Fylkir - 23.12.1965, Blaðsíða 17
JOLABLAÐ FYLKIS 1965
17
SIGFÚS M. JOHNSEN, fyrrverandi bæjarfógeti:
Jólaminniiigar
í Vestmannaeyjum var reist
kirkja þegar árið 1000, sjálft
kristniárið, en þó áður en kristni
var lögtekin hér á landi á Alþingi
hið sama ár. Tvær kirkjur voru hér
lengi, hvor með sinn máldaga, þar
sem tilgreindir voru kirkjumunir
og aðrar eignir kirknanna.
J^irkjurnar á kirkjustöðunum,
Ofanleiti og Kirkjubæ, voru lagð-
ar niður á 16. öld, en samt haldið
við; lengi sem bænhúsum. Ein
kirkja fyrir báðar sóknirnar var
byggð, en sóknarprestar voru tveir
fram á nítjándu öld eða til ársins
1837, og nú aftur eftir rúm 100 ár
eru tveir þjónandi prestar þjóð-
kirkjunnar í Eyjum.
Kirkjan, sem reist var 1573 stóð
á Fornu-Löndum. Fornu-Lönd
voru skammt sunnan við Lönd, og
skilur núverandi Landagata þar á
milli. Þessi kirkja, er var timbur-
kirkja stór og vegleg og vel búin
kirkjugripum, stóð fram að Tyrkja
ráni. Hana brenndu ræningjarnir
til kaldra kola 17. júlí 1627; höfðu
þeir áður rænt hana öllum sínum
skrúða. Samt virðist sem kirkju-
klukkunum hafi verið komið und-
an, sbr. sögnina um Skrúðabyrgi í
Neðri-Kleifum. Kirkjan á klukku,
sem ber ártalið 1619 og mun það
eiga við árið, er klukkan var smíð-
uð. Aðra eldri klukku átti kirkjan,
en það var kirkjuklukka sú úr
gömlu Landakirkju, sem kom upp
um sjóræningjana, er rændu Landa-
kirkju 1614. Klukkuna buðu þeir
til sölu í Englandi, en á henni mun
hafa staðið, að hún tilheyrði Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum. Var
klukkan send til Vestmannaeyja að
boði Englandskonungs, en ræningj-
arnir voru dregnir fyrir lög og
dóm og teknir af lífi.
Þessari gömlu klukku var seinna
fargað frá kirkjunni og mun hafa
lent í Kaupmannahöfn, og ef til
vill er hana að finna meðal forn-
gripa á söfnum í Danmörku. Þar
lentu einnig postulastylturnar 12
úr Landakirkju, er teknar voru
þaðan um miðja 19. öld.
Eftir kirkjubrunann 1627 var ný
kirkja reist, þar sem nú kallast
gamli kirkjugarður í núverandi
kirkjugarði Eyjanna.
Núverandi Landakirkja er 5.
kirkjan með því nafni. Hún er
nokkru yngri en Hólakirkja, en
eldri en Bessastaðakirkja, og ein af
veglegustu kirkjum landsins og bet
ur búin kirkjugripum en flestar
aðrar kirkjur hérlendis.
Lengi hvíldi sú kvöð á, að Landa-
kirkju skyldi goldinn vænsti fisk-
urinn af hverju skipi, er aflaðist í
hverjum róðri.
Eyjamenn voru stoltir af kirkju
sinni og ræktu að jafnaði vel skyldu
sína við kirkju og prest. Kirkjan
var vel sótt, þótt eigi væri á venju-
legum messudögum sá troðfyllir
sem á jólunum.
Á Þorláksmessudag — heilags
Þorláks — var lögð síðasta höndin
á undirbúning sjálfrar jólahátíðar-
innar. Meðhjálparinn var með
sínu hjálparliði að Ijúka við að
fægja allt og fága í kirkjunni.
Stóru ljósahjálmarnir glóðu eins og
gull og kertastjakarnir. Búið var
að setja kertin í hjálmana og stjak
ana og raða þeim á bogann mikla,
er var þvert yfir kirkjuskipið milli
svalann svonefndu uppi, en þar
voru mestu viðhafnarsætin.
Bændur sátu í kór eftir gamalli
venju og bændakonur eftir virðing-
um í innstu sætunum framan við
kórinn.
Húsmæðurnar höfðu í mörgu að
sýsla og stóðu í miklu erfiði og
amstri fyrir jólin, þar sem mann-
mörg heimili voru, og má sá, er
þetta ritar, minnast þess frá upp-
vaxtarárunum á mannmörgu út-
vegsbóndaheimili í Vestmanaeyj-
um. Húsmóðirin í Frydendal, sem
misst hafði mann sinn löngu fyrir
aldur fram, hélt uppi merki hans og
stjórnaði mannmörgu heimili og ól
upp börn þeirra hjóna, en það
yngsta var á fyrsta ári, er faðirinn
féll frá.
Frá veturnóttum og framundir
jólaföstu var setið við tóskap og í
vefstólnum öllum stundum, er tóm
gafst. Einnig saumaði hún sjálf að
mestu upp á mannskapinn á sínu
heimili, þær löggiltu flíkur, er fól-
ust í umsömdu kaupi vinnufólksins.
Reynt var að koma sem mestu í
verk fyrir jól. Allir urðu að fá eitt-
hvað fatakyns, enginn mátti fara í
jólaköttinn.
Úteyjafæri hafði verið gott og
jólaærnar sóttar, en þeir voru
samt fáir, sem töldu sig hafa ráð
á að slátra kind á þessum árstíma,
og þannig var það heima. Fugla-
steik af skotfugli, skörfum, lómum
og fiskiendum var talin nægja og
ekki eytt af sauðkindum, sem Eyja-
bændur áttu ekki ofmargt af, því
stórt varð ekki búið vegna land-
þrengslanna. En gagnsamur var
eyjabúskapurinn engu að síður. —
Þetta var á þeim árum, þegar
gamla öldin var í þann veginn að
kveðja, og nú var liðið að jólum.
Á eynni okkar hér í Norður-Atlants
hafinu var hugurinn sterkt bund-
inn við jólin. Jólahelgin og viðbún-
aður fyrir jólahátíðina var sízt
minni hér að sínu leyti en annars-
staðar í hinum kristna heimi. Eft-
irvæntingin gagntók hugi manna,
sem urðu börn í annað sinn við
tilhugsunina um fæðingarhátíð
Sigfús M. Johnsen.
frelsarans. Hjá börnunum ríkti
fögnuður og gleði, sem orð fá naum
ast lýst.
Á kvöldsöngnum í Landakirkju
var hvert sæti skipað á aðfanga-
dagskvöldið. Kirkjufólkið streymdi
að úr öllum áttum, neðan úr Sandi,
austan af bæjum og ofan fyrir
Hraun, og lýsti fyrir sér í myrkrinu
með heimagerðum ljóskerum með
kertaljósi í. Samskonar ljós og síð-
ar voru notuð í gömlu beituskúr-
unum.
Til hátíðabrigða voru opnaðar
norðurdyrnar á kirkjunni, kórdyrn-
ar, sem aldrei var gengið um nema
á stórhátíðum kirkjunnar.
Þegar eim kom frá kirkju var
kveikt á jólatrénu, sem var heima-
Framh. á bls. 21.
v
Frá Eyjum laust eftir aldamót.