Litli Bergþór - 01.03.2007, Blaðsíða 11

Litli Bergþór - 01.03.2007, Blaðsíða 11
Til móts við miðbaug London - Amsterdam - Quito Við hjónin sitjum í makindum í neðanjarðarlest og ferðinni er heitið út á Heathrow flugvöll fyrir utan London. Síminn hringir og óþolinmóð rödd spyr hvar við eiginlega séum og hvort við förum ekki að koma á flugvöllinn. Jú, við vorum rétt ókomin og eftir 20 mínútur vorum við komin í góðra vina hóp, sem óþolinmóður beið eftir því að hefja 23 daga ferðalag til Ekvador og Galapagoseyja. Þrír tímar voru í brottför, en samt sem áður var spenna kominn í hópinn og ákveðinnar óþolinmæði gætti vegna rólegheita okkar. í fimm daga höfðum við slakað á hjá dóttur okkar og hennar fjölskyldu í enskri sveitasælu eins og hún best gerist. Kærkomnir aukadagar sem við notuðum til að versla í rólegheitum síðustu nauðsynjavörumar fyrir ferðalagið og dingla okkur aðeins. Hrista úr okkur streituna sem ósjálfrátt safnast upp þegar ekki eru tekin regluleg frí í langan tíma og vera vel undirbúin fyrir „ferðina miklu“. Ferðin mikla kom fyrst af alvöru til umræðu fyrir tveimur árum í hópi sem samanstendur af nemendum Garðyrkjuskóla ríkisins 1971-1974. Á hverju sumri, síðan við útskrifuðumst, höfum við ferðast saman bæði innan- og utanlands. Þéttur og skemmtilegur hópur sem hefur myndað órjúfandi vináttubönd á þessu tímabili. Þrátt fyrir nokkum aðdraganda varð fljótlega ljóst að ekki treystu allir föstu ferðafélagarnir sér með. Því fór svo að nokkrir „skávinir“ komu með til að fylla í þá tölu sem óskað var eftir. Ekvador og Galapagoseyjar höfðu lengi heillað okkur, ekki síst vegna þess að á seinni ámm höfum við haft ómælda ánægju af að skoða íslenska náttúru á gönguferðum um landið. Ekvador og Galapagoseyjar eru þekktar meðal náttúmunnenda fyrir fallegt lands- lag, óskerta náttúm og ekki síst fyrir fjölskrúðugt dýralíf í víðasta skilningi þess orðs. Ferðin samanstóð af þremur ólíkum þáttum sem hver um sig tók um viku: frumskógarferð niður í Amasonfrumskóginn, siglingu og gönguferðum um Galapagoseyjar og síðast en ekki síst viku ferðalagi um fjöll og firnindi Andesfjallanna. Ekkert af þessu átti eftir að valda okkur vonbrigðum. Á Heathrow var sem sagt lagt upp í ferðina sem skipulögð var af Exodus, enskri ferðaskrifstofu, sem sérhæfir sig m.a. í ævintýra og upplifunarferðum sem þessari. Flugáætlunin var: London - Amsterdam - Bonaire (eyja í Karabíska hafinu) - Ekvador. Eftir klukkutíma seinkun á Heathrow lá ljóst fyrir að við myndum ekki ná fluginu frá Amsterdam til Ekvador, sem átti að vera einn áfangi með einni milli- lendingu. Spennan sem var í upphafi þrungin eftir- væntingu varð að martröð og upplitið á hópnum við lendingu í Amsterdam ekki upp á marga fiska. Fyrsti dagurinn í Ekvador sem átti að vera afslöppun eftir 14 tíma flug var sýnilega farinn í vaskinn. Á slíkum ögurstundum er eins og fólk fái auka kraft líkt og íslenska handboltalandsliðið upplifði í Þýskalandi. Við lömdum okkur saman á flugvellinum, endurvöktum baráttuviljann, ákváðum að gera það besta úr hlutunum og láta þetta fall í upphafi ferðar verða ekki að öðru en fararheill. Það átti svo sannarlega eftir að koma í ljós. Eftir aukanótt í Amsterdam var farið í að bjarga öðru flugi yfir Atlantshafið. Eftir japl, jaml og fuður tókst að koma hópnum í flug á hádegi, sem eftir fjórar milli- lendingar komst heilu og höldnu til Quito, höfuð- borgar Ekvador, um miðnætti. Þá kom í ljós að farang- ur okkar hjóna, ásamt þriggja annarra, hafði ekki skilað sér og voru nú góð ráð dýr. Klukkan 10 morguninn eftir, átti að fljúga niður í frumskóginn og dvelja þar í 4 nætur, fjarri allri verslun og þjónustu. Allur hinn sértæki undirbúningur, frum- skógarfatnaðurinn, malaríulyfin, flugnakremin o.fl. var einhversstaðar á flakki um heiminn. Áhyggjur af farangurslausu framhaldinu og lítilsháttar höfuðverkur og svimi, sem við töldum víst að stafaði af ferðaþreytu olli því að okkur varð ekki svefnsamt um nóttina. Gripið og greitt á indíánamarkaðnum. Þá kom hún Gloría okkar til sögunnar. Hún átti eftir að vera fararstjóri okkar í Quito þar sem við millilent- um ávallt á leið okkar á milli ferðahluta. Gloría mætti á hótelið kl. 8 um morguninn og dró okkur út á indíánamarkað í miðborginni, þar sem við hlupum um í 11h klst. og keyptum flest allt sem við höfðum af kostgæfni notað marga mánuði til að versla fyrir ferð- ina. Þetta er lang árangursríkasta innkaupaferð sem við höfum komist í. Gripið og greitt fékk nýja merkingu í hugum okkar og allt sem passaði keypt án umhugsun- ar. Það var því nokkuð skrautlegt útlit á okkur fimm 11 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.