Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Blaðsíða 17

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2007, Blaðsíða 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2007 Erindi flutt á félagsfundi Ættfræðifélagsins í janúar síðastliðnum: Lífshlaup Benedikts Þ. Gröndal og Sigurlaugar Gröndal Komið öll blessuð og sæl. Ég heiti Guðfinna Lilja Gröndal. Ég ætla að rekja fyrir ykkur söguföðurforeldraminnahjónannaBenedikts Þ. Gröndal og Sigurlaugar Gröndal. Ég ætla um leið að kynna fyrir ykkur nýútkomna bók mína um þau, sem ég nefni „Lífshlaup Benedikts Þ. Gröndal og Sigurlaugar Grön- dal“ og segja ykkur frá aðdraganda þess að ég hóf samantekt bókarinnar. Upphafið að þessu verki mínu var að ég fór á námskeið hjá Þorgrími Gestssyni sem kynnti fyrir okkur ættarskráningu og hvernig við gætum leitað fanga hjá bókasöfnum og Þjóðskjalasafni. Þetta var árið 2002, að mig minnir eða 2003. Þar með varð ekki aftur snúið. Ég ákvað að gera hefti fyrir ættmenn mína í föðurætt. Ég vildi hafa það með nokkrum handritum, t.d. skrifaði ég upp litla dagbók afa míns, sem spannaði árið 1927 - 1936, með hléum, svo og niðjatal ættarinnar. Svo var það að bróðir minn Páll, sem býr í Bandaríkjunum, hvatti mig til þess að gera úr þess- um skjölum bók. Þá bætti ég við fleiri handritum s.s. Sveitasögu, leikriti og smásögum og tveimur ferðasögum. Ég reyndi einnig að velja þau ljóð sem mér fannst hæfa verkinu, en það var úr miklum fjölda að velja. Eins og þið vitið eflaust öll er oft erfitt að skrifa upp handrit, en afi minn skrifaði oftast vel, stundum næstum skrautskrift. Síðar skrifaði ég einnig upp langa sveitasögu „Birkivíkurmálið“. Þessi saga á sér sögu, ef svo má segja, því að árið 1964 er hún send föður mínum og á umslaginu stendur að hún hafi verið afhent Olafi Erlendssyni í Prentsmiðjunni árið 1929. Svona geta nú hlutirnir dregist. Áfram var haldið og ég skrifað upp leikritið „Undir Álfastapa“, auk nokkurra smásagna. Afi minn hafði einnig verið tilbúinn með hefti með ljóðsetningu á 28 ljóðum við lög eftir ýmsa erlenda höfunda, en heftið kallar hann „Hreim“. Því miður virðist ekkert hafa orðið úr prentun heftisins. í bókinni eru einnig ljóð til bama þeirra hjóna svo og til ömmu minnar. Síðan eru í bókinni minningabrot um þessi sjö systkini, sem ég skrifa af mínum kynnum af þeim. Fjöldi ljóða em enn óuppskrifuð, en það er ekki að vita hvað seinna verður gert í því. Af Högna prestaföður Jæja, ég fór í marga leiðangra í leit að heimildum. Ég heimsótti Ólafsvík, Stykkishólm, Neskaupstað og sat á Þjóðskjalasafninu löngum stundum og rýndi í kirkjubækur. í Þjóðarbókhlöðuna fór ég í leit að handritum og fleiru og í myndasafn Reykja- víkurborgar, Skjalasafn Reykjavíkur og fl. og fl. Þetta var lærdómsríkur tími og ég segi bara að næst verður þetta ennþá betra hjá mér, nú veit ég svolítið meira um öflun heimilda. Nú ætla ég að rekja fyrir ykkur þetta lífshlaup afa míns og ömmu. Því miður verður að stikla á stóru, þar sem fáir eru á lífi sem muna eftir þeim. Þá er fyrst að segja frá Benedikt. Hann var dóttursonur Sveinbjamar Egilssonar og Helgu Bene- diktsdóttur Gröndal, síðar Egilsen, því það var til siðs á þeim árum og konur voru kenndar við maka sinn. Helga og Sveinbjörn eignuðust átta börn. Móðir Benedikts var Valborg Elísabet (f. 1838), hún giftist 1862 Gunnlaugi Þorvaldi Stefánssyni (f. 1836) presti Hjónin Benedikt Þ. Gröndal og Sigurlaug Guðmunds- dóttir Gröndal. http://www.ætt.is 17 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.