Freyr

Árgangur

Freyr - 15.12.2004, Blaðsíða 62

Freyr - 15.12.2004, Blaðsíða 62
r Atak í hestamennsku - árið 2004 Starfið í ár gekk sam- kvæmt áætlun þar sem kraftur var settur í ákveðin afmörkuð verkefni sem stjórn átaksins vann í sam- vinnu við ýmsa aðila. Framlag til átaksins þetta árið var sem áður kr. 15 milljónir en einnig var nú úr að spila nokkurri upphæð frá síðasta ári. Afram var haldið við þróun á knapamerkjakerfinu en átakið gerði samning við Hólaskóla um heildar- umsjón og þróun á kerfinu til ákveðins tíma. Samningur hljóðar upp á kr. 5 milljónir þar sem skólinn heldur um upplýsingagjöf, af- greiðslu og markaðssetningu á kerf- inu og lýkur við 2. útgáfu (endur- skoðun) á námsefni og I. útgáfu af kennarahandbók. Þá voru settar kr. 3 milljónir í að byggja upp hesta- tengda námsbraut til stúdentsprófs í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suð- urlands, þar sem knapamerkjakerfið Moli | Hesturinn er UMHVERFISVÆNN í Frakklandi hafa æ fleiri bæjarfélög komið auga á það hversu brúkshestar eru um- hverfisvænir.Þeir eru m.a. not- aðir við flytja burt hey og ann- an gróður, svo sem trjágróður, úr almenningsgörðum og grænum svæðum.Bent hefur verið á að hestur og vagn kosti alls um 10 þúsund evrur en sorpbíll kosti helmingi meira (Landbygdens Folk nr. 4/2005). er lagt til grundvallar hestafögum. Þá var keyptur sérhæfður rafrænn tímatökubúnaður til notkunar á kappreiðum fyrir kr. 2,6 milljónir en búnaður þessi var afhentur Lands- móti ehf. til utanumhalds og ábyrgðar gagnvart viðhaldi, vörslu og framtíðarrekstri. Þá voru lagðar 5 milljónir kr. í áífamhaldandi þró- un á mótakerfinu MótaFeng og Kappa, aðlögun og viðbætur vegna m.a. FIPO reglna, auk þess sem for- ritin renna saman við WorldFeng. Þar verður þá til eitt heildstætt kerfi til utanum halds á hvers kyns kepp- ni og sýningum og söfnun á gögn- um á afrekum íslenskra hrossa. Auk þessa var á árinu unnið að undir- búningi á svokölluðum ræktunar- verðlaunum að erlendri fyrinnynd sem gefa færi á auknum arði rækt- enda af sýningum og keppni og einnig var lagður grunnur að kort- lagningu reiðleiða. Stjóm verkefnisins var óbreytt frá því áður, þ.e. Ágúst Sigurðs- son frá BI (fonnaður), Haraldur Þórarinsson frá LH, Kristinn Guðnason frá F.hrb. og Olafur H. Einarsson frá FT. Þetta árið var lokaáfangi samn- ingsins sem gerður var við ríkis- stjórnina um átaksverkefni í hestamennsku 2000-2004. Að samningnum stóðu Bændasamtök Islands, Félag Hrossabænda, Landssamband hestamannafélaga og Félag tamningamanna, þ.e. öll opinber samtök hestamanna. Höf- uðmarkmið verkefnisins var í stuttu máli að auka fagmennsku í greininni og stuðla þannig að auk- inni arðsemi. Strax í upphafi var unnin stefnumótun fyrir átaks- eftir Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðar- háskóla Islands verkefnið og upp úr því gerður verkefnalisti sem unnið hefur ver- ið eftir. Auk þeirra verkefna sem greint er frá hér að ofan má nefna sem dæmi um mikilvæg einstök verkefni sem unnin voru í sam- vinnu við ýmsa aðila á tímabilinu: * WorldFengur, upprunaættbók íslenska hestakynsins * Hestapassar vegna útflutnings * Knapamerkjakerfið * Eiðfaxi ehf. og Eiðfaxi net (hlutafé) * Stofnun Landsmóts Hesta- manna ehf. * Átak í þjálfunar- og fóður- fræðirannsóknum. Það er mín bjargfasta trú að verkefni þetta hafi skilað góðum árangri, hestamennsku og hrossa- rækt í landinu til heilla. Þessum afmarkaða samningi er lokið en áfram eru ótal framfaramál sem setja þarf í framkvæmd, áskoranir á sviði menntunar-, rannsókna-, markaðs- og menningarmála. Rétt er að benda á upplýsingar um átaksverkefnið í fyrri árs- skýrslum í eftirtöldum tölublöð- um Freys: 13-14/2000, 1/2002, 10/2002, 10/2003. 162-Freyr 11-12/2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.