Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1996, Blaðsíða 12

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1996, Blaðsíða 12
Meira um Reunion Ættfræðiforrit fyrir Makkann: Farið um í Reunion Barna- og foreldrahnappar Við lítum á fjölskylduspjaldið sem mynd af einni náinni íjölskyldu - börnin eru neðst, eiginmaður og eiginkona í miðju og foreldrar þeirra efst. Við notum foreldra- og bamahnappana til þess að færa okkur upp eða niður ættartréð - aftur eða fram í tímanum. Með því að smella á foreldri flytjumst við strax á Jjölskylduspjald foreldrisins, foreldramir verða að eiginmanni og eiginkonu (á miðjum skjánum), nöfn barna þeirra birtast á hnöppum fyrir neðan og nöfn foreldra hvors um sig sjást fyrir ofan. Með því að smella á hnapp bams flytjumst við að eigin íjölskyldu barnsins sjálfs, það birtist sem einstaklingur eða maki. Farið á milli fjölskylduspjalda Auk þess að nota barna- og foreldrahnappa er með ýmsu öðru móti hægt að flytjast á milli fjöl- skylduspjalda í Reunion. Farið til baka Vilji maður sjá aftur ijölskylduspjaldið sem síðast var á skjánum (það sem sást á undan því sem við sjáum nú) má velja Fyrri fjölskylda undir Skoða eða smella á Fyrri Jjölskyldu-hnappinn sem er aftast (lengst til hægri) á hnappabrettinu. Þannig má rekja sig til baka um 50 síðustu Jjölskylduspjöldin á skjánum. Abending: Með því að halda niðri slaufulykli og smella á Fyrri íjölskyldu-hnappinn má fá fram seðil með nöfnum hjóna á Fyrri íjölskyldu-lista. Farið á fyrsta fjölskylduspjaldið (ræsispjaldið) Til þess að komast á fyrsta Jjölskylduspjaldið veljum við Fyrsta íjölskylda undir Skoða. Sé þessu spjaldi eytt mun Reunion úthluta nýju fyrsta spjaldi (ræsispjaldi) töluna ID#1. Ábending: Tvísmella má á hnappinn Fyrri Jjölskylda til þess að fá fram gildandi fyrstu fjölskyldu. Haldið niðri vallykli og smellið á sama hnapp (Fyrri íjölskylda) til þess að “tilnefna” skjáspjald til fyrsta Jjölskylduspjalds. Farió á milli eftir listum Hægt er að fara ámilli manna með því að tvísmella á nöfn á hvaða lista sem er sem Reunion hefur búið til. Þetta á t.d. við um gluggalista yfir mannanöfn, dagatöl, hraðlista, skyldleikalista og sjálfmerkingar- lista. Þannig má einnig fara á milli með því að tvísmella á nöfn fólks á gluggalistunum Börn eða Makar undir Sýsl. Systkini - skyndilisti Fyrir ofan nöfn eiginmanns og eiginkonu á fjölskylduspjaldinu eru tveir litlir hnappar til þess að fá fram skyndiglugga. Annar hnappurinn (með þremur stölluðum strikum) er kallaður Systkinahnappur. Sé ýtt á hann birtist seðill með nöfnum systkina viðkom- andi einstaklings. Til þess að fá fram fjölskyldu- spjald systkinis er nafn þess valið af seðlinum. Nafn upphaflega einstaklingsins sést þegar valið, með valmerki fýrir framan, á seðlinum í skyndiglugganum. Einnig má fá fram Jjölskylduspjald systkinis með því að smella á hnapp foreldris og því næst, af Jjölskylduspjaldi foreldrisins, að smella á hnapp viðkomandi systkinis. Ábending: Sé slaufulykli haldið niðri og smellt á nafn eiginmanns eða eiginkonu á Jjölskylduspjaldi birtist seðill með nöfnum systkina eiginmannsins eða eiginkonunnar. Eins má halda niðri slaufu- lyklinum og smella á nöfn foreldra til þess að fá skyndilista með nöfnum systkina foreldris. Makar - skyndilisti Seðil með nöfnum maka má nota til þess að fá fram fjölskylduspjald einstaklings og maka hans. Til þess að gera þetta er nafn makans valið af maka- listanum. Nafn þess maka, sem á fjölskylduspjaldinu er, sést þegar valið (með valmerki framanvið). Yfirlit Yfirlitsglugginn líkist fimm-kynslóða ættartöflu (áatali) þar sem nafn hverrar persónu er hnappur. Þessa hnappa (nöfnin) má nota til þess að fara hratt um fjölskylduskrána. Til þess að fá fram þetta Yfírlit skal velja Yfirlit undir Skoða eða smella á Y fírlitshnappinn á hnappa- brettinu (fímmta hnapp frá vinstri). Sé smellt á nafn einhvers einstaklings, annars en þess sem skoðað er út frá (fremsta nafnið), flytst sá einstaklingur á stað þess sem fremstur var (í hans eða hennar stað). 12

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.