Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1999, Blaðsíða 3

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1999, Blaðsíða 3
Félagsfundur Ættfræðifélagsins haldinn 19. nóvember 1998 á Hverfisgötu 105. Formaður setti fundinn kl.20:30 og bað Þuríði Kristjánsdóttur aó vera fundarstjóra. Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur flutti erindið “Galdramál á Brennuöld”. Rannsóknir Ólínu á galdramálum em gerðar til ritgerðar í doktorsvöm hennar. Erindinu var vel tekið og urðu nokkrar umræður um þaö. Séra Gísli Kolbeins fór í pontu og sagði ýmislegt um sína vitneskju af göldrum, m.a. um Pál í Selárdal og konu hans. Ýmsir gerðu athugasemdir sem Ólína svaraði af hógværð og þekkingu. Þar sem Ólína hefur ekki lokið doktorsritgerð sinni sá hún sér ekki fært að birta erindið að svo stöddu. Drukkið var kaffi og meðlæti og talað saman til 10:30 um ættfræði og skyld mál. Formaður sleit fundi. HALLDÓR HALLDÓRSSON útvegsfræðingur: PRÓFSVEINAR STÝRIM ANNASKÓLAN S 1901 OG 1902. Það mun hafa verið í ársbyijun 1996 sem ég flutti erindi í Ættfræðifélaginu um prófsveina Stýrimannaskólans fyrstu 50 árin . Skólinn hafði orðið 100 ára nokkm áður og hafði í því tilefni verið gefin út bók. í hana vantaði myndir af nokkrum árgöngum og við athugun í myndadeild Þjóðminjasafnsins komu strax í ljós myndir af árgöngum 1901 og 1902 en þeir vom ekki í bókinni. Þetta em hópmyndir með alls 41 prófsveina af 56 sem höfðu útskrifast þessi ár. í grúski mínu síðan hef ég fundið út hveijir em á myndunum nema um þriðjungur. Hefur það verið á þann hátt að ég hef talað við böm eða bamaböm prófsveinanna. Nú er orðið illmögulegt fyrir mig að finna út fleiri afkomendur og því leita ég til félaga í Ættfrasðifélaginu um aðstoð. Hér er listi yfir þá sem ég er að eltast við en í mörgum tilfellum er verið að biðja um að benda á afkomendur systkinabama viðkomandi. Ég bið fólk um að hringja í mig á kvöldin í síma 567 2173. Ég vil taka það fram að minnsta ábending gæti verið gullsígildi og hvet fólk eindregið til að hringja. Best væri ef viðkomandi finnst í einhverri ættartölu eða niðjatali. Ég verð á næsta fundi Ættfræðifélagsins en betra væri þó að vera búinn að tala við mig áður. ÚTSKRIFAÐIR 1901 Ebenezer J. Guðmundsson fæddur í Hnífsdal 23. des 1875. í Amardalsætt I. bindi bls 218-19 er nokkuð um hann og þar sagður fæddur 22. nóv 1974. Hann er sagður hafa fluttst til Noregs. í leiðréttingu í Amardalsætt III. bindi er haxm sagður dáinn 22. des 1922 og hafi verið skipstjóri í Haugasundi í Noregi. í Vestfírzkum slvsadögum fyrra bindi bls 350 er minnst á að hann hafi tekið út af fiskiskipinu Sigríði í maí 1904, sem hann var skipstjóri á, en bjargast aftur upp í skipið heilu og höldnu. Friðrik Ólafsson fæddur á Kjalamesi 5. jan 1874. í Skipstjóra og stýrimannatalinu I. bindi kemur fram að hann hafi verið mikill aflamaður á fiskiskipinu Asu en gerst síðar togarasjómaður og minnist Tryggvi Ófeigsson á hann í ævisögu sinni. í Skipstjóratalinu er mynd af Friðriki en ekki get ég þekkt hann af henni. Einnig er mynd af honum í Kjalnesingum á bls 214. Friðrik dó 17. ágúst 1942 ókvæntur og bamlaus. Gunnlaugur Grímsson fæddur í Reykjavík 24. maí 1883. í Ægi í ágúst 1906 á bls 112 er greint frá að Gunnlög Grímsson stýrimann hafi tekið út af fiskiskipinu Milly frá Seltjamamesi þann 9. apríl 1906 og hann dmkknað. ♦ Jóhannes Einarsson fæddur í Rauðasandshreppi l.jan 1876. Sjómannadagsblað Akraness 1985 er helgað kútter Sigurfara sem þá var kominn á byggðasafiiið að Görðum. I blaðinu er mynd af Jóhannesi en hann hafði verið 3

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.