Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2005, Blaðsíða 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2005, Blaðsíða 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2005 Meira um Hafsteinana Magnús Haraldsson hnaut um þá fullyrðingu Sigurðar Gylfa Magnússonar í umfjöllun hans um Hannes Hafstein að Níels Christian Duason Havsteen f. 1814 á Hofsósi hefði verið forfaðir Knud Zimsen borgarstjóra. Hið rétta er að það var systir Níelsar, Jóhanna, sem var amma Knud Zimsen. Og Magnús sendi okkur snarlega til birtingar niðjatal sem spannar um 220 einstaklinga. Niðjatal Christens Zimsens Christen Zimsen, f. 1809 á Jótlandi í Danmörku, d. 1877, verslunarstjóri í Reykjavík. [Borgart.] - K. 1840, Johanne Christine Havsteen Zimsen, f. 1811, d. 1888 í Reykjavík, húsfreyja í Reykjavík. For.: Dúi Havsteen Níelsson, f. 1784, d. 1843, búsettur á Höfsósi til 1815 en eftir það kaupmaður í Smörum í Danmörku og k.h. Dorothea Johansdóttir Birch, f. 1779, d. 31. des. 1853 í Kaupmannahöfn, húsfreyja í Hofsósi og í Smörum í Danmörku. Böm þeirra: a) Knud Due, f. 26. febr. 1841, b) Ericha Dorothea, f. 1843, c) Niels Johannes, f. 1845, d) Elisabeth Sophie, f. 1850, e) Vilhelm Frederik, f. 1852, f) Lovísa Jakobine, f. 5. febr. 1853. la Knud Due Christian Zimsen, f. 26. febr. 1841 (28.2), d. 8. okt. 1908, kaupamaður og ræðismaður í Hafnarfirði og i Reykjavík. [Bollagarðaætt] - K. 12. sept. 1868, Anna Cathinca Zimsen, f. 2. maí 1845, d. 31. jan. 1921, húsfreyja í Hafnarfirði og í Reykjavík. For.: Christian Anders Jurgensen, f. um 1809, skógarfótgeti í Karhuset á Jótlandi í Danmörku og k.h. Jesmine Christensen Jurgensen, f. um 1812 í Danmörku, húsfreyja í Karhuset á Jótlandi í Danmörku. Böm þeirra: a) Anna, f. 1869, Knud Zimsen borgarstjóri Reykjavík 1914-1932. b) Johanne, f. 1871, c) Cathinca, f. 15. sept. 1872, d) Louise, f. 1874, e) Knud, f. 17. ágúst 1875, f) Jes, f. 13. aprfl 1877, g) Havsteen, f. 1878, h) Laura, f. 1880, i) Christen, f. 13. jan. 1882, j) Nicholai, f. 1883. lb Ericha Dorothea Catharina Zimsen, f. 1843, húsfreyja í Kaupmannahöfn. [Zimsen] - M. Hans Andreas Biltzing Monsted, f. 1847, búsettur í Danmörku. For.: Peter Fredrik Severin Monsted, f. 1813, búsettur í danmörku og k.h. Birgitte Zimsen, f. 1812, d. um 1890 (á lífi þá), húsfreyja í Randers. http://www.vortex.is/aett 21 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.