Fylkir


Fylkir - 23.12.2001, Blaðsíða 12

Fylkir - 23.12.2001, Blaðsíða 12
12 FYLKIR jólin 2001 • • s Skapti Om Olafsson skrifar Af kreppukommum og kompónistum - viðtal við Árna Elfar um árin í Eyjum Árni Elfar á vinnustofu sínni en hann erfjölhœfur listamaður ítónlist og myndlist. Maður hefur tekið eftir honum á Dögum lita og tóna í Akóges á hverju ári og má segja að hann sé eins og farfuglarnir sem koma og fara á hverju ári. A hátíðina mætir hann ásamt spúsu sinni og spilur hverja d jassperluna á fætur annari með áhugamönnum sem og spreng- lærðum atvinnumönnum, hann gerir cngan mannamun. Hér er átt við tónlistar- og myndlistar- manninn Árna Elfar. Þó svo að Árni komi iðulega á djasshátíð þá eru færri sem vita að hann bjó í Eyjum á árunum 1951-53 og spilaði í danshljómsvcit á hverju kvöldi í Alþýðuhúsinu og síðar meir í Samkomuhúsinu. Skapti Örn Ólafsson brá undir sig betri fætinum nú í byrjun desember og átti skemmtilegt spjall við Árna um árin í Eyjum. Heimilið ómaði af tón- list Til að opna viðtalið formlega spyr blaðamaður hver þessi Árni Elfar sé í raun og veru. „Það er nú það. Ég hef oft spurt sjálfan mig að þessu og ekki ennþá fundið gott svar við því. Það lekur alla ævi að kynnast sjálfum sér og maður spyr sig oft og iðulega hvaðan kem ég og hvert fer ég. En að öllu gamni slepptu þá er ég fæddur á Akureyri 1928 og foreldrar mínir voru Elísabet Þórunn Kristjánsdóttir og Benedikt Elfar,“ sagði Ámi sem er giftur Kristjönu Magnúsdóttur og eiga þau 4 börn saman og 2 í sitthvoru lagi. „Ég kynntist Kristjönu í kringum 1960 þegar hún var ungfrú Reykjavík og ég heillaðist svona rosalega af henni,“ útskýrði Ámi. Foreldrar Árna vom bæði tónlistarfólk, þannig að hann fékk tónlistina og menninguna beint í æð sem ungur drengur. „Tónlist var á heimilinu frá því að maður fæddist og fór því fljótlega að skynja hana en því miður varð ekkert úr tónlistamámi hjá mér þó svo að foreldramir hafi báðir verið miklir músíkantar, móðirin stór- píanist og faðirinn söngvari. Þannig að það má segja að ég sé sjálfmenntaður í faginu en áhuginn hefur verið ódrepandi síðan. Það sama má segja um myndlistina sem ég fékk strax áhuga á sem ungur drengur og hef ég ekki skilið við mig blýantinn eða pensilinn allt fram á þennan dag, eða frá því ég var fimm eða sex ára,“ sagði Ámi. Faðir Árna var mikill ævintýra- maður, ekki ólíkt Áma sjálfum, og fór á vit ævintýranna til Berlínar til að læra söng. Síðar átti Ámi eftir að fara til Vestmannaeyja í tón- listina. „Faðir minn var prestlærður en tók aldrei próf. Síðan fékk hann einhverja köllun og ákvað að fara á vit ævintýranna suður til Berlínar um 1920. Þar ætlaði hann sér að læra söng í miðri heimskreppunni og fátæktarbaslinu sem þá var á íslandi. Þetta er svo lýgilegt að það trúir þessu varla nokkur maður. En þar lærði faðir minn söng og var í Berlín um svipað leiti og Jón Leifs sem var nú frændi okkar. Jón fór reyndar allt aðrar leiðir og varð sprenglærður tónlistarmaður og kompónisti á heimsmælikvarða og rúmlega það. En faðir minn fór síðan út í kennslu á söng og flutti síðar til Svíðjóðar og kenndi þar um skeið. Eftir að hann kemur aftur til Islands var ekki um auðugan garða að gresja hvað kennslu á