Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.1995, Blaðsíða 9

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.1995, Blaðsíða 9
Kristinn Björnsson sálfræðingur: Endurminningar frá Ættfræðifélagsins Nú í febrúar fékk ég óvænt og ánægjulegt boð frá stjórn Ætt- fræðifélagsins um að vera gestur á hátíðarfundi þess í tilefni 50 ára afmælisins. Langt er síðan ég hef tekið nokkurn þátt í starfi félagsins, en vissi þó alltaf af tilvist þess og mundi stofnfundinn. Formaður félagsins, Hólmfríður Gísladóttir, bað mig segja lesendum Frétta- bréfsins frá stofnfundinum og til- drögum þess að ég var þar, og er ég fús til þess. Veturinn 1945 var ég í 5. bekk Menntaskólans í Reykjavík, þá22 ára. Sennilega hef ég því verið yngstur stofnendanna, en þetta var mest miðaldra og roskið fólk. Fáir eru líklega eftir sem muna stofn- fundinn. Ég var í föstu fæði í matsölu að Bókhlöðustíg 10. Þarborðaði m.a. Steinn Dofri og fleiri sem áhuga höfðu á sögu og ættfræði. Þarna borðuðu margir, fólkáólíkum aldri og af ýmsum stéttum, námsmenn, skrifstofufólk, menntamenn, verkamenn o.fl. Þar voru því margvíslegar umræður undir borðum og gaman að kynnast mörgu af þessu fólki. Steinn Dofri er mér minnisstæður og gaman var að ræða við hann. Steinn var maður góðlegur, látlaus og hlýr, hafði góða kímnigáfu, var bæði mannvinur og dýravinur og talaði oft um kettina sína. Ahugi hans snérist mest um ættfræði og sögu, en hann fylgdist þó vel með þjóðmálum og því sem efst var á baugi, hafði sterka réttlætiskennd ogákveðnarskoðanir. Hannsagði mér margt um fólk og ættir, m.a. hafði hann séð og mundi eftir föðurafa mínurn og móðurömmu, sem bæði voru látin áður en ég fæddist. En Steinn var Borgfírð- ingur eins og ég. Á þessum árum hafði ég gaman af að forvitnast um ættfræði, hafði eignast “Bergsætt’’, sem ég er í, 7. ættliður, sá þá að þar voru m.a. sum bekkjarsystkini mín í M.R. Líka haföi ég séð ættartölu, sem rakti ætt mína í 33 ættliði til Egils Skallagrímssonar. Þettaþóttumér því dálítið spennandi fræði. Steinn Dofri og fleiri töluðu stundum yfir borðum um væntan- lega stofnun ættfræðifélags, nauð- syn þess og hlutverk, og það var hann sem ákveðið bauð mér að koma á stofnfundinn. Þaðvarkl. 20.30 fnnmtudaginn 22. febrúar, sem ég mætti í sal Landsbókasafnsins. Mig minnir að það væri hægviðri og snjóföl, gott febrúarveður það kvöld. Þama voru allmargir, sem ég þekkti, t.d. Borgfirðingarnir Ari Gíslason, Guðmundur Illugason og Aðal- steinn Halldórsson frændi minn, en við erum systrasynir. Þá hafði ég alloft komið á Þjóðskjalasafnið og séð þá sem þar sátu við fræðiiðkanir. Þó að ég muni ekki fundarstörfm í einstökum atriðum, sem snérust m.a. um hlutverk, heiti og verkefni væntanlegs félags, man ég þá tilfinningu mína, að ég væri þarna í góðum hópi, þetta væri merk félagsstofnun og gagnleg, því að slíkt félag mundi geta komið mörgum áhugaverðum verkefnum í framkvæmd og orðið til góðs. Hafði ég því ánægju af að hafa tekið þátt í stofnun félagsins. stofnfundi Kristinn Björnsson Ekki kom ég á framhaldsstofn- fund, og næsta vetur var ég að lesa til stúdentsprófs og sinnti þá ætt- fræði lítið. Því næst lá leiðin til Ósló til háskólanáms í nokkur ár. Þegar heim kom byrjaði svo starf og annríki ekki rninna en á náms- árunum. Ættfræðinni var því lítil tök á að sinna, þótt alltaf hafi ég haft gaman af að fylgjast með og fræðast um ætterni kunningja og vina. Ég hef því lengst af verið neytandi þess sem ættfræðirann- sóknir buðu fram, en sjálfur lagt lítið af mörkum. Það er því rík ástæða til að þakka þeim, sem að þessu vinna, elju þeirra og áhuga og óska þeim allra heilla í starfi. Ævin er stutt, en menntin er löng. 9

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.