárhags- legu ábyrgð sem fylgdi því að gera þetta út sjálfar. Núna fáum við örugg laun og launaseðla reglulega." segir Hrefna. Ásamt Hrefnu vinna þær Stein- unn Jakobsdóttir ritsjóri og Hilda Cortes sem skrifar efni og selur aug- lýsingar. „Síðan erum við með ljósmynd- ara, teiknara og lausapenna úr öllum áttum." Orðlaus kemur nú út ellefu sinn- um á ári og er næsta blaðs að vænta í febrúar. Blómstraðu í vinnunni Byrjaðu á að gera lista yfir veik- leika þína og styrkleika. Berðu svo listann undir þá sem þú þekkir vel og biddu um álit á list- anum. Ef þú ert til dæmis eirðarlaus að eðlisfari ætt- irðu að fá þér vinnu þar sem þú ert mikið á ferðinni, og svo framvegis. Þá er nauðsynlegt til að ná markmiðum sínum að horfast í augu við ótta sinn og neyða sjálfan sig til að gera eitthvað sem maður hefur aldrei þorað. Það þarf í byrjun ekki að vera merkilegra en að fara ein í bíó. Æfðu þig síðan í að sigrast á litlum hindrunum og bættu smám saman í. Notaðu þetta líka í vinnunni, og áður en þú veist af verður þú farin að láta að þér kveða og tjá þig í margmenni. Vertu svo skipulögð og taktu til á öllum sviðum. Það opnar fyrir nýja strauma og tækifæri. Taktu til í tölvunni, hentu gömlum tölvu- póstum og farðu í gegnum gamla pappírshauga. Ekki gleyma að taka til í veskinu þínu, snyrtibuddunni og fataskápnum. Þá er mikilvægt að treysta ekki fólki í blindni. Það er ekki þar með sagt að allir séu á þínu bandi svo vertu varkár í vinavali, ekki síst á vinnustað og ekki trúa hverj- um sem er fyrir leyndarmálum þínum. Vertu samt trú þinni sann- færingu og spurðu svo sjálfa þig hvað þú raunverulega vilt fá út úr lífinu. Ef núverandi vinnustaður býður ekki upp á að draumarnir rætist þá er ekki eftir neinu að bíða. Segðu upp-og fáðu þér nýja vinnu þar sem þú blómstrar og nýtur þín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.