tónlist varðar, en hann tók að sér einhverja nemendur og stjórnaði kómm. Við bjuggum á Akureyri fyrstu árin, en um 1932- 33 þá flytjum við suður. I Reykja- vík hefja foreldramir kennslu og heimilið ómaði af söng og píanó- leik,“ riijar Ámi upp. Kölluðum þá Sölkuvölkukomma Ámi byijaði sem ungur drengur að spila með danshljómsveit Bjöms R. Einarssonar og þá alltaf á píanó. „Ætli það hafi ekki verið í kringum 1947 og ég |rá 19 ára að ég byrjaði að spila með Bimi R. Einarssyni og hljómsveit hans. Það var síðan árið 1951 sem mér og öðmm í hljómsveitinni bauðst að koma til Eyja og spila þar eina helgi. Við fómm til Eyja og það var svona óskaplega gaman að við fórum ekkert til baka og vomm í Eyjum í þrjú ár,“ sagði Ámi og hélt áfram að rifja upp hvemig það bar að. „Við spiluðum þá í Alþýðu- húsinu innan um kreppukomm- ana,“ sagði Árni og hló við. „Það vom margir skrautlegir þama eins og Ási í Bæ og Oddgeir Kristjáns- son sem voru þama upp á sitt besta. Við kölluðum þá alltaf Sölkuvölkukomma. Ég hélt að maður væri ógurlega mikið vinstri sinnaður en upprunin leyndi sér ekki þar sem ég var kominn af kaupmönnum í allar áttir. Þannig að maður var aldrei heilsteyptur í því öllu saman,“ sagði Ámi og hélt áfram að rifja upp árin í Eyjum. „Við spiluðum þama með Há- gæðasextettinum sem var mjög vinsæl hljómsveit þá og spiluðum við á hverju einasta kvöldi og má segja að eftir að við Reykjar- víkurguttamir komum til Eyja hafi þetta verið einn trylltur dans. Þú getur rétt ímyndað þér, fólkið í slorinu á daginn og síðan dansað á kvöldin fram á morgun. Hljóm- sveitina skipuðu Haraldur Guð- mundsson, Axel Kristjánsson á bassa sem kom með mér til Eyja, Gísli Brynjólfsson og Gísli Bryn- geirsson á klarínett og gítar, Siggi á Háeyri á trommur og ég á píanó. En við vomm þama í góðu yfirlæti í þrjú ár og þetta var mjög svo skemmtilegt tímabil," sagði Ámi og hafði gaman að því að rifja upp gamla tíma. Þú hefur ekki orðið að hálf- gerðum Eyjamanni eftir dvölina? „Menn halda að ég sé Vest- manneyingur eftir þessa dvöl en það er auðvitað fjarstæða. Ég er ekta norðlendingur og svo síðar sunnlendingur. En hitt er svo annað mál að mér þykir ákaflega vænt um Eyjamar og hef komið til þangað reglulega hin síðari ár,“ sagði Ámi en hann hefur haldið tryggð við Eyjamar með því að koma á Daga lita og tóna sem haldnir em um hvítasunnuna ár hvert. „Ég hef yfirleitt mætt á djasshátíðina og það er svo sannar- lega krydd í tilveruna að koma til Eyja á sumrin og fá tækifæri til þess að spila. Það var upphaflega þannig að þegar Guðni í Landlyst lést lenti ég fljótlega í því að koma til Eyja með grúbbur til að spila á hátíðinni. Ætli það hafi bara ekki vantað menn. Síðan hef ég yfírleitt komið og haft gaman að. Það eru auðvitað hæðir og lægðir hvað hátíðina varðar eins og gerist í lífinu en mér finnst hátíðin hafa þróast virkilega skemmtilega og tókst síðasta hátíð t.d. mjög vel. Þar vom ungir píanóleikarar sem koniu mjög á óvart og þá sérstaklega Davíð Þór Jónsson sem var alveg stórkostlegur. Ég hélt að nú til dags spiluðu allir eins en hann fór hreinlega á kostum,“ sagði Ámi og vonast til að koma til Eyja á næstu djasshátíð. Úr lúðrasveitinni í Sinfóníuna Þú byrjar síðan að