Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1996, Blaðsíða 11

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.07.1996, Blaðsíða 11
Einhvernvegin tókst mér að smjúga framhjá henni, þaut út úr herberginu og komast í hornið til ömmu minnar. í horninu hennar ömmu var griðastaður það vissi ég af fyrri reynslu og það vogaði sér enginn að fara inn á hennar yfirráðasvæði til að ná í mig. Mér var borgið í bili en það tók mig sárt að hafa brotið svona hræðilega af mér og ég grét í faðmi ömmu minnar, hún huggaði mig, kallaði mig elskuna sína og sagði að þetta mætti ég aldrei gera. Hún útskýrði fyrir mér vandlega að það væri á móti lögum mannanna og vilja Guðs að taka nokkuð án leyfis. Nú liðu sumarmánuðirnir, dagarnir styttust, heyönnum var lokið, haustið kom með næturfrostnóttum og eftirvæntingin og tilhlökkunin fyrir heimferðina úr sveitinni náði tökum á mér. Ég mundi fyrri haust lík þessu. Hestarnir höfðu verið tygjaðir með hnakk og beisli, Bleikur gamli var með einteyming og áhonum var reiðingur undir töskur og poka. Ferðinni var heitið inn að Haga, þar sem við áttum að fara um borð í póstbátinn Konráð. Einar frændi ætlaði að fara með okkur inn eftir. Ég átti að vera á Brún gamla, mamma ætlaði að reiða Hrefnu litlu systur mína á Þokka og Einar frændi ætlaði að teyma undir Eddu systir minni, hún átti að sitja á Sleipni. Var nú komið að kveðjustundinni sem ég man eins og að hún væri að ske í þessari andrá. Hestarnir voru tilbúnir og allt annað sem tilheyrði ferðinni, aðeins var eftir að kveðja. Allir sem gátu höfðu kornið út á hlaðið til að kveðja okkur, það var suddarigning þennan dag en ekki mjög kalt ég var í svartri olíuborinni regnkápu sem mér þótti mjög fín, það voru stórir hliðarvasar á henni, en í öðrum þeirra geymdi ég snærisspottann sem allir alvöru menn upp til sveita höfðu á sér. Nú var ég búinn að kveðja alla nema ömmu og gekk nú til hennar. Hún kyssti mig og faðmaði, bað Guð um að vera með mér að eilífu, hún fór í svuntuvasa sinn náði þar í lófafylli af sykurmolum sem hún setti í regnkápuvasa minn og sagði mér um leið að Guð og allir hefðu fyrirgefið mér þá yfirsjón að taka sykurmolana á Hjallloftinu. Við þessi orð hennar varð ég glaður, ég fann hvernig orka hennar og kærleikur flæddu um mig. og fylltu brjóst mitt sælu og fögnuði. Upp frá þessari stund hefur kærleikurinn verið til staðar í brjósti mínu og kærleiksmolarnir í regnkápuvasanum orðið að leiðarljósi á erfiðum stundum. Já ! sykurmolarnir, hennar ömmu, urðu annað og meira en nesti til einnar ferðar. Guðs blessun, kær- leikur og fyrirgefning ömmu minnar, í rigningunni á hlaðinu, þennan haustdag fyrir fimmtíu og þremur árum hafa fyllt brjóst mitt ljósi góðvildar og kærleika alla tíð síðan. Hugleiðing vegna nýrra mannanafnalaga Jafnrétti kvenna og karla hefur mikið verið til umræðu en ég hef aldrei heyrt nokkra konu amast við því, að við giftingu skuli margar konur taka upp ættarnafn eiginmannsins. Með þessu er kona að helminga sjálfa sig, afsala sér uppruna sínum. Ættarnafnavenjan minnir óhugnanlega á mörkun búfjár og ekki ólíklegt að uppruna venj- unnar megi rekja til ófrelsis kvenna, enda víða litið á þær, enn þann dag í dag, sem hvern annan búsmala. Eigandinn (eiginmaðurinn) viðhafði ekki brennimerkingu, en konur voru neyddar til að merkja sig eiganda sínum með því að taka upp eftirnafn hans, ættarnafnið. Þegar tilkoma ættarnafna er skoðuð í sögulegu Ijósi, ætti sú venja íslendinga, að kenna sig til föður eða móður, að vera stolt þjóðarinnar. Þessa venju ætti því að halda í heiðri. Ættarnöfn gamalla valdastétta hafa reyndar verið varin með lögum - sem í reynd voru ólög - nokkrum sinnum. Ahuginn á svokölluðum milli- nöfnum stafar líklega af því hve ættarnafna- sérleyfin eru ósanngjörn. Lausnin á þessu sýnist því vera: annað hvort a) að gera ættarnöfn alveg frjáls eða b) að halda hinni ævafornu nafnavenju, jafn- réttisvenju, að allir einstaklingar, karlar jafnt sem konur, kenni sig til föður eða móður og haldi þeim nöfnum sínum alla ævi. Löggjafinn hefur í áranna rás reynt að viðhalda eins konar stéttaskiptingu í gegnum ættarnöfn. Best væri að þjóðin skynjaði sjálf hversu mikil reisn er í raun og veru yfir þeim sið að kenna sig til föður eða móður. Þetta ættu konur best að finna og skilja. Síðan en ekki síst má minna á, að hin forna mannanafnahefð hjálpar mjög mikið til við ætt- rakningar sem erfðavísindamenn nýta sér í auknum mæli. Með bestu kveðju, Arngrímur Sigurðsson ______________________________________________) 11

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.