Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2005, Blaðsíða 4

Freyr - 01.06.2005, Blaðsíða 4
HEYVERKUN Hjálparefni við heyverkun Hjálparefni til nota við heyverkun, oft einnig kölluð íblöndunarefni, hafa verið á boðstólum um langt árabil. Um þessar mundir er fjöldi efna fáanlegur. Mörg þeirra eru svipuð að áhrifum. Ytri skilyrði hey- verkunarinnar ráða efnisvali, og því hvort yfirleitt er þörf hjálparefna. IBjarni Guðmundsson, Landbúnaðarháskóla íslands HLUTVERK HJÁLPAREFNANNA? Hjálparefni eiga að tryggja það að ferill verkunar heysins haldist innan fyrirsjáanlegra marka, að örva mjólkursýrugerjun í heyinu, að draga úr efnatapi við geymslu heysins og að bæta fóðurgildi þess. Verkun heys er háð mörgum og samverkandi áhrifaþáttum, þar sem það er sjaldnast einn þáttur sem ár- angrinum ræður. Um sumt er heyverkun lík skyrgerð, nema þar er unnið með gerilsneytt hráefni og ytri aðstæðum (hreinleika, hitastigi ...) stýrt ná- kvæmlega. Eftir hætti er réttri tegund örvera og nauðsynleg- um hjálparefnum bætt í lögun- ina og árangurinn verður hinn sami frá einni lögun til annarrar. Ennþá er ekki unnt að geril- sneyða heyið, og gerð þess og efnasamsetning er afar breyti- leg. Gott hey má stundum gera betra með notkun viðeigandi hjálparefna. Megni þau að draga úr niðurbroti próteins og/eða fóðursykra batnar fóð- urgildi heysins. Um áhrifin mun- ar mest þar sem heyið er megin- hluti fóðurs eða jafnvel einasta fóðrið sem gefið er. Sé annað fóður (t.d. kjarnfóður) gefið með, munar minna um áhrif hjálpar- efna. Þá má bæta hugsanlega efnavöntun með réttu vali kjarnfóðurs, en spurningin snýst um kostnað - hvor leiðin muni vera hagkvæmust. VAL HJÁLPAREFNA? Bretinn Wilkinson leggur áherslu á þrennt við kaup hjálp- arefna: Virkni efnanna þarf að hafa verið staðfest með skipulegum rannsóknum. Þannig er gagns- lítið að styðjast við niðurstöður fengnar með verkun á maís í einum heimshluta ef verka á hey úr grastegundum eða smára t öðrum heimshluta. Vitn- isburðir bænda eru gagnslitlir, segir Wilkinson ennfremur, þar sem sjaldnast er þá byggt á beinum samanburði við önnur efni eða verkun heys án íblönd- unar. Umfangsmiklar rannsókn- ir eru gerðar á virkni hjálpar- efna. Þær, sem gerðar eru á vegum opinberra aðila, eru not- endum mikill stuðningur. Þjóð- verjar, en þó einkum Frakkar, hafa verið að koma upp sér- stökum matskerfum og í Frakk- landi er svo langt gengið að óheimilt er að setja á markað hjálparefni til heyverkunar sem ekki hafa verið reynd í sérstök- um tilraunum í samanburði við maurasýru. Hvaða hætta kann að fylgja notkun efnanna? Sýrur geta skaðað húð, og augu eru sér- lega viðkvæm. Gufur frá efnun- um geta valdið óþægindum í öndunarfærum. Sýrandi efni krefjast sérstakrar aðgátar við flutninga, og þau geta skemmt málmfleti og vélarhluta. Blönd- un sýrandi efna í blautt og sykruríkt hráefni leiðirtil mikillar súrmyndunar, jafnvel svo að heyið verði skepnunum ólyst- ugt. Einsleitni efnanna er mikil- vægt athugunarefni. Er efni eins að samsetningu nú og þegar það var fyrst sett á markað og prófað? Sem hjálparefni í hey var maurasýra (formic acid) markaðssett og reynd sem 85% hrein sýra. Siðan hefur komið fram urmull hjálparefna byggð- ur á maurasýru í lægri styrk. Kynnum okkur því upplýsingar um efnainnihald. Sum hjálpar- efni geta breyst við geymslu, t.d. þau sem byggð eru á líf- rænum efnum (gerlasmit, en- sím...). Er auðvelt að blanda efnunum í heyið án þess að verkunaráhrif þeirra breytist? Þetta á einkum við efni sem notuð eru í mjög litlum skömmtum, t.d. innan við 1 lítri (eða kg) í tonn af heyi. HELSTU FLOKKAR HJÁLPAREFNA Þá fjölbreyttu flóru hjálparefna, sem á markaði eru, má flokka í • gerjunarhemla • gerjunarhvata • efni sem auka geymsluþol og • efni sem binda vökva og safa í heyinu. Gerjunarhemlar. Sýrur og sölt af sýrum megna að takmarka gerj- un og halda aftur af óæskilegri smjörsýruverkun. Blöndun á þremur lítrum maurasýru (85% að styrk) í tonn lækkar sýrustig heys úr pH 6 ( pH 4,5, en við pH 4,5 er starf óæskilegra örvera í votheyinu drepið í dróma. Ammoníum tetraformíat er dæmi um salt af sýru. Til þessa flokks má telja Kofa-salt/safa, en þar eru natríum-nítrít og hexametylentetramín hin virku efni. Söltin eru allajafnan auð- veldari og hættuminni í allri meðferð en sýrurnar. Ráðlagt magn þessara efna liggur á bil- inu 2,5-5 lítrar/tonn (eða kg/tonn); því sterkari íblöndun sem heyið er blautara við hirð- ingu. Gerjunarhvatar. I þessum flokki er t.d. hrásykur (melassi) sem eykur hráefni til gerjunar í hey- inu. Einnig ensím sem brjóta niður frumuveggi plantnanna og auka þannig gerjanlegt hrá- efni þeirra. I flokkinn falla líka bakteríur sem sérstaklega hafa verið ræktaðar og verkaðar til smitunar f heyið (inoculants). Melassi er langreynt og -notað hjálparefni. Síðari árin hefur notagildi bakteríusmits verið rannsakað rækilega. Smitið er gagnslítið nema nægilegt hrá- efni sé til gerjunar í heyinu, og að það sé nógu magnað í hlut- falli við hina náttúrulegu örveru- flóru heysins - helst tífalt. Al- gengast er að nota mjólkursýru- bakteríuna Lactobacillus plant- arum sem er þeim eiginleikum gædd að vera hreingerjandi, þ.e. að skila mjólkursýru sem einustu lokaafurð sinni. Efni sem auka geymsluþol. Hér má einkum nefna própíonsýru sem dæmi, en hana þekkja margir sem afar virkt hjálparefni við súrsun korns. Hún á best við í sykruríku og þurrlegu heyi, sbr. hinn góða árangur af henni við súrsun nýskorins byggs sem oft- ast hefur þurrefni á bilinu 55- 75%. Própíonsýra getur seinkað hitamyndun i þurrlegu heyi eftir að geymslan hefur verið opnuð, því að sykrur heysins (og sterkj- an í bygginu) er afbragðs hrá- efni fyrir súrefnissæknar örver- ur. Efnl sem binda vökva og safa í heyinu. Sé heyið hirt mjög FREYR 06 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.