GUÐRM SVEINSDOTTIR f. 18/12 1907 d. 18/9 1964 Guðrún Sveinsdóttir fæddist 18. desember 1907 á Akureyri. Foreldrar hennar voru Margrét Kristjánsdóttir og Sveinn Hall- grímsson. Á öðru ári fór hún til hjónanna Friðrikku Þorsteins- dóttur og Jóns Jónassonar. Þau áttu heima að Grund í Haganes- vík þar til þau fluttu til Siglu- fjarðar árið 1920, en hér starf- aði Jón hjá verzl. Halldórs Jón- assonar fram á elliár. Hjá þess- um heiðurshjónum ólst Guðrún upp og naut sömu úmönnunar og þeirra eigin börn. Á unga aldri kenndi Guðrún þess meins, sem að lokum leiddi til andláts hennar. Guðrún fór fyrst á heilsuhælið að Kristnesi árið 1938. Þar fékk hún nokk- urn bata, en þó ekki meiri en svo að hún þurfti oft síðar að leita hælisvistar um lengri eða skemmri tíma, bæði á Kristnes- hæli, Reykjalundi og Vífilsstöð- um, en á síðastnefnda staðnum lézt hún 18. sept. sl. Þegar heilsan leyfði, og reynd- ar endranær, starfaði Guðrún að saumaskap og var eftirsótt til slíks, enda sameinaðist þar snilldar handbragð og góður smekkur. Meðan hún dvaldi á Kristneshæli, veitti hún m. a. saumastofunni þar forstöðu frá því hún var stofnsett. Guðrún var félagslynd og vann mikið starf í þeim félögum, sem hún var meðlimur í, en þó mun hún hafa starfað mest og bezt í fé- lagssamtökum berklasj úklinga og þar lagði hún sig alla fram með- an kraftar entust. Eg, sem þessar línur rita, kynntist Guðrúnu ekki nærri nóg til að geta gert minningar- grein um hana eins góð skil og ég vildi, enda á þetta aðeins að vera stutt vinarkveðja frá mér og eiginkonu minni, en þær voru vinkonur og samvistum á Krist- nesi og Vífilsstöðum. Samt kynnt ist ég henni nóg til að sjá mann- kosti hennar, sem voru miklir og að vísu augljósir. Guðrún var hæglát í fasi og prúð og bauð af sér góðan þokka. Eitt af því minnisstæð- asta við Guðrúnu finnst mér fallegu augun. Augun eru speg- ill sálarinnar," segir einhvers staðar, og út úr augum hennar skein góðvild, einlægni, einurð og kímni. Eg held það sé frekar sjaldgæft, þegar talað er um ein- hvern að honum fjarverandi, að ekkert nema gott eitt sé um við- komandi sagt. En þannig heyrði ég ávallt um Guðrúnu talað. Það eitt segir sína sögu. Sltiili IVIagiiússoii 8/6 1918 5/10 1964 Skúli Magnússon Lækjargötu 13, Sigluíirði, lézt að heimili sínu 5. þ. m. og var jarðsettur hinn 10. s. m. að viðstöddu fjöl- menni. Skúli fæddist 8. júní 1912 að Grund í Svarfaðardal, foreldrar hans voru Þórunn Sigurðar- dóttir og Magnús Pálsson. Til 14 ára aldurs átti Skúli heima á Grund, en fluttist þá með foreldrum sínum að Brim- nesi í Viðvíkursveit í Skaga- firði. Til Siglufjarðar fluttist fjöl- skyldan 1929 og átti Skúli Siglu- fjörð að heimasveit síðan. Lengst mun Skúli hafa starfað hjá Síldarverksmiðjum ríkisins hér, nokkur ár á bifreiðaverk- stæðinu Neista, en síðustu árin starfsmaður hjá Siglufjarðarbæ. Hvar sem þessi dagfarsprúði og glaðværi verkamaður vann eða var, ávann hann sér hylli og vináttu samstarfsmannanna og án efa mun hið skyndilega frá- fall hans hafa snortið ættingja og starfsfélaga djúpt og eitthvað mun þeim eflaust finnast vanta í hið daglega líf, þar til tíminn, þessi óskeikuli læknasnillingur, hefur grætt þetta sár sem önnur. Það fer ekki hj á því, að menn af gerð Skúla heitins hafa áhrif á umhverfi sitt, eða það fólk sem þeir umgangast, og vissu- lega eru það góð áhrif og bæt- andi. Þess vegna er vina- og kunningjahópurinn stór, sem sendir nánustu ættingjum hans sínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Ó. G. Guðrúnu voru góðar gáfíir gefnar og huríhafði yndi .af Iist- um. Góðar bókmenntir og leik- list voru henni unaður á erfið- um dögum. Hún hafði sínar á- kveðnu skoðanir á þjóðfélags- og dægurmálum, en setti þær fram með þeirri hógværð, sem henni var lagin, svö þeim var veitt athygli. Kímni hennar var sérstæð, því að það var sú sanna hægláta kímni, sem öllum kom í gott skap en engan særði, enda hefði annað verið andstætt eðli Guðrúnar. Oft mun þessi gáfa hafa hjálpað Guðrúnu yfir erf- iðan hjalla, og það, að geta séð broslegu hliðarnar líka, gert líf- ið bærilesrra. Hjálpsemi hennar og góðvild kom ef til vill bezt í ljós, þegar hún sjálf var veik og miðlaði öðrum, sem veikari voru, af hjartagæzku sinni og sálarró. Guðrún