Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2003, Blaðsíða 22

Freyr - 01.05.2003, Blaðsíða 22
Afkvæmarannsóknir á nautum Nautastöðvar BÍ sem fædd voru árlð 1996 ér verður fjallað um nokkrar helstu niður- stöður, sem ástæða þyk- ir til að vekja athygli á, úr af- kvæmarannsókn á nautum Nautastöðvar BÍ, sem fædd voru árið 1996. Endanlegur af- kvæmadómur nautanna fór fram á fundi hjá ræktunarhópi Fagráðs í nautgriparækt sem fram fór í byrjun mars 2003. Þessi árgangur nauta hefúr ýmis augljós einkenni þegar hann er skoðaður nánar. Þarna kemur fram talsvert af verulega áhuga- verðum gripum fyrir ræktunar- starfið. I þessum hópi er ekki að finna neina afgerandi toppa með tilliti til afurðasemi eins og verið hafa í undangengnum tveim ár- göngum. Nautin eru með tilliti til þeirra eiginleika nokkuð jöfn og margt góðar gripa. Meginkostir fyrir ræktunarstarfið, sem fást með þessum hópi, eru að þar eru margir úrvalsgripir hvað viðkem- ur júgur- og spenagerð og gagn- vart mjöltum er þetta vafalítið lang kostamesti hópur sem nokkru sinni hefiir komið til prófunar. A allra siðustu árum hefur markvisst verið unnið að því að treysta dóm á nautunum með því að taka upp samræmda skoðun á nær öllum dætrum þessara nauta hvar sem þær er að fínna á land- eftir Jón Viðar Jónmundsson Bænda- samtökum íslands inu. Þetta kemur fram í miklu stærri dætrahópum, sem skoðaðir eru undan hverju nauti, en áður var. Með því á að fást miklu ná- kvæmara mat um þá eiginleika sem þar eru metnir en áður var fyrir hendi. Það opnar að sjálf- sögðu um leið möguleika á að taka meira tillit til þessara eigin- leika í endanlegu vali nautanna en áður var réttlætanlegt á meðan dómur var miklu ónákvæmari. Þessi árgangur nauta var tals- vert minni en árið áður. Til endan- legs dóms kemur 21 naut. Auk þess voru tvö naut, Númi 96008 og Dáti 96022, sem forfolluðust strax effir að notkun þeirra hófst frá Nautstöðinni. Undan hvoru nauti kom fram um tugur dætra og það er að sjálfsögðu alltof fáir gripir til þess að nokkru sinni verði felldur dómur um þau. Und- an nautum í þessum árgangi voru samtals skoðaðar 1500 kýr og það gerðist nú í fyrsta sinn að undan einstöku nauti komu fleiri en 100 dætur til skoðunar. Skyldleiki nautanna er eins og Prakkari 96007. Dætur hans eru fremur smávaxnar, með sterklega júgurgerð og góðar mjaltir. 122 - Freyr 4/2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.