Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 Sport J3V Logi með 43 stig í sigurleik Logi Gunnarsson, lands- liðsmaður og leikmaður BBC Bayreuth í þýsku 2. deildinni í körfubolta, átti stórleik þegar lið hans vann TSV Tröster Breitengiiss- bach 111-105 í framlengd- um leik í fyrrakvöld. Logi skoraði 43 stig og var stiga- hæsti leikmaður vallarins. Logi hitti úr 4 af 8 tveggja stiga skotum sínum, 7 af 12 þriggja stiga skotum og 14 af 17 vítum. Hann tók einnig 3 fráköst, gaf 1 stoðsendingu og stal 2 bolt- um á 35 mínútum. Logi hafði mest skoraði áður 29 stig á móti Lich. Nýrforseti varar sína menn við Femando Martin, nýi forseti Real Madrid, hefur varað leikmenn félagsins við um að nú þurfi allir leikmenn liðsins að leggja sig hundrað prósent fram á æfingum jafnt sem leikj- um. „Eg vill ekki iið upp- fullt af milljónamæringum. Ég vil lið fullt af metnaðar- fullum íþróttamönnum sem leggja sig fram 24 klukkutíma á sólarhring til þess að Real Madrid nái sem bestum árangri," sagði Martin á blaða- mannafundi sem hann hélt. „Þeir leikmenn sem ætla að verða hér með hangandi haus eru ekki velkomnir," bætti Martin síðan við. Móðveriar töpuðu 4-1 fyrir ítölum 1 Flórens og þýsku blöðin láta landsliðsþjalf- arann JurgenKbnsmann heyra það i umfiöllun sinni um lerkmn en hð- ið hafði ekki tapað svo stórt áður undir hans stjorn. 99 DAGAR í HM og geslptarmr í m ragli •*“ * Jurgen Klinsmann fær svo sannarlega að heyra það ffá þýskum fjölmiðlamönnum, sem eru allt annað en sáttir að hafa þurft að horfa upp á 4-1 tap fyrir ítölum í vináttulandsleik á miðvikudags- kvöldið. ítalir skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleik og voru komnir í 4-0 eftir aðeins 57 mínútna leik. Chelsea-leikamaðurinn Robert hvafi vih erum lélegir" Huth náði að minnka muninn átta mínútum fyrir leikslok en heilt yfir var leikur þýska landsliðsins hrein hörmung. Þýska landsliðið átti aldrei möguleika gegn ákveðnum ítölum sem hafa nú leikið 16 leiki í röð án þess að tapa og það er ljóst að Marcelo Lippi er að koma upp með liðið á hárréttum tíma fyrir HM. Þýska liðið var hikandi og bitlaust í öllum sínum aðgerðum og eftir að ítalirnir voru búnir að skora tvö mörk eftir aðeins sjö mínútur var ljóst að þetta yrði ekki dagur þeirra. Alessandro Del Piero var í miklu stuði og það var því táknrænt að hann skildi skora fjórða og síðasta mark ítalska liðsins í leiknum. Teknir f kennslustund Michael Ballack, fyrirliði Þjóðverja, þakkaði guði fyrir aðstutt vari næsta landsleik. Liðið hefur aldrei spilað verr Þýska dagblaðið Bild er ekkert að spara yfirlýsingarnar. Fyrirsögn blaðsins í umíjöllun um leikinn er „Mamma mia, hvað við erum léleg- ir“ og við hliðina er mynd af Klins- mann þungum yfirlitum og allt annað en ánægður með gang mála inni á vellinum. „Það eru aðeins 99 dagar til HM og knattspyrnulands- liðið okkar hefur aldrei spilað verr. „Ef við spilum svona illa á HM í sumar þá fer illa fyrir okkur," sagði ennfremur í greininni í Bild um leikinn. Allir leikmenn þýska liðs- ins fengu lægstu einkunn, 6, en leikmenn Itala fengu allir einkunn á biliunu tveimur til þremur en einn er besta einkunn sem þýsku fjölmiðlamennirnir gefa. Christian Wörns eini sigurvegari kvöldsins „Varnarlínan spilaði svo illa í þessum leik að eini sigurvegari kvöldsins var hinn útilokaði Christ- ian Wörns," sagði Frankfurter All- gemeine Zeitung, en Jurgen Klins- mann hefur ákveðið að velja ekki hinn reynslumikla Wörns þar sem að hann gagnrýndi þjálfunarað- ferðir Klinsmann opinberlega. Blaðið gagnrýndi leikstíl þýska liðsins og fann sérstaklega að því að varnarmenn liðsins hafi pressað ítalina of hátt uppi og um