Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2006, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 Fréttir DV Nýjar fréttir af morðinuá JóniÞór Rannsóknarlögreglan í E1 Salvador er með upplýs- ingar sem gætu leitt hana til morðingja Jóns Þórs Ólafs- sonar og Brendu Salinas í E1 Salvador. Salvador Mart- inez, upplýsingafulltrúi lögreglunnar, segir að verið sé að yfir- heyra manneskju úr glæpagenginu sem rændi Jóni og Brendu og myrti þau síð- an á hrottalegan hátt. Þessi manneskja var viðstödd þegar þau voru numin á brott og ætlar að gefa lög- reglunni upp hver atburða- rásin var og hverjir voru að verki. Lögreglan í E1 Salva- dor segir að þessi einstakl- ingur fái vægari dóm fyrir að gefa lögreglunni þess- ar upplýsingar og tíðkist shk vinnubrögð við rann- sókn morðmála. Lögreglan er mjög bjartsýn á að geta upplýst málið og handtekið morðingjana. Þrífi líka á Heiðarfjalli Eigendur Heiðarfjalls á Langanesi sendu í gær bréf til sendiherra Bandaríkj- anna á Islandi þar sem þeir óska eftir því að Bandaríkja- her þrífi eft- ir sig gamlan eiturúrgang á Heiðarfjalli á sama hátt og gert verður þegar herstöð- in í Keflavík verður yfir- gefin. Áralöng deila hefur staðið milli landeigend- anna og Bandaríkjamanna um úrganginn sem skilinn var eftir þegar ratsjárstöð á Heiðarfjalli var lögð niður árið 1970. „Það liggur á að stækka flutningsgetuna á Ijósleiðar- anum til ísafjarðar," segir Björn Davíðsson, þróunar- stjórl Snerpu á Isafirði. „Það ligguráþví vegna þess að það er allt uppselt afþví sem tilernúna." Vistmenn elli- og hjúkrunarheimila fengu litla umönnun í gær því 900 starfsmenn Efl- ingar voru í setuverkfalli í sólarhring. Á Hrafnistu í Reykjavík fengu hjónin Björn Kristj- ánsson og Auður Axelsdóttir einungis eina jógúrtdós í morgunmat. Þeir vistmenn sem þurfa hjálp við að klæða sig fóru margir ekki fram úr rúmum sínum því enginn var til að aðstoða þar sem starfsfólkið sem sér um umönnunarstörfin er í Eflingu. 669 Björn Kristjansson vistmaður á Hrafnistu í Reykjavík Fékkbaraeina jógúrt Imorgunmatog sneið af lifrarpylsu í hádeginu. DV-mynd: Vilhelm Álfheiður Bjamadóttir, talsmaður starfsfólks Eflingar, segir að þetta sé bara byrjunin á verkfallshrinu ef ekkert verður að gert. Sjálfseign- arstofnanir með styrk frá ríkinu greiða starfsfólki Eflingar 20 til 30 prósent lægri laun en starfsfólk í sambærilegum störfum hjá Reykja- víkurborg. Byrjunarlaun þeirra em 101 þúsund á mánuði á meðan Reykjavíkurborg borgar í byrjunarlaun 134 þúsund á mánuði. Þetta er starfsfólk Eflingar ekki sátt við og krefst launahækkana. „Það er voðalega skrítið ástand hérna hjá okkur," segir Björn Kristj- ánsson vistmaður á Hrafnistu í Reykjavík. „Ég fór í matsalinn í morgunmat og þar var ekkert að hafa nema eina jógúrtdós. Ég borð- aði hana uppi á herbergi og náði í aðra fyrir konuna mína." Björn og konan hans Auður Ax- elsdóttir eru búin að vera á Hrafn- istu í sex ár og segja að aldrei fyrr hafi starfsfólkið farið í verkfall. „Þetta eru eðlileg viðbrögð hjá starfsfólkinu því það er illa launað og fær ekki sömu laun og aðrir í sömu umönnunar- störfum," segir Björn. Mikið álag „Það er mikið álag á starfsfólkinu því það vantar svo fólk í þessi störf," segir Álfheiður Bjarnadóttir tals- maður starfsfólks Eflingar. „Það var ákveðið að allir 900 starfsmenn Efl- ingar færu í þetta verkfall til að krefj- ast sömu launa og Reykjavíkurborg borgar sínu fólki og ef við fáum eng- in viðbrögð gæti hugsast að við fær- um aftur í svona verkfall og þá í fleiri daga," segir Álfheiður. Sinna frumþörfum fólksins „Frumþörfum fólksins verður sinnt og þó að sumir verði að vera á sloppnum allan daginn verður bara svo að vera," segir Alma Birgisdóttir framkvæmdastjóri Hrafnistu í Hafn- arfirði. „Sumir eru bara ánægðir með að fá að sofa aðeins lengur og allir fá að borða þó að það verði ekki heitur matur," segir Alma. Álfheiður Bjarnadóttir talsmaður starfsfólks Eflingar Segir að 900 starfsmenn Eflingar séu mjög óánægðir með léleg laun og mikið vinnuáiag. DV-mynd: Vilhelm ARMY HUFUR AÐEINS KR. 1690 Síðar hálsfestar frá kr. 990 Fermingarhárskraut og hárspangir í miklu úrvali SKARTHUSIÐ Laugavegi )2, s. 562 2466 Nafninu breytt á síðustu stundu Egla hét Tvísker „Það er stundum svona þeg- ar menn ganga upp kirkjugólfið og ákveða ekki nafnið fýrr en á síðustu stundu," segir Kristinn Hallgrímsson hæstaréttarlögmaður og fýrsti stjórn- arformaður Eglu sem er einn stærsti hluthafinn í KB banka. í fylgiskjölum með samantekt Ríkisendurskoðun- ar vegna nýrra gagna og upplýsinga um sölu á Búnaðarbankanum kem- ur fram að í upphafi hét Egla Tví- sker. Er Tvískers-nafnið alltaf notað í fyrstu fundargerðunum en krotað ofan í nafnið og Egla sett í staðinn með kúlupenna. „Ég veit ekki hvers vegna þetta var svona. Menn voru einfaldlega ekki búnir að koma sér niður á endanlegt nafn," segir Kristinn Hallgrímsson en á frekar von á að Ólafur Ólafsson, lengst af kenndur við Samskip, hafi ráðið nafninu að lokum og veðjað á Eglu. Ólafur Ólafsson Fiér með annarri kanónu úr fjármálageiranum, Sigurjóni Þ. Árnasyni, bankastjóra Landsbankans. SAMl-VKKtlRf'VHIH WtMHtRMIF. Fyrsta fundargerðin frá 14. nóvember 2002 Strikaö hefur verið ofan i Tvísker og Egla sett I staðinn.___________ „Ólafur á rætur í Borgarfirði og þangað sækir hann líklega nafnið," segir Kristinn og vísar þar til Egils Skallagrímssonar sem gerði garðinn frægann í Borgarfirði á árum áður ekki síður en Þeir Ölafur og Kristinn í Eglu nú á íslenskum fjármálamarkaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.