spila á annað hljóðfæri en píanóið í Eyjum ekki satt? „Jú það er rétt, ég tók upp básúnuna í Eyjum. Það atvikaðist nú þannig að einhverju sinni kom hljóðfæraleikari úr Reykjavík til að spila með okkur og fékk lánaða básúnu. Ætli það hafí ekki verið einhver skemmtidagskrá í gangi þá. En maðurinn gleymdi síðan básúnunni á hljómsveitarpallinum. Á þessum tíma bjuggum við í Alþýðuhúsinu, í hálfgerðum hundakofa að mig minnir á sviðinu. Það sem ég er mikið fyrir að vakna snemma á morgnana þá rak ég augun í hljóðfærið á sviðinu. Nema hvað ég fer að blása í hljóðfærið og var strax kominn á flug. Ætli það hafi liðið nema mánuður þangað til ég var kominn í lúðrasveitina hjá Oddgeiri," sagði Ámi og hafði á orði að ef áhugi væri til staðar þá er hægt að gera ótrúlegustu hluti. „Þetta var nú bara sjálfsmenntun sem tókst bara ágætlega því að ekki löngu síðar var ég kominn í Sinfóníuhljóm- sveit Islands, sem þá var nýstofn- uð, ætli það hafí ekki verið um 1956. Ég starfaði síðan lengi með Sinfóníunni en hætti fyrir um 10 ámm. Það má segja að spila- mennskan með Sinfóníunni hafi verið mitt aðalstarf í gegnum tíðina og sá ég fjölskyldunni farborða með því starfi," sagði Ámi. Þegar Árni var spurður að því hvemig það hafi verið að vinna með Oddgeiri Kristjánssyni í Lúðrasveit Vestmannaeyja þá sagði hann að þar hafí farið mikill leiðtogi. „Það var alveg stór- kostlegt að vinna með Oddgeiri og greinilegt að þar fór mikill leiðtogi og alvömmaður. Oddgeir var ákaf- lega merkilegur maður. Það var skemmtilegt að fylgjast með því þegar hann var að kenna strák- unum í Lúðrasveitinni að blása í trompet, hann sagði þeim að skyrpa í hljóðfærið, „að skyrpa skítnum út“ sagði hann. í dag held ég að svona aðferðir séu ekki vænlegar til árangurs. En Oddgeir var afburða kompónisti og allir þekkja lögin hans. Vestmanna- eyingar megi vera stoltir af lögununi hans og ég held að það séu ekki mörg bæjarfélög sem eiga svona perlur og hver annari fegurri,“ sagði Ami og dró ekki dul á hversu falleg honum þætti lögin hans. Ráfuðu um bœinn eins og auðnuleysingjar Áma em minnistæðir margir menn úr bæjarlífínu í Eyjum og þá sérstaklega tveir sem í dag em fallnir frá. Það eru þeir Axel Vigfússon, oft kallaður Púlli. og Jóhann Friðfínnsson. „Ég man sérstaklega eftir einum manni sem setti sterkan svip á bæjarlífið í Eyjum á þessum árum og það var hann Púlli. Ég sá Púlla í Eyjum rétt áður en hann dó, ég var þá í heimsókn á elliheimilinu. Ég hélt að hann væri löngu látinn þar sem hann var svo bæklaður maður en þá sat hann þama í anddyrinu með bílinn sinn. Þetta er eitt það lygilegasta sem hefur komið fyrir mig. Síðan vom margir frægir menn þama í Eyjum eins og Binni í Gröf og fleiri. Þá má ekki gleyma Jóa á Hólnum, en ég kynntist honum ekki fyrr en ég fór að mæta á djasshátíðina í Eyjum hin síðari ár. Þar fór ákaflega góður og skemmtilegur maður sem vildi öllum vel. Ég átti smá samstarf við Jóa síðastliðið sumar þegar ég teiknaði mynd fyrir hann í viðtal sem tekið var við hann og birtist í tímaritinu Ský. Ég minnist Jóa á Hólnum með mikilli gleði,“ sagði Ámi. Þó svo að Ámi og félagar hafi verið í Eyjum fyrst og fremst til að

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.