leið gefið ítölsku sóknarmönnunum alltof stórt svæði til að vinna með. Stærsta tap Þjóðverja fyrir ítölum síðan 1939 Hið virta blað Kicker talaði um stórslys og að þýska landsliðið hafi verið tekið í taktíska kennslustund af mun teknískri leikmönnum ítala. Þetta var stærsta tap Þjóð- verja fyrir ítölum síðan ítalir unnu viðureign þjóðanna í vináttulands- leik árið 1939, en það er mikið áhyggjuefni fyrir IQinsmann og þýska landsliðið að Þýskaland hef- ur ekki unnið landsleik gegn stórri knattspyrnuþjóð síðan 2000. Þýska landsliðið hefur nú leikið 17 leiki í röð á móti bestu þjóðum heims án þess að bera sigur úr býtum. Teknir í kennslustund „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur alla. Við vorum teknir í kennslustund í fyrri hálfleiknum en þessi leikur er búinn og við þurfum að taka gagnrýninni og halda áfram," sagði Jurgen Klinsmann eftir leikinn og bætti við: „Við gerð- um of mörg mistök í vörninni og þeir refsuðu okkur fyrir það. í stöð- unni 2-0 gátu þeir beitt skyndi- sóknum og við áttum ekki nægilega góð svör við því.“ Það eina sem fyrirliðinn Mich- ael Ballack var ánægður með var að stutt er í næsta leik liðsins en Þjóð- verjar mæta Bandaríkjamönnum í Dortmund 22. mars næstkomandi. „Ég þakka guði fýrir það að það eru bara þrjár vikur í næsta leik. Það er öruggt að það kemur allt annað þýskt landslið inn á völlinn í þeim leik," sagði Ballack. Harðlega gagnrýndur Leikað- ferð Jurgen Klinsmanns gegn Itöl- um fær útreið íþýskum fjölmiðl- umeftir4-l tapqeqnItölum. Þýska landsliðið á eftir að spila þrjá vin- áttulandsleiki. Leikirn- ir eru gegn Bandaríkj- unum (22. mars), Japan (30. maí) og Kólumbíu (2. júní). Auk Kosta Ríku mæta Þjóðverjar Póllandi og Ekvador í riðlakeppni Heims- meistaramótsins. NJÓTTU LÍFSINS með HEILBRIpÐUM LIFSSTIL Stigahæsti leikmaöur 1. deildar kvenna lék kveðjuleikinn Anna María kvaddi með 5001 stigi Anna María Sveinsdóttir kvaddi kvennalið Keflavíkur í 36 stiga sigur- leik gegn Breiðabliki í Keflavík á mið- vikudagskvöldið. Eins og DV greindi frá á sínum tíma þá vantaði Önnu Maríu aðeins fjögur stig til þess að bijóta 5000 stiga múrinn í 1. deild kvenna, en engin önnur hefur náð að skora yfir 3309 stig í efstu deild kvenna. Anna María og Sverrir Þór Sverrrisson, þjálfari Keflavíkurliðsins, komu sér saman um að hún myndi spila þennan Breiðabliksleik og freista þess þar að skora þessi fjögur stig. Anna María lék ekkert í 1. leikhluta en byrjaði 2. leikhlutann og eftir 1 mínútur og 40 sekúndu var hún búinn að skora úr ldassísku stökkskoti rétt utan við teiginn. Þá voru bara tvö stig eftir, en Anna María og aðrir áhorf- endur á leiknum þurftu að bíða að- eins eftir þeim. Anna María skoraði ekki aftur fyrr en í flórða leikhlutanum. Hún hitti þá úr einu víti og var komin með 4999 stig og aðeins eitt stig eftir í það fimm þúsundasta. Það liðu aðeins sjö sek- úndur þar til hún bætti úr því. Anna María fékk sendingu frá Báru Bragadóttur og setti niður stökkskot rétt utan teigs. Sverrir Þór Sverrisson fékk aðeins að beygja reglumar með því að taka leikhlé og Anna María var hyllt um leið og hún yfirgaf körfu- boltavöllinn í síðasta sinn. Anna María Sveinsdóttir á að baki ótrúlegan feril, á bæði leikjametið (324) og stigametið (5001) í efstu deild kvenna og hefur unnið 40 titla með Keflavík, 12 íslandsmeistaratitla, 11 bikarmeistaratitla, 9 deildarmeist- aratitla, 3 fyrirtækjabikara og meist- arakeppni KKI fimm sinnum. Lokakarfa Önnu Maríu Anna María Sveinsdóttir setur hér punktinn yfir stórkost- legan feril með þvi að skora 5001. stig sitt i efstu deild kvenna. DV-mynd Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.