Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1999, Blaðsíða 5

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1999, Blaðsíða 5
Hólmfríði þakkað Fyrir mína hönd og annarra stjórnarmeðlima Ættfræði- félagsins langar mig til þess að fylgja Hólmfríði Gísla- dóttur fráfarandi formanni Ættfræðifélagsins úr hlaði og færa henni innilegustu þakkir fyrir vel unnin störf og gott samstarf. En maður þakkar ekki slíkri konu sem Hólm- fríði með svo hversdagslegum orðum og því langar mig til þess að hafa þessa tölu örlítið lengri og læt þar fylgja með bæði súrt og sætt. Við Hólmfríður höfum nú starfað saman í stjórninni í 6 ár, hún sem formaður og ég sem ritari. Eins og flestir vita er Hólmfríður afar stjórnsöm kona, kraftmikil og dugleg enda vön að stjóma og ráðskast á stóru og barnmörgu heimili. Og það má segja að hún hafi haldið þessum stjórnsemistöktum við okkur samstarfsmenn sína líka. En sú stjórnsemi hefur nú ekki alltaf fallið í góðan jarðveg frekar en við er að búast, hvorki hjá mér né öðrum, enda fleiri stjórnsamir en Hólmfríður. Við höfum ekki alltaf verið sammála, ég hef hvesst mig við hana og hún hvesst sig við mig, en það hefur aldrei skilið neitt eftir sig annað en gott. Því við Hólmfríður erum báðar málglaðar konur að vestan og getum rætt okkur fram úr hlutunum þegar öldurnar lægir. Hólmfríður er einnig með eindæmum þrjósk og fylgin sér og heldur sínu stíft fram en það er jú aðalsmerki baráttumanna og það verður ekki annað sagt en að Ættfræðifélagið komi vel undan hennar verndarvæng. Eitt gott dæmi um þrjóskima er að á sínum tíma kom mikið til tals hjá ýmsum stjórnarmönnum, þó ekki mér, að kominn væri tími til þess að hætta við að gefa út Mt. 1910 á bók en gefa það í staðinn út á geisladiski fyrir tölvu. Þetta var á þeim árum sem tölvumar voru að verða að hálfguðum í þjóðfélaginu. En Hólmfríður hélt nú ekki, bók skyldi það vera, því bókin stæði alltaf fyrir sínu og hana gæti maður tekið með sér upp í rúm en tölvuna ekki. Og þar við sat. Og tíminn hefur svo sannarlega unnið með Hólmfríði í þessu máli þótt á tölvuöld sé. En þótt Hólmfríður sé nokkuð viss um að villumar verði vaðandi um allt á tölvudisklingi fremur en á bókum og þótt henni sé á margan hátt meinilla við þessi miklu tölvutengsl ættfræðinnar og þótt hún óttist að bæði nákvæmni, spenna og ánægja líði fyrir það að ættfræðin sé unnin á tölvu með tölvutengdum gagnagrunni, þá hef ég fyrir satt að hún sé nú samt byrjuð ef ekki búin að pikka inn stofninn að niðjatali einnar formóður sinnar á tölvu. Svo henni er nú ekki alls vamað á þessu sviði þótt mér hafi oft þótt hún vera ansi aftarlega á merinni í tölvumálunum enda fagna ég þeim degi þegar öll ættarsúpan kemur út á geisladiski. En sínum augum lítur hver silfrið. En það er ekki bara stjórnsemin og þrjóskan sem einkenna Hólmfríði Gísladóttur. Hún er einnig með eindæmum samviskusöm og trú þeim störfum sem henni eru falin og það er ekki lítill fengur fyrir áhugamanna- félag eins og okkar. Það er meiri vinna en margan grunar að stjórna ekki stærra félagi og það er sama hvort um er að ræða útgáfu manntala, sölu á manntölum, fundarstúss og fyrirlesarareddingar, ferðalög eða fréttabréfið, nú eða hina ótalmörgu héraðsfundi, allt hefur hún rækt af stakri samviskusemi og dugnaði. Og óteljandi eru þau samtölin sem Hólmfríður hefur átt við hinn almenna félagsmann og greitt úr ættarflækjum af lipurð og þekkingu. Annað sem mér finnst einkenna Hólmfríði og oft hefur vakið aðdáun mína er sú ræktarsemi sem hún hefur sýnt öllum þeim góðu mönnum og konum sem lagt hafa félaginu og ættfræðinni lið á undanförnum fimmtíu árum. Þeim hefur hún sýnt virðingu og þökk jafnt lífs sem liðnum. Og allt byggist það á hennar langa og far- sæla starfi og því að hún hefur góða yfirsýn og þekkingu á sögu félgsins. Guðfinna Ragnarsdóttir fráfarandi ritari í ræðustól. En umfram allt er hún einlægur áhugamaður um ættfræði, brennandi í anda og hafsjór fróðleiks um ættar- tengsl ekki síst í sínu heimabyggðarlagi Snæfellsnesinu. En það er ekki hægt að þakka Hólmfríði Gísladóttur vel unnin störf án þess að minnast á hexmar hægri hönd, eiginmanninn Eggert Th. Kjartansson sem stendur við hlið hennar í ættfræðistússinu á hverju sem dynur og hefur unnið okkar félagi ómetanlegt starf í útgáfumálum. Það er ekki lítils virði að hafa slíkan mann sér við hlið enda hef ég oft öfundað þau hjónin af þessu sameiginlega áhugamáli þeirra. En saman spannar þekkingarsvið þeirra nær hálft Vesturland. Með slíka þekkingu, áhuga og starfsgleði er ekki hægt að hverfa á braut þótt formannsferlinum ljúki. Það er þess vegna ekki bara von mín heldur fullvissa - eftir að hafa rætt við Hólmfríði sjálfa -að þau hjónin eigi eftir að vinna Ættfræðifélaginu áfram af lífi og sál um ókomin ár þótt formannsstarfinu ljúki. Kæra Hólmfríður, ég þakka þér mörg og skemmtileg ár í stjórn Ættfræðifélagsins, Jaau hafa verið mér ánægju- legur og lærdómsríkur tími. Eg vona að við eigum eftir að eiga saman margar ánægjustundir bæði innan félagsins og utan. Kærar þakkir! Guðfinna Ragnarsdóttir -5

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.