giftist aldrei, en hún eignaðist fimm börn. Eitt þeirra dó í æsku, en hin, þrjár dætur og einn sonur, lifa, og eru öll einkennd beztu eiginleikum móð ur sinnar. I sumar var heilsu Guðrúnar þannig háttað, að hún gerð.i sér fulla grein fyrir því að hverju rak, en hún tók því með hugarró og einurð. Lyndiseinkenni henn- ar breyttust ekki við það að horfast í augu við dauðann. Hún hafði barizt eins og hetja, en vissi, að senn var getan þrötin, og tók því æðrulaust. Hún skýrði sínum nánustu og vinum sínum frá þessari vissu sinni, svo að engum þyrftu endalokin að koma á óvart. Guðrún sat mörg þing S. I. B. S., en síðasta þingið gat hún ekki setið af framangreindri á- stæðu. En hún sendi þinginu eina þá fegurstu og smekkleg- ustu kveðju, sem hægt var, og sem lýsir henni svo vel: Hún sendi blómakveðju. Og þannig mun minningin um Guðrúnu Sveinsdóttur búa um sig í hjörtum vina hennar -og vandamanna, eins og fallegt blóiri, og dafna þar vel, því að slíku 'blómi yilja allir hlúa. Bragi Magnússon. Hinn 18. september síðastlið- inn barst sú fregn, að Guðrún Sveinsdóttir hefði þann dag lát- izt á Vífilsstaðahæli. Þrátt fyrir það, að Guðrún hafði tekið sjúkdóm sinn fyrir 25 árum og dvalið langdvölum á Kristnes- og Vífilsstaðahælum, mun þó vandamenn og vini hafa sett hljóða við fregnina. Þannig er það æði oft, þegar dauðinn knýr dyra. Guðrún var fyrir margra hluta sakir mjög óvenjuleg kona. Hún var góðum gáfum gædd, listfeng og smekkvís, lífsglöð, með sér- lega þroskaða kímnigáfu og ein- staka hæfileika til að sjá bros- legu hliðina á hverjum hlut. Þó því væri ekki flíkað, var Guð- rún vel hagmælt, skrifaði stund- um bráðskemmtilega og snjalla skemmtiþætti, og sendibréf henn ar voru oft hreinasta snilld. At- vinna Guðrúnar var saumaskap- ur, og stundaði hún þessa vinnu áfram í veikindum sínum með- an kraftar leyfðu. Um nokkurt skeið veitti hún forstöðu sauma- stofu sjúklinga á Kristneshæli. Við þessa atvinnu komu sjálf- sagt oft að góðum notum list- fengi hennar og smekkvísi. Var hún fræg fyrir snilldarhand- bragð sitt, en afkastaði þó verk- um sínum á ótrúlega skömmum tíma. Sterkustu eðlisþættir Guðrún- ar hygg ég þó að hafi verið gjaf- mildin og hjálpsemin, og samúð- ,in með þeim, sem eitthvað voru útundan í lífinu. Fróðlegt væri að vita, hve margar flíkur ;Guð- rún hefur sniðið og saumað um æfinafyrir sjúklinga, sem með henni hafa dvalið á hælum, og raunar margra aðra, sem þurftu slíka hjálp, án þess að fá aðra borgun en hlýtt handtak og þakklátt bros. Þegar þessi hjálp er höfð í huga og þá ekki síður sú hjálp, sem Guðrún veitti með þreki sínu og glaðlyndi þeim, sem veikindin voru að yf- .irbuga, þá gæti ég trúað, að með sanni mætti segja, að það væru ekki margir, sem hefðu gert eins mikið fyrir jafn marga og hún. Börnum sínum reyndist Guð- rún umhyggjusöm og fórnfús móðir, en þau umvöfðu hana ást ríki og hlýju, sem voru hinni sjúku konu styrkur og gleði í hinum annars þungbæru veikind um hennar. Kornung stúlka fékk Guðrún áhuga fyrir stjórnmálum. Að sjálfsögðu skipaði hin ríka rétt- lætiskennd hennar og samúð með öllum, sem erfitt áttu, henni í flokk hinnar róttæku verkalýðs hreyfingar, og vann hún þar af lífi og sál um margra ára bil. Nú við leiðarlok eru það ekki ástvinir og nánir frændur einir, sem kveðja með hlýhug og sökn- uði, heldur og gamlir samstarfs- menn og félagar og ótal margir aðr.ir, sem í stórri þakkarskuld standa. Þ.G. fulltrúor »l>róttor« 09 »Brynju« lí ISÍ- |)i Hinn 24. sept. sl. auglýsti stjórn verkamannafélagsins Þróttar" eftir listum til alls- herjaratkvæðagreiðslu um val fulltrúa sinna á þing A. S. I. Fram kom aðeins ein uppá- stunga, frá stjórn og trúnaðar- mannaráði félagsins. Þar sem aðeins kom f ram einn listi, urðu fulltrúar stjórnarinn- ar sjálfkjörnir. Fulltrúar Þróttar" á þinginu verða: Aðalfulltrúar: Gunnar Jóhannsson Óskar Garibaldason Kolbeinn Friðbj arnarson Þorvaldur Þorleifsson Jón Kr. Jónsson Til vara: Hannes Baldvinsson Páll Jónsson Anton Sigurbjörnsson Jörgen Hólm Sveinn P. Björnsson Á fundi í verkakvennafélaginu Brynju" 5. þ. m. fór fram kjör fulltrúa félagsins á Alþýðusam- bandsþing. Kjörnar voru: Aðalfulltrúar: Ólína Hj álmarsdóttir Anney Jónsdóttir Til vara: i Sigríður Elefsen Guðrún Sigurhjartar