Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2002, Blaðsíða 34

Freyr - 01.05.2002, Blaðsíða 34
Ráðunautafundur 2002 Áhrlf fóðrunar á efnalnnl- hald í miáik Inngangur Á Ráöunautafundi 2000 var flutt ítarlegt erindi um efiiainni- hald í mjólk (Bragi Líndal Olafs- son o.fl. 2000). Með því yfírliti, sem þar birtist, var leitast við að efla frekar faglega umijöllun og aukna þekkingu á málefiii sem hefur verið mikið til umræðu. Þetta yfirlit var jafnframt hluti af undirbúningi að rannsóknarverk- efni um efnainnihald mjólkur sem var verið að koma á laggim- ar. Fyrrihluta árs 2000 hófst svo verkefni, skipulagt til þriggja ára, er að standa Rannsóknastofiiun landbúnaðarins, Landbúnaðarhá- skólinn á Hvanneyri, Samtök af- urðastöðva í mjólkuriðnaði, Tæknisjóður Rannsóknarráðs Is- lands, Framleiðnisjóður landbún- aðarins og Búnaðarsamband Suð- urlands. Að verkefninu koma einnig ráðunautar hjá Bændasam- tökum Islands og nokkmm bún- aðarsamböndum svo og bændur víða um land. Markmið verkefnisins er að kanna helstu erfða- og fóðrun- ar/umhverfisþætti sem hafa áhrif á efnasamsetningu og vinnslueig- inleika kúamjólkur og þar með verðmæti hennar, bæði fyrir framleiðanda og vinnslustöð. Sömuleiðis að mynda gmndvöll að þekkingu á eiginleikum ís- lenskrar kúamjólkur svo að hægt sé að bera hana saman við er- lenda mjólk ef til samkeppni kemur á innlendum eða erlend- um mörkuðum. Verkefhið skiptist upp í þrjá megin þætti. 1. Söfnun upplýsinga frá kúa- bændum til að kanna hverjar hafa verið helstu breytingar á fóðuröflun, fóðrun og notkun nauta til undaneldis, sem kynnu að hafa haft í för með sér lækkun á próteini í mjólk, verðmætasta hluta mjólkurinn- ar, á undanfömum ámm og óhagstæðu hlutfalli milli pró- teins og fitu. 2. Erfðafræðilegar rannsóknir á mjólkurefnum þar sem greind- ar em arfgerðir einstakra osta- og mysupróteina í mjólk hjá dætmm nauta sem ýmist gefa hátt, lágt eða meðalhátt pró- teinhlutfall í mjólk. 3. Fóður- og lífeðlisfræðilegar rannsóknir, bæði í vambar- hermi og með mjólkurkýr, þar sem skilgreindir em ýmsir þættir sem hafa áhrif á magn og gerð próteina í mjólk. I þessari grein verðiur skýrt frá niðurstöðum fóðurtilraunar sem fór fram á tilraunastöðinni á Stóra Ármóti veturinn 2000-2001. Efni og aðferðir Erfitt getur verið að sýna fram á tölfræðilegan mun í eiginleik- um eins og efnainnihaldi mjólkur með hefðbundnum flokkatilraun- um nema mikill fjöldi kúa sé til- tækur. Frávik í próteinstyrkleika í mjólk um 0,15 prósentustig (t.d. 3,25-3,40) þýðir einungis um 4,5% breytingu. Því var ákveðið að nota skipulag, „incomplete block switchback design”, (Lucas 1974), sem er mun næmara og eftir Braga Líndal Olafsson, Eirík Þórkelsson, Jóhannes Sveinbjörnsson, Tryggva Eiríksson, Grétar Hrafn Harðarson og Emmu Eyþórsdóttur Rannsókna- stofnun landbúnaðarins getur greint um 2-4% breytileika. Það Ieyfir fleiri tilraunaliði, þarf færri kýr en mun nákvæmari vinnubrögð og krefst þar af leið- andi mikillar vinnu. Tilrauna- skipulag af þessu tagi hefúr ekki áður verið notað hér á landi í til- raunum með kýr. I þeirri útfærslu sem notuð var voru prófaðar 7 mismunandi fóðursamsetningar og þurfti 21 kýr að ljúka tilraun- inni áfallalaust. Notaðar voru fullorðnar kýr og kvígur að fyrsta kálfi. Tilraunin hófst í nóvember 2000 og stóð yfir fram í júníbyrj- un 2001. Kýmar voru 100-120 daga í tilraun. Forskeið hófst þegar kýmar vom komnar u.þ.b. 6 vikur frá burði og síðan tóku við þrjú fjögurra vikna tilrauna- skeið. Hver kýr prófaði tvær fóð- ursamsetningar samkvæmt sam- kvæmt fyrirfram ákveðnu til- raunaskipulagi. Valdar vom fóðursamsetningar sem þóttu líklegar til að valda | 34 - Freyr 4/2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.