Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 29

Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 29
Áhrif fóðurstyrks og tímalengd- ar innifóðrunar á vöxl lamba Inngangur Þegar rætt er um haustbötun sláturlamba er venjulega átt við beit lamba á grænfóður og tún eft- ir að þau koma af úthaga. Tilgang- urinn með haustbötun er að auka fallþunga lamba og bæta vaxtar- lagsflokkun án þess þó að fitu- söfnun verði óhófleg. Haustbötun getur líka verið liður í að lengja sláturtíð fram eftir hausti þar sem hún stuðlar að því að lömb séu lengur í sláturhæfu ástandi eftir að úthagagróður hættir að fullnægja þörfúm lambanna fyrir góða nær- ingu. Efhalda á eldi áffam eftir að veður geta farið að hamla beit verður að koma til innifóðrun. Hún er að jafnaði dýrari en beitin en hvatinn til innifóðrunar felst fyrst og fremst í hærra afúrðaverði utan hefðbundins sláturtíma, svo sem í nóvember og desember. Með samþjöppun slátrunar á færri sláturhús er þörfin fyrir að færa slátrunina út fyrir hefðbundinn sláturtíma að aukast gífurlega. Tilraunin sem hér er skýrt ffá var ffamkvæmd á tilraunabúi RALA og LBH á Hesti haustið 2002. Markmiðið með henni var einkum að skoða árangur af innifóðrun eft- ir tímalengd innifóðrunar og fóður- styrk. Notað var annars vegar ein- göngu úrvals gróffóður og hins vegar sama gróffóður ásamt til- tölulega stórum kjamfóður- skammti, eða 400 g/lamb/dag. í báðum tilvikum fengu lömbin að éta gróffóðrið eftir að lyst. Astæð- an fyrir því að prófa svo stóran kjamfóðurskammt er sú að á stutt- um innieldistíma, einkum á þeim tíma árs er hér var reynt, gengur off illa að fá lömb til að vaxa svo ein- hverju nemi. Því er hugsanlegt að réttlætanlegt geti verið að gefa stóran kjamfóðurskammt í stuttan tíma ef það má verða til þess að ná þeim vexti er til þarf svo að lamb- ið nái hæfilegri sláturstærð fyrir til- tekinn tíma. Þetta er gjaman gert j erlendis og þá jafnvel notaðir enn stærri kjamfóðurskammtar en hér var gert. Aðstæður þar em hins vegar ólíkar, kjamfóður ódýrara en gróffóður oft lakara að gæðum en gengur og gerist. Megin spuming- in hér var því sú hvort innflutt kjamfóður væri samkeppnishæft við íslenskt úrvals gróffóður til innieldis lamba í mislangan tíma (3 eða 6 vikur) að hausti. Efni og aðferðir í tilraunina vom valin 96 lömb, sem voru í léttari kantinum um rétt- ir, það er lömb sem þurftu nokkra bötun til að ná hagkvæmum fall- þunga og flokkun. Nánar til tekið var meðalþyngd þessara lamba við upphaf tilraunar þann 30. septemb- er 31,1 kg. Lömbunum var skipt í sex jafha hópa (16 lömb í hveijum) með tilliti til lífþunga og kynjahlut- föll jöfnuð milli hópa. Hrútlömb, sem vom tæpur þriðjungur til- raunalambanna, vom gelt við upp- haf tilraunar. Öllum lömbum, nema viðmiðunarhóp, var gefið ormalyf í upphafi tilraunar. Tilraunahópar vom sex: A. Slátrað í upphafi tilraunar (viðmiðunarhópur). B. Slátrað eftir 5 vikur á káli. C. Kálbeit í 5 vikur, innifóðmn í þrjár vikur, gróffóður eingöngu D. Kálbeit í 5 vikur, innifóðmn í þrjár vikur, gróffóður og kjam- fóður Emmu Eyþórsdóttur °g Eyjólf K. Örnólfsson, Rannsókna- stofnun land- búnaðarins og Landbúnaðar- háskólanum á Hvanneyri E. Kálbeit í 5 vikur, innifóðmn í sex vikur, gróffóður eingöngu F. Kálbeit í 5 vikur, innifóðrun í sex vikur, gróffóður og kjam- fóður Til frekari skýringar er tilrauna- skipulaginu lýst á 1. mynd. Gróffóðrið var forþurrkuð há er bundin var í plastpakkaða stór- bagga. Meðalþurrefnisinnihald háarinnar yfir alla tilraunina var 63,5%. Kjamfóðurskammturinn var alls 400 g/dag, þar af ca. 320 g þurrkað en ómalað innflutt bygg og 80 g Milljónablanda frá Fóður- blöndunni hf., en sú blanda inni- heldur 68,75% fiskimjöl, 30% bygg, auk magnesíumfosfats, vítamína og snefilefna. Öll lömbin, þ.e. þau sem vom eft- ir lifandi hveiju sinni, vom vigtuð á Freyr 7/2003 - 29 |
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.