Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1996, Blaðsíða 3

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1996, Blaðsíða 3
Sigríður Þorgrímsdóttir: “ÞAÐ ER SVO FRJÁLS LUNDIN MÍN” Grúskað í gömlum ættarskjölum Fyrirlestur þessi var fluttur 25. apríl s.l. Hann birtist hér í nokkuð styttri útgáfu. Síðastliðið haust sótti ég námskeið í sagnfræði við Háskóla Islands undir handleiðslu Sigurðar Gylfa Magnús- sonar sagnfræðings. Námskeiðið hét Sjálfsævisögur og sagnfræði. Þar beindu nemendur sjónum sínum að einstaklingnum í sögunni með því að rannsaka persónulegar heimildir eins og sjálfsævisögur, bréf og dagbækur. Þá ákvað ég að líta í gögn langa- langafa míns í Skagafirði, sr. Jóns Sveinssonar á Mælifell i, og nýta það efni sem verkefni í námskeiðinu. Jón lét þó nokkuð eftir sig af pappírum, en það sem ég athugaði voru dagbókarslitur, annars vegar frá árunum 1857-8 sem geymt er á Þjóðskjalasafninu og hins vegar tvö brot frá 1868-9 og 1884-5 sem geymt er á Héraðsskjalasafninu á Sauðárkróki. Auk þessa athugaði ég nokkur bréf sem fóru milli Jóns og konu hans tilvonandi á árunum 1840-41 og geymd eru á Þjóðskjalasafni. Persónulegar heimildir geta varpað ljósi á daglegt líf fólks á fyrri tíð þótt vissulega séu þær háðar ákveðnum annmörkum. Ævisögur eru t.d. skrifaðar um löngu liðna atburði sem hugsanlega hafa skolast til í minninu. í dagbækur voru atburðir hins vegar skráðir jafn óðum og hafa þær því ýmsa kosti fram yfir ævisögur. í dagbókum Jóns eru færslur hvers dags fáorðar, samþjappaðar, mikið um skammstafanir til að nýta pappírinn og mjög lítið um persónulegar athugasemdir eða vangaveltur. Þannig er um fleiri dagbækur fyni tíðar, menn voru ekki að trúa dag- bókinni fyrir innstu hugrenningum sínum. Það þarf að lesa milli línanna ef menn vilja setja sig inn í tilfinningar höfundar, ekki síður en oft er í sjálfsævi- sögum. Sendibréf varpa hins vegar oft nánara og persónulegra ljósi á menn og málefni en dagbækur og ævisögur gera. Nú hef ég ekki gert ítarlega rannsókn áþessum heimildaflokkum og því vissara fyrir mig að tala varlega og vera ekki með alhæfingar. En ég fullyrði að það er mikið verk óunnið við rannsókn á persónulegum heimildum. í rannsókn nrinni studdist ég við ritdeilu tveggja þjóðkunnra Skagfirðinga í Tímariti Bókmennta- félagsins áárunum 1892-6. Þeirvoru Olafur Sigurðsson dannebrogsmaður með meiru frá Ási í Hegranesi og sr. Þorkell Bjarnason frá Reykjaströnd, sem var um þetta leyti prestur að Mosfelli í Mosfellsdal og þingmaður. Sr. Þorkell reið á vaðið með langri grein sem hét “Fyrir 40 árum” og sagði frá daglegu lífi í Skagafirði um miðja 19. öld, eins og hann mundi það. Þar lýsti hann ýmsum þáttum, t.d. húsakosti, búnaðarlagi, klæðnaði, hreinlæti, mataræði og mörgu fleiru. Skagfirðingum þótti lýsingin ekki falleg og fengu Ólaf í Ási til að svara og skiptust þeir Þorkell á skoðunum um skeið. Að auki studdist ég við grein sem birtist í Skagfirðingabók árið 1985, en hún var skrifuð um svipað leyti og greinar þeirra Þorkels og Ólafs af sýslunga þeirra Eiríki Eiríkssyni bónda frá Skatastöðum. Hann sagði einnig frá lífinu í Skagafirði á 19. öld og reyndi að feta slóð fræðimennsku og hlutleysis í skrifum sínum. Ef til vill tengdust skrif hans áðurnefndum blaðadeilum, þótt líklega birtust þau ekki fyrr en tæpri öld síðar. Frásagnir þessara þriggja manna mynduðu ramma rannsóknarinnar og dagbækur og bréf sr. Jóns voru athuguð til samanburðar. Ég mun ekki fara náið út í þann samanburð íþessu erindi, heldurveljaúrnokkra þætti sem vondandi mega verða ykkur til fróðleiks og skemmtunar. Svipmikill, yfírlætislaus, harðlyndur og hrein- skilinn Jón Sveinsson fæddist árið 1815. Hann var sonur Sveins Pálssonar læknis og Þórunnar Bjarnadóttur Pálssonar landlæknis. Jón stundaði nám í Bessastaða- skóla á árunum 1835-39 og dvaldi síðan um tíma á Möðruvöllum hjá frænda sínum, Bjarna Thorarensen skáldi og amtmanni. Hann var vígður til Grímseyjar árið 1842 en entist þar ekki nema til vors 1843, vegna veikinda að því heimildir herma. Þjóðsagan um veikindi Jóns segir að hann hafi neitað að þjónusta kerlingu nokkra fyrir lát hennar, vegna þess að hún vildi ekki reka tíkina sína úr rúmi sínu meðan Jón veitti henni sakramentið. Þetta varð til þess að hann veiktist af kvilla sem var lýst sem “aðsvifi eða niður- fallssýki”,1 en sjálfur segir hann oft og tíðum í bókum Sigríður Þorgrímsdóttir 3

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.